Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2005, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2005, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 7 9. NÓVEMBER 2005 Sport JJV Keane farinn frá United Manchester United og Roy Keane náðu samkomu- lagi í gær um að hinn 34 ára gamli Keane yfrrgæfi félagið og United hefur heimilað írska landsliðsmanninum að semja við annað lið þegar félagsskipta- glugginn opnar í janúar. United bauð Keane enn- fremur góðgerða- leik í viðurkenningu fyrir þau rúmlega tólf ár sem hann hefur verið á Old Trafford síðan að félagið keypti hann fyrir þá metfé frá Nottingham Forrest. „Roy Keane hefur þjónu- stað Manchester United frá- bærlega og var bestu miðju- maður heims sinnar kyn- slóðar. Allir á Old Trafford óska honum alls hins besta það sem eftir lifir ferils hans,“ sagði Sir Alex Fergu- son, stjóri United. Markús Máni Michaelsson meiddist heldur illa í leik Lemgo og Díisseldorf í þýsku úrvalsdeildinni nú fyrr í vikunni. Markús meiddist snemma í leiknum og segir Logi Geirsson, leikmaöur Lemgo, að það hafi ekki verið fögur sjón. Þögn sló á áhorfendur i húsinu og leikmenn gripu um andlit sín. AF ÞESSU mswjt Laugardagur 12.45 Wigan-Arsenal í beinni á enska boltan- um. ~rn. 14.00 Stjaman tekrrr á móti ÍBV í DHL-deild karla í handbolta í Ás- garði. 14.15 Haukar-Grindavlk, undanúrslit Powerade- bikars kvenna í körfu- bolta í Laugardalshöll og beint á RÚV. 16.10 Úrslitaleikur Powerade-bikars karla í körfubolta í Laugardals- höll og beint á RÚV. mswj> 15.00 Chelsea- Newcastle í beinni á enska boltanum. S&Tl 16.00 Derby-slagur Celt- ic og Ranges í beinni á Sýn. 18.50 Stórslagur Real Madrid og Barcelona í beinni á Sýn. s&r1, 2.00 Bein útsending frá einvígi Floyd Maywe- ather og Sharmba Mitchell á Sýn. Maywe- ather hefur aldrei tapað. Sunnudagur 4.55 Bein útsending á Sýn frá A1 - heimsbik- amum í kappakstri í Malasíu. Eitmi 12.50 Tottenham-West Ham í beinni á enska boltanum. wsmj 15.50 Middles- brough-Fulham í beinni á enska boltanum. 1 ■ jf' í' 16.05 Bein útsending frá lokadegi Meistarmóts fs- lands í sundi á RÚV. -rÆ- 19.15 Stórleikur ÍR og Fram í DHL-deild karla í handbolta í Austurbergi. HK og FH mætast í Digranesi á sama tíma. 19.15 Leikur Breiðabliks ogKRí Iceland Express- deild kvenna í Smáran- um. 21.50 Leikur Cincinnati-Indianapolis í NFL-deildinni beint á Sýn. „Þetta var rosalegt," sagði Logi Geirsson, leikmaður Lemgo, um at- vik snemma í leik Lemgo og Dússeldorf í þýsku úrvalsdeildinni þar sem Markús Máni Michaelsson meiddist. Logi er nú sjálfúr að jafna sig af meiðslum og var því meðal áhorfenda á leiknum en Asgeir Örn Hallgrímsson skoraði þrjú mörk fyrir Lemgo sem vann leikinn, 41-26. „Löppinn var hreinlega í vinkli enda fór hnéskelin alveg á hliðina," sagði Logi í samtali við DV Sport um meiðsli Markúsar. Sjálfur líkir hann þessu við brot Marco van Basten á Dananum Henrik Larsen á EM 1992 en líkt og þá færðist hnéskelin úr stað. Markús fór í gær til sérfræðings sem gat þó veitt honum þau gleðitíð- indi að krossböndin væru enn heil. Markús er þó með slitið liðband í hné og verður ffá í einhvem tíma. Hann gerir sér þó vonir til að vera orðinn klár í tæka tíð fyrir Evrópumeistara- mótið í Sviss sem hefst í janúar næst- komandi. Logi segir að læknir Lemgo hafi strax hlupið til og aðstoðað Markús. „Hann var ekkert að spá í neinum formsatriðum heldur hljóp rakleitt inn á völlinn. Læknirinn okkar er . | Í;S> .þ;:, 'J&jg 0, K ■■ -V. Eins og hjá Larsen Markús líkti meiðslum sínum við þau sem Daninn Henrik Larsen varðfyriráEM 1992 þegarMarco van Basten braut a honum í undanúrslitaleik mótsins Hér eigast þeir við íleiknum. Logi Geirsson Segir meiðsli Mark- úsarhafa litið afar illa út. Traustur vinur Logi Geirs- son var Markúsi Mána innan handar eftir að sá síðarnefndi meiddist i leiknum. Markússjálfur öskraði af sársauka og það sló þögn á áhorfendur í höUinni mjög virtur í þessum ffæðum og sýndi Markúsi mikla hjálpsemi. Markús sjálfiir öskraði af sársauka og það sló þögn áhorfendur í höllinni. Marg- ir leikmanna á bekknum gripu hreinlega um andlit sín og fundu eflaust mik- ið til með Markúsi. En það er greini- legt að Markús hafi sjálfur ekki alveg áttað sig á hvað væri á seyði því hann hélt um hnéð á sér og reyndi að setjast upp.“ Eins og sést á meðfýlgjandi mynd var Logi félaga sínum innan handar og fylgdi honum inn í búningsklefa þar sem hlúð var að honum. „Hann er mikið karlmenni," segir Logi og hlær. „Hann gleypti bara eina pan- odil og vildi svo fara strax aftur fram og horfaáleikinn." Markús skoraði fyrstu tvö mörk leiksins og segir Logi á heimasíðu sinni að það hafi verið greinilegt að hann ætlaði sér að skora tíu mörk leiknum, hið minnsta. Hann gefur leiknum annars ekkert sérstaklega háa einkunn. „[Leikmenn Dússeldorfl sáu aldrei til sólar nema kannski fyrstu 5 mínúturnar af leikn- um og var það allt Markúsi Mána að þakka." Markús meiddist strax eftir að hafa skorað annað mark sitt í leiknum og var það í eina skiptið sem Dússeldorf komst yfir í leiknum. eirikurst@dvJs Stórleikur spænska boltans fer fram á Bernabeu á laugardagkvöldið HINNEINISANNI „CLASSC0"MILLI REAL MADRID 0G BARCEL0NA Stórleikur spænsku úrvalsdeildcirinnar fer fram á Bernabeu í Madríd á morgun og verður í beinni útsendingu á Sýn frá klukkan 18.50. Barcelona hef- ur skoraði 24 mörk í síðustu sexleikjum sínum í öll- um keppnum og pressa spænskra fjölmiðla hefur verið á mönnunum hans Frank Rijkaard enda hef- ur liðið sett á svið hveija sýninguna á fætur annarri. Ronaldinho og Samuel Eto’o halda áfram að leika vamarmenn andstæðinganna grátt og nú hefur argentínski snillingurinn Lionel Messi bæst í hópinn en Messi sem er 18 ára hefur verið líkt við landa sinn Diego Maradona og ekki af ástæðu- lausu. „Ég er frekar ósáttur með sjónarhorn sumra spænskra fjölmiöla sem tala bara um verðandi sig- ur Barcelona. í sögunni hefur þetta verið mjög erf- iður völlur fyrir Barcelona að spila á og við erum að spila gegn liði fullu af stolti sem ædar að gefa allt til þessa að gleðja stuðningsmenn sína. Þetta verður ifóðlegur leikur milli tveggja erkifjenda og ég vona að þetta verði skemmtilegur fótboltaleikur," sagði Frank Rijkaard fyrir leik en Bracelona vann sinn fyrsta leik á Bemabeu undir hans stjórn. Eftir slaka byrjun þá hefur Real Madrid tekið við sér og mætir með nú til leiks með tvo sigurleiki í röð á bakinu og auk þess hafa þeir endurheimt lykilmenn úr meiðslum. Ronaldo, Zinedine Zida- ne, lulio Baptista og Ivan Helguera em allir klárir í leikinn en Ronaldo hefur verið frá í rúman mán- uð vegna ökklameiðsla. „Ég hef farið í gegnum 20 daga sjúkraþjálfun, hef mætt á nokkrar æfingar og er tilbúinn í leikinn," sagði Ronaldo sem hafði gaman af ummælum Rijkaard sem sagðist vonast eftir því að brasilíski framherjinn yrði með. „Ég veit ekki hvort hann verður svona ánægður með það eftir leikinn," sagði Ronaldo sem spáir erfið- um leik fyrir Samuel Eto’o sem lét móðgandi um- mæli falla til stuðningsmanna Real Madrid í fyrra en hann lék einmitt áður hjá Madrid. „Eto’o fær þær viðtökur sem hann á skilið. Stuðningsmenn Real Madrid verða að gefa tóninn líkt og leik- mennirnir inn á vellinum," sagði Ronaldo sem er þremur mörkum á eftir Eto’o í baráttunni um markakóngstitilinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.