Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2005, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2005, Side 15
I>V Fréttir MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2005 15 mmm Njalsgata 7 / þessu húsi býr Ófeigsson. Rohypnol-töflur Talið er að Stefán hafi byrlað stúlkum svefnlyfið Rohypnol áður en hann nauðgaði þeim. Stefán Hjaltested Geimverkfræðingurinn hefur farið huldu höfði upp á síðkastið. Framburður 18 ára stúlku sem Stefán var dæmdur fyrir að nauðga: Hún kvaðst ekki muna eftir þvi þegar vinkona hennar fór, en það sem hún muni næst, sé að Stefán hafi setlð við hlið hennar í sófanum og hafi hann verið að strjúka á henni axlirnar. Orðrétt sagði hún: „Þá var allt í lagi með hann samt, þá var hann alveg eðlilegur." Það næsta sem H kvaðst muna hafi verið það að hún hafi verið staðin upp og þá hafi Stefán breyst algerlega í hegð- un. Hann hafi komið aftan að henni og viðhaft einhver ógeðs- leg, kynferðisleg orð, en hún kvaðst ekki muna nákvæmlega hvaða orö það voru, en það hafi verið „ógeðslegt að heyra þau". Stefán hafi svo tekið utan um stúlkuna með annarri hendi, en sett hina hendina niður í buxur hennar og sett fingur í enda- þarm hennar. Hún kvaðst hafa fundið fyrir sársauka og kvaðst hafa öskrað og reynt að komast I burtu. Það næsta sem hún kvaðst muna, hafi verið er Stefán hafi þrýst stúlkunni upp að vegg og tekið hana hálstaki. Siðan kvaðst hún ekki muna neitt, fyrr en hún lá á gólfinu. Hún var þá klædd að ofan i tvo boli, en ekki i neinu að neðan. Hún kvaðst ekki vera viss um hvort dúkur hafi verið á gólfinu eða teppi, en það hafi ekki verið mjúkt, mið- að við hvað hún hefði fundið til í mjaðmabeinunum. Stefán hafi legið ofan á henni og nauðgað henni. Hann hafi sett liminn endaþarm hennar þá, en hún kvaðst halda að hann hafi sett liminn bæði í leggöng og endaþarm hennar. Hún kvaðst þó ekki muna eftir sársauka í kynfærum, á meðan á þessu stóð, heldur aðallega í endaþarminum, en eftir á hafi hún einnig fundið fyrir sársauka í kynfærum. Hún hafi rekið upp sársauka- vein og gefið Stefáni skýrlega til kynna að hún vildi að hann hætti. Þá hafi hún reynt að færa sig til. Síðan kvaðst stúlkan muna eftir því að hún var komin upp i rúm til Stefáns og þá ver- ið fullklædd. Stefán hafi líka verið klæddur. Hún kvaðst ekki muna eftir því hvernig hún komst í fötin. Það næsta sem hún muni hafi verið er Stefán tók fast um upphandlegg hennar og henti henni út. Hann hafi verið í hátt eins og hann skammaðist sín og vildi ekki sjá hana.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.