Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2005, Blaðsíða 30
30 LAUGARDACiUR 19. NÓVEMBER 2005
HelgarblaO DV
Athafnakonan
Berglind Asgeirsdóttir átti og rak Trimform
Berglindar í mörg ár en þurfti aö selja stofuna eftir alvarlegt
bílslys þar sem hún hálsbrotnaði. Berglind fékk hugmynd um
að opna hverfisverslun sem væri persónuleg og notaleg. Hún
er alin upp í verslunarrekstri, þar sem móðir hennar átti
tískuvöruverslunina Rítu í mörg ár. Berglind hjálpaði mömmu
sinni í búðinni frá því hún var 12 ára, þannig að hún hefur
ekki langt að sækja áhugann fyrir tískufatnaði.
snui*tíöuciciimu
Jj .d ./y-
Tiskukonan Berglind
Berglind i nýjustu Zik Zok
versluninni i Mörkinni.
DV-mynd Volli
„Ég lenti í alvarlegu bfl-
slysi og varð að selja Trim-
form Berglindar," segir
Berglind Ásgeirsdóttir, eig-
andi Zik Zak-verslananna
en hún hálsbrotnaði í al-
varlegu bflslysi og varð að
finna sér annan starfsvett-
vang. „Ég er alin upp í
tískuversluninni Rítu sem
móðir mín átti og rak í
mörg ár, og ég vildi opna
hverfisverslun sem hefði
viðkunnanlegt og per-
sónulegt viðmót," segir
Berglind og bætir við að
hún vildi verslun með allar
stærðir fyrir allar konur.
Opnaði fyrstu búðina
2000 í Brekkuhúsum
Berglind opnaði fyrstu
verslunina í Brekkuhúsum
í Grafarvogi þar sem henni
tókst að fanga þessa nota-
lega og persónulega þjón-
ustu sem móðir hennar
hafði í Rítu. Verslunin varð
gríðarlega vinsæl á ör-
skömmum tíma og Berg-
lind opnaði í kjölfarið
verslun í Hamraborg, því
næst Firði í Hafnarfirði, en
svo fór hún að líta aðeins
út fyrir höfuðborgar-
svæðið því konur voru
duglegar að koma í búðir
hennar alls staðar að af
landinu, svo næsti við-
komustaður var Hafnar-
gata í Keflavík en sú
nýjasta er í Mörkinni í 500
fermetra húsnæði með út-
sölumarkað á neðri hæð-
inni.
Ekki erfitt
Berglind segir að þetta
sé ekki erfitt á nokkum
hátt. „Þetta veltur allt á
hugarfarinu, hvort þér
finnst þetta erfitt eða ekki,
hugarfarið skiptir svo
miklu máli í öllu sem þú
tekur þér fyrir hendur,"
segir Berglind og bætir við
að móraliinn og viðmótíð í
öllum hennar verslunum
sé svo gott, fólk kemur og
vinnur hjá henni og fer
ekki, heldur bara bætist
við starfsfólk. Berglind hef-
ur náð að fanga þetta and-
rúmsloft sem hún óskaði
eftír, persónuleg og góð
þjónusta í öllum hennar
verslunum.
Vildi búðir með flott
föt fyrir konur í öllum
stærðum
„Ég var á þessum tíma
alltof þung og vildi verslun
með flott föt fyrir konur í
öllum stærðum," segir
Berglind og bætir við að
fötin hennar séu öll frá
Danmörku, hún hefur far-
ið til Parísar og Amster-
dam og þar séu fötin öll í
svo litíum stærðum að þau
passi ekki fyrir okkur ís-
lensku konumar.
Fötin í Zik Zak em í
stærðum 36-56, stærðir
fyrir allar konur, föt sem
em tískuföt fyrir utan það
að verðið er í algjöru lág-
marki.
Áhugamál eru ferða-
lög og börnin
Berglind hefur ekki
mikinn tíma aflögu, en
þann tíma nýtir hún í
faðmi fjölskyldunnar og
sinnir bömunum og
hundinum á heimifinu.
Þau eiga hund sem hún
og fjölskyldan hefúr mikið
dálæti á. Einnig hefur hún
mikinn áhuga á að rækta
líkamann og æfir stíft.
Ferðalög em hfutí af til-
vem hennar og þeirra nýt-
ur hún svo sannarlega í
starfi sínu.
maria@dv.is
Heiða Björk Ingadóttir starfar sem sjúkra- og slökkviliöskona.
Helgarblaðið fékk að forvitnast um starfið hennar og hvern-
ig það er að vera eina konan á stórum karlavinnustað.
Eina slökkviliðskonan
Heiða Björk mætir í vinnuna
sína hjá Slökkviliðinu klukkan
7.30 á morgnana og stendur tólf
tíma vaktir. Slökkvistöðvamar
em fjórar, ein í Skógarhlfð, önn-
ur í Halharfirði, ein á Tunguhálsi
og sú síðasta á Reykjavíkurflug-
velli og skiptíst hún á að vera á
öllum þessum stöðvum.
Heiða Björk hafði kennt
skyndihjálp í mörg ár og gekk í
Flugbjörgunarsveit Reykjavíkur,
þar sem áhuginn kviknaði á
sjúkraflutningastarfinu. „Þetta
var ekki draumastarfið en þetta
er mjög skemmtilegt og fjöl-
breytt,“ segir Heiða og bætir við
að starfið sé mjög gefandi. Hún
kennir enn skyndihjálp með
sjúkra- og slökkvistarfinu auk
þess sem hún er liðsmaður í
Flugbjörgunarsveit Reykjavflcur.
Hún væri alveg tii í hafa fleiri
konur í þessu starfi, því það er
einmanalegt að vera eina konan
innan um alla þessa karlmenn.
Hún segir samt ekki erfitt að vera
eina konan á svona stórum
karlavinnustað: „Það er ágætt að
vera innan um alia þessa karl-
menn," segir Heiða Björk að lok-
urn. maria@dv.is
Elfn Björg Guömundsdóttir starfar sem innkaupa- og sölustjóri hjá heildversl-
un. Elfn Björg setur upp tfskusýningar viö ýmis tækifæri sem og að vera leið-
beinandi f módelbransanum. Hún var danskennari til margra ára og það nýt-
ist henni vel sem hönnuður á tfskusýningum. „Tfskusýningar eru eitthvað sem
ég þekki mjög vel, ég hef starfað í þessum bransa í mörg ár sem módel og
núna sem hönnuður á tfskusýningum," segir Elín Björg.
Hún er á fullu þessa dagana með vinnunn i að læra förðunarfræði hjá förðun-
arskóla Risku. Hún segist njóta þess alveg f botn og löngu hafi verið kominn
tfmi á að hún færi í skóla. Elín Björg hefur mikinn áhuga á snyrtivörum og öllu
sem við kemur tfsku og förðun. Það var heldur ekki úr vegi að fá að kikja f
snyrtiveskið hennar, þar sem ýmislegt skemmtilegt er að finna. „£g er mjög
hrifln af að Ifta sem náttúrulegast út, enda er það mikið f tfsku núna," segir
Elín Björg.
Maskari frá Yves Saint
Laurent
„Bestí maskari sem ég hef
kynnst," segir Efín Björg, en hún var
kynnt fyrir þessum maskara af vin-
konu sinni fyrir nokkrum árum og
hefur ekki notað neinn annan
síðan.
„Hann
rykkir og fengirl
og gerir augna-f
hárin margföld." !
Þetta er maskari’'
sem hún notar á hveijum
degi auk þess sem hún not-
ar hann þegar kflct er út á
lífið. „Það sem gerir hann
svona góðan er að«
því meira sem þú*
setur af honum því meiri
verða augnahárin," sem á vel við
við þegar farið er út.
og ætlar ekki að skipta.
Blautur kinnalitur frá Mac
„Þessi kinnalitur er það allra nýj-
asta frá Mac, set hann á puttann og
dreifi með höndunum og það sem
er svo frábært við hann er að ég
nota hann sem varalit lflca!" Þetta er
það allra nýjasta í förðunarvörum,
frábært að geta nýtt kinnalitinn
sem varalit. „Algjör snilld," segir
Elín Björg.
Púðurblýantur frá Riska
„Þennan blýant nota ég undir
annan farða og sem grunnfarða fyr-
ir smokie-förð- _______
’un,"
segir Elín Björg. Þennan
blýant notar hún á hverjum degi.
Greinilegar nýjungar í snyrtí-
bransanum.
Bronsgel frá Kanebo
„Nota þetta í staðinn fyrir meik,"
segir Elín Björg, „þetta er gel sem
frískar og gefur andlitínu ferskan
blæ. Mikfu betra en meik á alfan
hátt,"
Hún hefur notað þetta í
mörg ár
Gloss frá No Name
„Eg mun látast þegar
þetta klárast því No
Name er ekki lengur til,"
segir Elín Björg og dæsir, -
en hún er búin að nota
þetta gloss í mörg ár.
Þetta glæra gloss helst vel á
og er mjög þykkt. Hún notar það
mikið yfir varalití í öllum litum, sem
gerir varimar glansandi og djúsí.