Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2005, Qupperneq 36
36 LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005
Helgarblað DV
Helgi Björnsson er einlægur, ljúfur og öruggur í framkomu.
Við spáðum í Helga og konu hans, Vilborgu Halldórsdóttur,
sem stödd er á Ítalíu þegar viðtalið átti sér stað og ræddum
um poppbransann, frægðina og nýju plötuna sem er mjúk
eins og Helgi sjálfur orðar það.
„Það er allur gangur á því. Fer
eftir mönnum og málefnum," svar-
ar Helgi Björnsson, sem gaf nýverið
út plötuna Yfir Esjuna, aðspurður
um hvernig plata verður til. „Við
tókum þessa plötu upp lifandi eða
„live“. Tókum bara upp eins mikið
lifandi í stúdíói og við gátum. Allur
hljóðfæraleikur stóð.
Þetta var rosalega gaman en
slíkur háttur á upptökum er sjald-
gæfari í dag með tækninni. Platan
er orginal. Þetta er lífrænt," segir
hann og hlær.
Tólfperlur
„Ég tek tólf perlur eftir Magnús
Eirfksson á plötunni. Þetta eru lög
sem allir þekkja. Ég er að nálgast
tónlistina með djassívafl. Platan er
mjúk og stemmningsrík," útskýrir
Helgi ánægður og mjög stoltur að
eigin sögn. „Mér hefur tekist það
sem ég ætlaði mér. Að finna nýja
fleti á lögunum hans Magnúsar.
Platan er rosalega ljúf og þægileg.
Um að gera að kveikja á kertum og
hafa það næs þegar hlustað er og
hafa þægilegan bakgrunn. Svo má
líka aðeins gefa í og hlusta."
Rómantískur Helgi
„Já ég er rómantískur," svarar
Helgi án þess að hika og útskýrir
umbeðinn að í hans huga er róm-
antík væntumþykja og ástríki og
að vera fær um sjá fagurfræðina í
því að nálgast aðra manneskju
sem maður elskar. „Tónlistin og
söngurinn er náttúrulega algjör
sáluhjálp fyrir alla og þá sérstak-
lega ef fólk er lokað að eðlisfari,"
svarar hann þegar talið berst að
stjörnumerkjunum. „Þá losar það
svo mikið um tilfinningalega
spennu. Ég mæli hiklaust með því
að fólk fari að syngja eða gera eitt-
hvað tengt söng. Glamra músík
eða syngja í kór er algjör sálu-
hjálp."
Frægðin getur verið erfið
Við spurðum Vilborgu sem
stödd er erlendis þessa dagana
hvernig væri að vera gift poppara.
„Það er örugglega eins og að vera
gift hvaða ágætismanni sem er,
nema ef vera skyldi fyrir eitt: Fólki
finnst alveg sjálfsagt að ræða við
hann löngum stundum
jafnvel þótt það þekki
(SpáðíHelga oqVilborqu
Krabbi -fæddur 10. júli 1958 Tviburi-fædd 18.júnM957
Þau eru bæði mjög ævintýragjörn og forvitin að eðlisfari og
gætu eflaust eytt öllum frítíma sínum I að kanna heiminn og
upplifa dásemdir tilverunnar ef þau gætu. Ef marka má
stjörnur þeirra sameinaðar þá leyfir krabbinn (Helgi)
tvíburanum (Vilborgu) að sýna sér heiminn og aðstoða hann við
að opna hjarta sitt sem á það til að vera lokað gagnvart
umhverfinu. Þau dylja ekki tilfinningar sínar fyrir hvort ööru hetdur
skoða ávallt vandiega hversþau vænta hvort aföðru og hvað þau kjósa
sjálf að teggja af mörkum i sambandinu. Hófsemi er lykillinn að
framhaldinu þar sem jákvæðar tilfinningar upphefja þau bæði sameinuð
svo sannarlega. Framtið þeirra einkennist aflífsfyllingu og innri fögnuði.
hann ekki neitt, líka þegar hann er
með mér. Við erum kannski í okk-
ar „quality time". Svo getur verið
absúrd þegar stúlkukorn eru að
klessa sér upp á okkur þegar við
erum úti á lífinu, bara af því hann
er frægur." Helgi jánkar og bætir
við: „Það getur verið mjög erfitt að
vera frægur. En á íslandi er maður
bara þekktur. Það gefur manni alls
ekkert í sjálfu sér tilfinningalega,"
segir hann greinilega á jörðinni
hvað það varðar og bætir við ein-
lægur: „Það er kannski mikið horft
og fylgst með og svo getur maður
lent á milli tannanna á fólki þó
maður eigi það ekki endilega skilið
en það er um að gera að vera með
fæturna á jörðinni í poppbransan-
um og láta það ekki trufla sig þó
fólk þekki mann."
Við kveðjum Helga, óskum
honum velfarnaðar og spyrjum
hann að lokum hvað skipti hann
sannarlega máli. Hann svarar
samstundis: „Konan mín, fjöl-
skyldan, hestarnir og sveitin."
elly@dv.is
SAMANBURÐUR
'Stjöf'/uune/*/ýartfiít
Elma Lísa
klárar verkiD
Saman eru þau ósigrandi ef meyjan Elma Lísa Gunnarsdóttir sér
um framkvæmdir og hrúturinn Reynir Lyngdal um hugmyndavinn-
una. Meyjan er drífandi og ör þegar kemur að því að ljúka verkefni
sem krefst mikillar vinnu. Hrúturinn er fæddur hugmyndasmiður og
langt frá því að vera smámunasamur. Þau eru fær um að uppfylla sína
innstu drauma ef þau passa sig að gleyma ekki að efla öllum stundum
styrkinn sem býr innra með þeim, greind, hæfileika og ekki síður öfl-
ugar ástríður í sambandinu.
Reynir Lyngdal Sigurðsson Elma Lísa Gunnarsdóttir
26.03.76 07.09.73
Hrútur (21. mars -19. april) Meyja (23. ágúst - 22. sept)
- keppnisharður
- sterkur persónuleiki
- gæfusamur
- bjartsýnn
■ sigurvegari
- vandlát
- hógvær
- heiðarleg
- glæsileg
- huglæknir
Helgin framundan
Með frúnni til Ameríku
Einar Bárðarson er upptekinn
maður en alltaf til í spjall. Við
spurðum hann út í helgina
framundan. „Á föstudagskvöldið
tek ég á móti herramönnum og
konum frá Bretlandi sem koma
hingað til að kynnast Nylon-
hópnum. Annars byrjar laugar-
dagurinn strax um morguninn
með plöggi fyrir Nylon-tónleik-
ana sem verða haldnir klukkan
fjögur í Loftkastalnum. Fyrir tón-
leikana bjóðum við erlendu gest-
unum í Bláa lónið og komum um
klukkan þrjú í bæinn beint á tón-
leikana. Það er ýmislegt sem þarf
að huga að eins og viðtöl sem
stelpurnar eru bókaðar í og æf-
ingar. Á sunnudag vakna ég
snemma því erlendir fjöl-
miðlar munu þvælast um
Reykjavík með Nylon og
skoða uppáhaldsstaðina
þeirra. Reyndar er ég á
fullu að undirbúa mynd-
bandið Hjálpum þeim og
huga að undirbúningi fyrir
útgáfutónleika Garðars
Cortes sem verða 3. desember
næstkomandi."
Á ekki að sinna konunni yfir
helgina? „Eftir helgina," svarar
Einar afslappaður og jákvæður að
vanda og bætir við:
„Við ætlum að
fara í smá
mfllistríða-
frí. Heim-
sækjum Am-
eríku á i
þriðjudag-
inn. Bara við
tvö."