Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2005, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2005, Blaðsíða 39
DV Helgarblað LAUGARDAOUR 19. NÓVEMBER 2005 39 Hermundur Rósinkranz er einn þekktasti talnaspekingur og miðill landsins. Færri vita að hann hefur átt við mikið þunglyndi að stríða síðustu misseri. Hann var kominn í alvarlegar sjálfsmorðshugleið- ingar og sá enga leið út úr sínu svartasta myrkri. Á opinn og einlægan hátt segir Hermundur Helgar- blaðinu frá hugsunum sínum, miðilsgáfunni og hvað varð til þess að hann tók á sínum vandamálum. Hann var alinn upp af áfengissjúkri móður og ofbeldisfullum föður. Hermundur Rósinkranz var alinn upp hjá foreldrum voru báðir drykkfelldir, en hann missti föður sinn 5 ára og man lítið eftir honum. Faðir hans var mjög drykkfelldur og ofbeldishneigður, en Hermundur var of ungur þegar faðir hans féll frá til þess að muna eftir því. Eftir fráfall föður Hermundar fór mamma hans að drekka mikið. „Hún var ekki þessi hlýja kona sem tók utan um krakkana sína og sagði þeim hvað henni þætti vænt um þá,“ segir Hermundur þegar hann rifjar upp minningar frá bam- æsku. Móðir hans var einstæð eftir að faðir hans lést, gerði lítið annað en að vinna, sofa, borða og drekka og hafði lítið afgangs til að gefa þeim systkin- um. Sérstaklega Hermundi, að hon- um finnst. Hann fékk litla ást og um- hyggju þegar hann var að alast upp og honum fannst sem yngri bróðir hans fengi aiia ástina og umhyggj- una. „Ég var alltaf hræddur um mömmu þegar hún fór út, ég beið eftir að hún kæmi heim og lá and- vaka þangað til ég heyrði í lyklinum í skránni, þannig sef ég enn mjög illa í dag," segir Hermundur og konan hans tekur undir það. Hermundur gerði ýmislegt til þess að reyna að ná athygli móður sinnar sem hann þráði svo mikið. „Ég fór út í það ómeðvitað að skemma hluti til að fá athygli sem var neikvæð," segir Hermundur sem telur að þessi erfiða æska sé rótin að þunglyndinu sem hann berst gegn. Kenning Hermundar er sú að hann hafi búið sér til sinn eigin heim meðan hann var að vaxa úr grasi því ofbeldið og drykkjan er allt annað en uppbyggjandi fýrir ungan dreng. „Það má sega að ég sé haldinn ástar- fíkn, leitandi eftir ást, umhyggju, hlýju og viðurkenningu," segir Her- mundur og bætir við að hann heyrði yfirleitt það neikvæða og hlustaði ekki á það jákvæða. Fyrsta hjónabandið erfitt Hermundur var giftur fyrri konu sinni í 22 ár og á með henni dætum- ar Önnu 14 ára og Kristínu 19 ára. „Ég var alltaf eins og lifandi dauður á þessum tíma. Ég átti enga vini, engin áhugamál, fór aldrei neitt. Ég vann, svaf og át, því í æsku hafði ég aldrei neina karlkyns fyrirmynd nema að vinna endalaust. Það var eina fyrir- myndin sem ég hafði af karlmönn- um,“ segir Hermundur sem kjmitist Pálínu núverandi konu sinni eftir að hann skildi. „Pálína er mjög stór og mikill per- sónuleiki. Alveg í byrjim ögraði hún mér mikið, því hún átti fyrirtæki og var algerlega sjálfstæð kona, einstæð móðir með flögur böm. Hún er minn besti hlustandi og ögrar mér enda- laust því hún er svo dugleg að finna út hverjir em mínir veikleikar og styrkleikar," segir hann. Hermundur upplifði sig alltaf sem lítilfjörlegan í kringum hana og hún fór í hálfgert mömmuhlutverk, var mamma allra á heimilinu. Það hlutverk fólst í því að vera endalaust að peppa Hermund upp í að gera hitt og þetta og sann- færa hann um að hann gæti gert fullt af hlutum. Hermundur hefur alla tíð verið of- boðslega afbrýðisamur í sínu seinna hjónabandi og óömggur með konu sína því frelsið sem hún veitti honum gat hann ekki að höndlað. Sjálfsmorðshugsanir og nið- urbrotshugsanir Þunglyndið komst á alvarlegt stig í fyrrafiaust, þó að Hermundur trúi því að hann hafi verið þunglyndur ailt sitt líf. Niðurbrotshugsanir náðu al- gerlega stjórn á lífi hans, honum fannst hann óömggur og var mjög hræddur við höfriun. „Hinn heilbrigði ég er niður- brotskarakter. Ég hef ekkert sjálfsálit og trúi ekkert á sjálfan mig þegar ég er kominn úr vinnuumhverfinu og það er sú persóna sem fjölskyldan mín sér," segir Hermundur þungur á svipinn og bætir við að hann hafi verið óbærilega þunglyndur síðasta vetur og jafnvel með ranghugmyndir. „Ég leyfði neikvæðum hugsunum að koma upp á yfirborðið. Þegar ég mætti til vinnu til að lesa fyrir fólk var eins og ég klæddi mig úr neikvæðu kápunni, skildi öll leiðindi eftir heima og gat einbeitt mér að fólkinu sem var að koma til mín og ráðlagt því fullt af jákvæðum og uppbyggilegum hlutum þótt ég gæti engan veginn farið eftir þeim sjálfur í eigin lífi. Ég heyri allt sem ég segi en get ekki farið efrir því sem ég er að ráðleggja öðr- um, þunglyndið náði algjörum tök- um á mér," segir Hermundur en hann gjörbreyttist í útliti á þessum tíma, leit miklu verr út en hann hafði nokkum tíma gert, reifst stanslaust við konuna og ímyndaði sér að hún væri að fara frá honum. Þunglyndið var farið að ná það miklum tökum á honum að hann var farinn að hugsa um sjálfsmorð. „Það er svo skrýtið þegar þessi lífsneistí fer," segir Hermundur og segist h'ða best í kringum fólk, þá geti hann gleymt sínum hugsunum. Hann fór inn í sjáfsmorðshugsanim- ar en aldrei djúpt. Hann kveið fyrir öllu sem hann þurfti að taka sér fyrir hendur, sama í hvaða formi það var, hvort sem það var samskiptí við fjöl- skylduna eða eitthvað verklegt sem sneri að hans eigin hagsmunum, honum fannst hann ekki ráða við það. Ég var aleinn og enginn skildi mig „Fólk sem vinnur á heilbrigðis- stofnunum, hvort sem um er að ræða lækna eða hjúkrunarfólk, fær áfalla- hjálp eftir erfið tilfelli, en það er ekki í boði fyrir okkur sem erum miðlar og upplifrun oft áföll í starfi," segir Her- mundur sem var á mörkum þess að skilja við konu sína í dýpsta þung- lyndinu. „Konan mín gafst upp á mér á tímabili því hún nenntí ekki að vera í mömmuhlutverkinu lengur og neyddi mig til að horfast í augu við sjálfan mig. Hún gerði sér htið fyrir og fór af landi brott í 3 mánuði sem í fyrstu gerði mig alveg bijálæðislega kvíðinn. Ég hef aldrei verið einn, einn með minni orku, aldrei kynnst sjálfum mér og kunni ekki að vera einn," segir Hermundur sem æddi fyrsm dagana um íbúðina og vissi ekkert hvað hann átti að gera við sjálfan sig. „Ég var stanslaust í nei- kvæðum hugsunum, enginn skildi mig, var aleinn, aflir að gagnrýna mig, enginn sagði neitt fallegt við mig, ég leyfði þessum hugsunum að koma," segir Hermundur sem reyndi að hemja hugsanir sínar með öUum ráðum. „Hættu að hugsa svona, af hveiju ertu að hugsa svona? spurði ég sjálf- an mig stöðugt." Hermundur leitaði allra ráða til þess komast út úr myrkr- inu og leitaði meðal annars til guðs. „Ég bað til guðs um að taka þessa vanhðan, en hann getur það ekki. Maður verður að vinna í þessum málum innan frá sjálfum sér," segir hann. í tvo mánuði gerði hann ekki neitt nema að bíða eftir konan kæmi heim. „Ég hvorki hafði samband við fólk né bauð neinum heim því þung- lyndið yfirtók allt mitt líf og ég lifði einn i myrkrinu. Ég var kominn með algerar ranghugmyndir gagnvart heiminum og fólki í kringum mig, gerði ekkert annað en að vinna, borða og sofa. Þetta er ekkert mikið öðmvísi en að vera alkóhólisti," segir Hermundur og bætir við að það að taka einn dag í einu sé mikilvægt og það sé mjög auðvelt að fara í þessar niðurbrotshugsanir. Á þessum þrem- ur mánuðum sem hann var einn kynntist hann sjálfum sér í fyrsta skiptí á ævinni og neyddist til að horfast í augu við veikleika sína. „Það bjargaði hfi mínu, því enginn læknir, sálfræðingur eða geðlæknir getur hjálpað þér nema þú sért tilbú- inn að hjálpa þér sjálfur því þetta er allt í höfðinu á manni." Andlegi heimurinn opnast Árið 1993 opnaðist andlegi heim- urinn fyrir Hermundi og hann helltí sér í hann af miklum krafti. Hann hefur alltaf verið næmur og séð hluti sem aðrir sjá ekki. Áhuginn lá fyrst og fremst í tölum því hann fann að styrkur hans og hæfileikar lægju fyrst og fremst í að lesa í þær. Hermundur tók líka að starfa með andlegum hóp- um sem hann hefur fundið sig með í lífinu. „Ég hef tekið eftir fólki í kring- Hermundur leítaði ítrúna Hann segirsig sjálfan vera ábyrgan fyrireigin liðan. um mig sem er ekki í þessum heimi, líf eftir dauðann er staðreynd. Við erum miklu meira en það sem við sjáum," segir Hermundur. Síðustu ár hefur hann lært meira og meira um sína hæfileika og lært að nýta sér þá. Hann er með útvarpsþátt á Létt 96,7 öll fimmtudagskvöld milli 9 og 11 þar sem hann opnar fyrir sím- ann og les í tölur fólks ásamt því að spá fyrir því í leiðinni. Honum finnst ótrúlegt hvað hann nær að breyta al- gerlega um karakter þegar hann er í þessum andlegu málefnum og hjálp- ar mörgu fólki án þess að geta hjálp- að sjálfum sér. Vinnan hans er samt eitt af því sem hefur hjálpað honum hvað mest til að takast á við þung- lyndið og horfast í augu við sín vandamál. „Það er mikil blessun að fá að hitta svona mikið af fjölbreyttu fólki," segir Hermundur og lítur upp. „Mér finnst ég vera að komast út úr mesta myrkrinu, ég sé ljós við enda gangs- ins, en það er erfitt að komast þang- að.“ Hann á sterka konu sem leyfir honum ekki að vera í miðilshlutverk- inu heima hjá sér. „Lyf gera bara visst gagn, þetta veltur allt á manni sjálfum og það er erfitt að stíga út úr því umhverfi sem þú þekkir og í það umhverfi sem þú þekkir ekki, allir eru hræddir við það sem þeir óttast mest." Oft þegar hann var að leggja spilin fyrir fólk fannst honum hann vera að leggja þau fyrir sjálfan sig. „Ég sé stundum mitt líf í þeirra spilum, sérstaklega hjá fólki sem er haldið depurð eða þung- lyndi," segir Hermundur og bætir við að honum finnist hann draga að sér vandamál annarra þegar hann er að lesa fyrir annað fólk. Ekkert skiptir máli „Það er rosalega stór gjöf að fá að vera einn, spegla sig og þora því og taka breytingunni. Lyf hjálpa til að taka spennuna en fjarlægja ekki hina raunverulegu vanh'ðan. A henni verð- ur maður að taka sjálfur," segir Her- mundur og bætir við: „Ef þú gerir ekkert í þínum málum endar þú eins og margur annar í að vera alltaf á þunglyndislyfjum. Þó að ég öskri á hjálpina verð ég að taka fyrsta skrefið sjálfur, þetta er allt und- ir manni sjálfum komið, þú getur ekki ætlast til að aðrir taki ábyrgð á þér eða að fjölskyldan skilji þig. Vandamálið er alltaf mitt og ef ég geri ekkert í málunum sit ég fastur í þung- lyndinu, byijunin er að taka h'til skref í einu í að breyta hugsuninni, þetta er alltaf spuming um að þora," segir Hermundur Ósáttur við framkomuna við fjölskylduna „Sá sem er í þunglyndi sér ekki hvað hann gerir öðrum og þessa miklu þörf fyrir að fá athygli og ást.“ Fjölskylda Hermundar stóð fast á því að hann gerði eitthvað í þessu einn og horfðist í augu við það sem hann hafði verið að gera. Hann er virkilega ósáttur við sína ffamkomu gagnvart fjölskyldu sinni og hvað hann hefur lagt mikið á hana með sinni fram- komu. „Aðalatriðið er ekki að fá fyrir- gefningu því þá er svo auðvelt að gera þessa hlutí aftur. Ég fékk ekki fyrir- gefninguna, umhyggjuna og það sem ég var að gera kröfur til. Um leið og ég næ jafnvægi sjálfur næ ég jafnvægi með fjölskyldunni minni," segir Her- mundur sem er búinn að ganga í gegnum mikla sjálfsskoðun síðustu misseri. Hann h'tur björtum augum til ffamtíðar og heldur áfram að vinna f sjálfum sér. maria@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.