Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2005, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2005, Qupperneq 14
74 LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005 Fréttir W Einar Örn Sigurðsson, fangi á Kvíabryggju, sendi DV eftirfarandi bréf. Hann vill segja sína sögu. Aö sannleikurinn komi í ljós. Einar er betur þekktur sem Einsi glæpur og tók þátt í heimildar- mynd þeirra Lýðs Árnasonar, Þórhalls Gunnarssonar og ReynisTraustasonar. Hann kynntist Katrínu Emmu Maríudóttur Hale, bráðhuggulegri ungri stúlku, árið 2001 en hún lést í bílslysi á leið heim frá heimsókn til Einsa á Litla-Hraun. Sannleikurinn um Einsa glæp Mig langar að láta í ljós skoðun mína á heimildarmyndinni Skuggabörn eftir Þórhall Gunnarsson og Lýð Árnason. Ég er einn þeirra sem komu fram í Skuggabörnum og vil ég hér með lýsa yfir töluverðum vonbrigðum með útkomu mynd- arinnar, sem gerð var í samstarfi við Reyni Traustason, þeg- ar hann vann við gerð bókar sem ber sama titil og myndin. í fyrsta lagi vil ég lýsa aðdrag- andanum að því að ég ákvað að taka þátt í gerð áðumefndrar myndar og bókar. Ég kynntist ungri, efnilegri og bráðhuggulegri stiílku árið 2001. Hún hét Katrín Emma Maríudóttir Hale. Því miður kynntumst við við erfiðar aðstæður. Við vomm bæði í töluverðri neyslu fíkniefha og l£k- lega hef ég aldrei verið dýpra sokk- inn en einmitt þá. En þrátt fyrir það tókust með okkur góð kynni og vin- skapur. Fáeinum mánuðum síðar lenti ég í fangelsi, austur á Litla-Hrauni sem áður fyrr, og gerðist það í des- ember að ég og Katrín trúlofuðum okkur, þrátt fyrir að við hefðum að- eins þekkst í skamman tíma. Lenti í bílslysi á leið til Reykjavíkur Bæði héldum við áfram upp- teknum hætti, það er að segja að nota fíkniefni, í einhvern tíma eftir að ég lenti í fangelsi. Ég inni á Litla- Hrauni og hún á götum Reykjavík- ur. Það komu stundum tímabil sem við náðum bæði að halda okkur frá efnunum. Það fór hins vegar yfirleitt eins og svo oft áður að fíknin varð yfirsterkari og hafði betur á endan- um. Þrátt fýrir að á móti hafi blásið studdi Katrín ávallt við bakið á mér og var dugleg að heimsækja mig í fangelsið austur á Litla-Hrauni. Dag einn er Katrín Emma fór frá mér, eftir að hafa heimsótt mig í fangelsið, lenti hún í hrikalegu bíl- slysi á leið sinni til Reykjavíkur. Hún lést samstundis. Katrín var búin að neyta margs konar eiría og lát henn- ar því nátengt fíkninni sem við höfðum bæði barist svo lengi við. Móðir Katrínar hafði eftir þetta tal af Reyni Traustasyni. Ræddu þau um að Reynir myndi skrifa bók um líf ungmenna sem hefðu orðið und- ir í baráttunni við fíkniefnin. Móðir Katrínar benti honum á að ná tali af mér, sem og hann gerði. Hann bað mig þá um að segja nokkur orð um Katrínu. Af virðingu við þær mæðg- ur og í von um að það yrði til þess að vama öðrum að feta þá leið sem ég og Katrín höfðum farið ákvað ég að verða við ósk Reynis og segja hon- um frá kynnum mínum af Katrínu, án þess þó að koma í mynd. Fékk að fara á Kvíabryggju f kjölfarið á því vaknaði áhugi Reynis á því að fjalla um líf mitt sem og baráttu mína gegn fíkniefnunum og öllu því sem þeim fylgir. Ég þver- tók hins vegar fyrir að auglýsa mig og mitt lífemi eitthvað sérstaklega. Á þessum tíma hafði mér tekist að breyta lífemi mínu, var kominn í sambúð og nýbúinn að eignast son. Ég sótti einnig nám og gekk vel að fóta mig í lífinu. Á þessum tíma hékk samt yfir mér dómsmál sem ég átti ólokið frá mínum fyrri dögum. Ég vissi að ég þyrfti líklega að sitja af mér nokkra mánuði í fangelsi. Reynir sannfærði mig um að það kæmi mér vel að taka þátt í gerð myndarinnar og bókarinnar. Hann sagði að að öllum líkindum gæti hann haft áhrif á ákvarðanir yfir- valda um afplánun mína og jafnvel forðað mér frá fangelsisvist. Hann sagðist í það minnsta ætla að varpa ljósi á ósanngirnina við það að setja mann eins og mig í fangelsi, sem loksins var kominn á skrið eftir margra ára erfiðleika og baráttu gegn fíkniefnunum. Ég fékk svo staðfest frá Fangels- ismálastofnun að ég fengi ekki að sitja af mér í samfélagsþjónustu og ekíd væri um neitt annað að ræða en að ég mundi sitja af mér 10 mán- aða fangelsi fyrir brot á skilorði með því að hafa ekið réttindalaus og fyr- ir að hafa gerst sekur um minnihátt- ar auðgunarbrot. Mér fannst þessi niðurstaða ósanngjöm og ófull- nægjandi og ákvað því að fara leið Reynis Traustasonar, taka þátt í því sem hann var að gera og láta þjóð- ina vita af þeim vinnubrögðum sem mér fundust þá vera út í hött. í dag veit ég að ég ber fulla ábyrgð á gjörðum mínum. Mér ber að sjálfsögðu að fara eftir lögum og reglum líkt og annað fólk. Ég er að vísu þakklátur Fangels- ismálastofhun fýrir að koma til móts við mig með því að veita mér þann möguleika að taka út mína refsingu á Kvíabryggju. Þar hef ég breytt lífemi mínu og lífsstefnu til hins betra. Það auðveldar mér að halda áfram á réttri braut að sitja af mér hér á Kvíabryggju í stað þess að afplána á Litla-Hrauni þar sem allt er á kafi í fíkniefnum. Ég er einnig þakklátur Reyni Traustasyni ef hann hefur haft einhver áhrif á ákvörðun Fangelsismálastofnunar um að leyfa mér að afplána hér. Ef ekki, er ég honum að minnsta kosti þakklátur fyrir að hafa reynt. Hefði viljað meiri forvarnir Ég er hins vegar vonsvikinn yfir því að hafa komið ffam eins og ég gerði í áðumefndri heimildarkvik- mynd og bók og þar með opinberað mitt líf og auglýst andlit mitt. Með því olli ég fjölskyldu minni, bams- móður og nýfæddum syni áhyggj- um. Þau hafa fundið tU skammar vegna háttsemi minnar og íyrra líf- emis sem ég sýndi fyrir það sem ég tel vera óvandaða og nánast til- gangslausa heimUdarmynd og bók. Eg átti von á að það yrði fjallað um forvamir og farið dýpra í málin. Að aðdragandi þess að ungt fólk lendir á þessari óheUlabraut yrði skoðaður. Mé fannst vanta að þessi mál væm krnfin nánar og farið yrði enn nær raunveruleikanum eins og hann er í undirheimum Reykjavík- ur. Einnig hefði að mínu mati mátt ræða við enn fleiri fíkniefnaneyt- endur og aðstendur þefrra. Ef framleiðendur skorti mynd- efni, þá hefðu þeir getað beðið með að gefa þessa mynd út þar tU þeir væm komnir með nóg. Mér fannst vanta lokaniðurstöðu í myndina. Fleiri viðvaranir fýrir þá sem ekki hafa neytt fíkniefna eða ánetjast þeim. Og síðast en ekki síst vU ég gagnrýna það að hvergi var minnst á Katrínu í myndinni. Þau atriði þar sem ég minntist hennar vom öll klippt út og aldrei sýnd. Eins og ég hef áður komið að, þá var framlag mitt og þátttaka fyrst og fremst í þágu Katrínar sem og forvarna fyrir ungt fóUc. Ég vU því undirstrika óánægju mína með þessa heimildarmynd og læt það í ljós að mér fannst ekki þess virði að fóma jafn miklu og ég gerði fýrir jafn óvandaða og að mínu mati lélega heimildarmynd og Skuggaböm er. Vínveitingar á frumsýningu Ég vU lflca benda á að það er afar óviðeigandi að mínu mati að bjóða upp á vín- veitingar á mynd sem þessari, eins og gert var á ffum- sýningunni í Regnboganum. En ég vona samt að hún hafi einhver áhrif á fóUc og að hún komi tíl með að koma í veg fýrir að einhverjir lendi í klóm fíkniefna og glötunar. Ég óska engum að ganga í gegn- um það sem ég hef gengið í gegn- um, en ef það er einhver sem á í erf- iðleikum þama úti og vantar að- stoð, þá er honum velkomið að leita tU mín. Vonandi getur þekking mín og reynsla komið að einhverju gagni. Með von um að betri árangur náist í baráttunni gegn fíkniefnum. ViröíngarfyJlst, Einar öm Sigurösson, fangdsinu Kvíabryggju. Einar örn Sigurðsson Mætti á frumsýn- ingu Skugga- barna i Regnbog- anum og hélt þrumandi ræðu að henni lokinni. Fólkið i salnum var mjög snortið af hreinskilni Einars, „Dag einn er Katrín Emma fór frá mér eftir að hafa heim- sótt mig í fang- elsið lenti hún í hrikalegu bílslysi á leið sinni til Reykja- víkur." Einsi glaepur Einar Örn féllthelmild-]'*'?&Z4 . armyndinni og tók aftur upp fyrri lifsstil. Hann hefði viljað að kvik- myndagerðarmennirnir hefðu beðið n með að sýna myndina þar til þeir hefðu meira efni til að vinna úr. Sprautufíkill verður morðingi Sigurði Frey bregður fyrir i mynd- inni. Hér er verið að sprauta hann. Skömmu siðar varð hann félaga sínum Braga Halldorssyni að bana en hann var klipptur út úr mynd- inni áður en hún var sýnd. Reynir Traustason, Lýður Arnason og Þórhallur Gunnarsson Reynir skrifaði bókina en þeir Lýður og Þór- hallur gerðu myndina. Þeir neyddust til að klippa hluta úr myndinni þegar þeim var hótað lögbanni sem þó tókst ekki að fá á myndina.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.