Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2005, Page 48
48 LAUGARDAGUR I9. NÓVEMBER 2005
Fréttir 0V
Prinsinn krýndur
Á þessum degi fyrir 56 árum
(1948) var Rainier 3. krýndur prins i
Mónakó. Hann hafði þó tekið við
völdum nokkrum mánuðum fyrr
eða strax eftir lát afa hans, Lúðvíks
II.
Rainier fæddist í Algeríu 31. maí
1923 og var sonur Péturs prins og
konu hans, Charlotte prinsessu.
Hún var eina barn Lúðvíks II. Þar
sem ríkiserfingi gat ekki verið kven-
maður gekk krúnan til Rainers.
Brúðkaup Rainiers og hinnar
bandarísku leikkonu Grace Kelly
vakti heimsathygli árið 1956. Áður
hafði Rainier búið með frönsku
leikkonunni Giséle Pascal, en parið
skildi eftir að læknir hafði úrskurðað
hana ófrjóa. Hún giftist þó síðar og
átti fjölda barna.
Rainier og Kelly eignuðust þrjú
böm, þau Karólínu, Albert og Stef-
aníu. Fjölskyldan kom hingað til fs-
lands í heimsókn árið 1982,
nokkrum mánuðum áður en Kelly
lést í bílslysi. Rainier sjálfur lést
þann 6. apríl á þessu ári eftir lang-
vinn og erfið veikindi.
Ríkiserfinginn, Albert prins verð-
ur krýndur með viðhöfn í dag í
Mónakó og eru Ólafur Ragnar forseti
og kona hans viðstödd.
Mónakó er næst minnsta rfki
heims, á eftir Vatikaninu. Stærsta
verslunarmiðstöð í heimi, The Mall í
Washington DC myndi komast
þrisvar sinnum fyrir í landinu, á
þeim 2 ferkílómetrum sem Mónakó
hefur til umráða.
Ur bloggheimum
Bjánahrollur
„Halldór Ásgrímsson,
forsætisráðherra,
sagði einnig nýverið
að honum sé bara
stéttsama hvort varn-
arliðið sé hérna á landi
eða ekki. Þeir mega bara al-
veg ráða því sjálfir og hana nú!
Þetta finnst mér ein afömurlegustu
stundum Halldórs, sérstaklega ef
haft er í huga að helsta ástæða þess
að ríkisstjórnin seldi integrity fslands
með skýlausum stuðningi við Iraks-
stríðið á sínum tíma, var til að
snobba fyrirkananum svo að þeir
myndu halda varnarliðinu hérna. Ég
fæ bjánahroll bara við tilhugsun-
ina.“
Kiðhildur Ólafsdóttir Kynd -
blog.central.is/kibban
Nett tremma
„Þarsem ég var við það að stíga inn
Isturtuna ímorgun tók ég eftir ein-
hverju á fleygiferð í sturtubotninum.
Ég þurfti náttúrulega að setja upp
gleraugun til að sjá hvað þetta væri.
Hefði betur sleppt því og
kallað bara strax á
Okezie þarsem þessi
risastóri kakkalakki
barðistfyrirlífisínu
liggjandi á bakinu og
spriklandi á fullu. Til að líta
á björtu hliðarnar á lífinu get
ég sagtykkur að ég öskraði ekkert
og var bara fegin að hann væri stór,
sjái maður lítinn lakka þá er frekar
líklegt að fjöldamörg systkini séu í
felum. Ég er hins vegar staðráðin í
að trúa að þessi hafi nú bara verið í
heimsókn, rétt nýkominn meira aö
segja."
Þórhildur Ingadóttir - kenguru-
blogg.blogspot.com
Víðfarinn kennari
„Reykvíkingurinn sem kennirmér
fjölmiðlafræði (sjá færslu þann 2.
nóvember) fór í síðustu viku, ásamt
nemendunum sem sátu tímann, að
ræða það hversu sjálfhverfir
Bandaríkjamenn væru. Var k
það rætt í þaula hversu
lítið þeir vissu um önnur
lönd, héldu að Evrópa
væri eitt land, vissu fæstir
að ísland væri til og þar fram
eftir götunum. Þá gat ég ekki orða
bundist lengur, enda enn í sjokkiyfir
því að kennarinn hefði hvorki komið
austurné vestur á land, aldrei!"
Esther Ösp Gunnarsdóttir -
giubb.biogspot.com
Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum andi stundar.
Berjumst saman gegn jmnglyndi
Bjami og Björk skrífa:
Við viljum vekja athygli á sam-
tökum þunglyndra hér á
höfuðborgarsvæðinu til að efla hug
og dug þeirra sem af sjúkdóminum
þjást. Við höfum hugsað okkur að
hittast tvisvar í viku, tala um hvemig
okkur líður og þannig hjálpa hvort
öðm með vandamálin. Félagsskap-
urinn er mikilvægur fólki sem okkur,
en eins og við þekkjum fer þunginn í
Lesendur
bylgjum, stundum líður manni illa
og stundum nokkuð vel. Við ætlum
okkur að halda stofnfund í gamla
bókasafninu í Hafnarfirði í kvöld
(laugardagskvöldið 19. nóvember)
klukkan 20.
Við stefnum að því að hittast og
vinna saman gegn þessum ógnvaldi.
Þegar við höfum komist almenni-
lega af stað og búin að kynnast get-
um við gert eitthvað skemmtilegt
saman, eins og haft karokí-kvöld,
fara í sumarbústað, á hestbak, í bíó
eða bara hressilegar gönguferðir.
Annars gemm við það sem vilji er til
þegar lengra er komið.
Það sem við viljum fá út úr svona
I Þunglyndir sam-
I einist Eiga ekki að
I standa einir.
hóp er að manneskjan sjái sig í réttu
ljósi, fái meira sjálfstraust og eigi
auðveldara með að kynnast nýju
fólki. Einnig er mikilvægt að við sjá-
um það að við stöndum ekki ein í
baráttunni. Við viljum líka sjá að það
skapist gott andrúmsloft innan góðs
félagsskapar.
100% trúnaður verður auðvitað
haldinn á öllum fundum um það
sem okkur fer í miUi. Við hvetjum
fólk til að líta á heimasíðuna fuf.is til
að fá frekari upplýsingar. Ef fólk vill
hafa samband við okkur persónu-
lega getur það sent tölvupóst á
bjarnibirk@hotmail.com eða
bryndis_erna@hotmail.com.
Vonandi sjáum við sem flesta.
Berjumst saman gegn þunglyndi.
Bjarni ogBjörk.
Áfram með hasshundana!
Nemandi í FB skrifar.
Ég las frétt þess efnis í
DV í gær að hasshundar
hefðu farið um FB í vik-
unni og gert tékk í stof-
um, matsal og fleiru. Ég
stunda sjálfur nám í skól-
anum og finnst ekkert
sjálfsagðara en að skóla-
stjórnendur bjóði fíkni-
eftiadeild lögreglunnar í
Lesendur
heimsókn til þess að leita að fíkni-
efnum. Fólk virðist sjá eitthvað að
því að lögreglan sinni eftirliti. Það er
bara ekkert að því. Þeir sem kvarta
undan hundunum eru þeir sem hafa
eitthvað slæmt á samviskunni.
Einnig skil ég ekki gagnrýni ein-
hverra mæðra nemenda í FB út af
þessu og tel
skýringar að-
ila sem að
málinu komu
góðar og
gildar. Ég vil
að stjómend-
ur framhalds-
skóla haldi
uppteknum
hætti áfram
og bjóði hundana
velkomna. Einnig
mættj bæta við eft-
irliti í ferðalög nemenda í skólanum.
Þá mætti koma enn meira í veg fyrir
fíkniefnamisnotkun og er það vel.
Áfram með hasshundana!
I dag
Á þessum degi árið 1897
var Blaðamannaíelag Is-
lands stofnað. Það er
eitt elsta stéttarfélag
landsins.
Égbýhjá brjáluð-
um nunnum
Ég er flutt á heimavist. Heima-
vist sem nunnur reka. Fannst það
alveg tilvalið því háskólinn er
hinumegin við götuna og vinnan
rétt hjá. Get nústaðfest að atvinnu-
titillinn segir ekkert til um mann-
eskjuna, að það er alls ekki alltaf
samasem merki milli nunnu og
kærleiks. Og guðshús er aðeins opið
öllum á orði en ekki á borði.
Þvflíkt sem ég þurfti að nuða,
puða og suða til að fá herbergi þama
... guð almáttugur. Svo hef ég ekki
hugmynd um hvað þær gera við
leigupeningana (sem er ekki lítið).
Ekki er hann notaður í matarinn-
kaup og alveg pottþétt ekki í hús-
gögn. Rúmið mitt er svo lítið og aum-
ingjalegt að þegar ég ætla að snúa
mér yfir á báldð dett ég fram úr. Ef ég
bylti mér þá renn ég, ásamt dýnunni,
af grindinni og niður á gólf. Held að
nunnumar hafi farið f halelújah-ferð
í fangelsi, séð klefana, komið til baka,
notað þá sem fyrirmynd, neglt kross
á vegginn og sagt: „FuUkomið“. Her-
bergið mitt í hnotskum.
Á þessum stað em reglur og agi
allt. Fékk ræðu frá systur Antikrist
um stelpu sem bjó einu sinni í mínu
herbergi og drakk mikið og borgaði
ekki leiguna, þannig að á endanum
urðu þær að henda henni út.
Brenndu síðan rúmið til að þessi
djöfullega hegðun endurtæki sig
ekki. Amen.
Hér er eldhús á hverri hæð fyrir
leigjendur. Áður en ég fór heim yfir
sumarið setti abbadísin stóran
miða á ísskápana: „Hættið að stela
matnum okkar eða við liringjum á
lögregluna!" Að sögn hafði einhver
stolið mjólk. Þegar ég kom aftur í
september vom miðarnir farnir.
Ég býst varla við því að einhver
hafi stoÚð miðunum. Það eina sem
ég get ályktað er að lögreglan hafi
verið orðin þreytt á símtölunum frá
brjáluðu nunnunum, komið og rifið
niður mjólkurmiðana og sagt þeim
að MI5 væri upptekin við að leysa
alvöru glæpi.
Maður
Sekkur sér í málefmn
Guðrún Eva Mínervudóttir hefur ver-
ið smituð af ritbakteríunni síðan hún var
átta ára gömul. „Þá skrifaði ég boðskaps-
þmngnar smásögur, meðal annars um
hænuunga sem skreið úr egginu og
ákvað samstundis að hann væri falleg-
astur aUra, hélt út í heim til að sýna sig,
en álpaðist inn á hænsnabú og hitti fyrir
óteljandi litla unga sem lfktust honum
og þar með lærði hann auðmýkt,“ segir
Guðrún Eva sem segist fá skammarsting
í hjartað þegar hún rifjar upp hvernig
heilu fjölskylduboðin gögguðu og gól-
uðu af hlátri yfir sögunum sem áttu alls
ekki að vera fyndnar. „Þær vom grafal-
varleg heimsádeila," segir Guðrún Eva.
Guðrún Eva hefur ekki farið troðnar
slóðir í ritstfl sínum. Titill nýrrar bókar
hennar ber keim af því; Yosoy - Af lík-
amslistum og hugarvfli í hryllingsleik-
húsinu við Álafoss.
„Undanfarið hef ég verið að safna
mér saman eftir gríðarlega ofþreytu sem
greip mig eftir að ég kláraði bókina, lesa
yfir annarra manna handrit, hafna
skuggalegum tilboðum um ævisagna-
skrif og bægja frá mér hugmyndum að
næstu skáldsögu, því ég treysti mér alls
ekki til að setjast strax aftur á rassgatið
og byrja að vinna," segir Guðrún Eva og
segist ekki vera tilætlunarsöm við les-
endur sína. „Þeir hafa hins vegar fulla
ástæðu til að vera tilætlunarsamir við
mig. Það' er mitt hlutverk að segja hlutina
hæfilega skýrt, vekja grunsemdir, dilla,
skemmta,
magna upp samlíðan með persónunum
og koma á óvart. Það er ekkert leynt
markmið með útgáfu bókarinnar, ég læt
bara gefa hana út af því að ég vil að aðrir
lesi hana. En ef það var leynt markmið
með því að skrifa hana var það helst
þetta; að mig langaði sjálfa til að sökkva
mér ofan í þau málefni sem þar eru til
umfjöllunar: Sársaukann, vitundina,
tengsl hugar og líkama, það hvort nánd
tveggja huga sé yfirhöfuð möguleg eða
hvort við séum dæmd til að misskilja
hvert annað með skipulögðum hætti,
takmarkanir tungumálsins í að fjalla um
reynslu okkar og skynjanir."
hunli. Núiasta bók hennar er nú fáanleg i bokabuðum landsins. - ----
Guðrún Eva
Mínervudóttir
verðsku/dar titilinn
Kona dagsins að
I þessu sinni.
gsins