Freyr

Årgang

Freyr - 01.09.1954, Side 7

Freyr - 01.09.1954, Side 7
FRE YR 259 þaö vopnið, sem flestir myndu sízt ætla, að gera sig svo heimskan að hann skilji ekki mælt mál. 3. „Svo er á Helga að skilja, að hann þekki okkur Sókrates jafn vel.“ Ekki voru það mín orð, en ég sagðist hvor- ugan þekkja nema af afspurn. Þetta er rétt, því þó að ég hafi talað við Jón í Felli í nokkr- ar mínútur á ævinni, þá tel ég mig ekki þann mannþekkjara að ég þekki hann vegna þess. En ég þekki hann af afspurn á sama hátt og Sókrates. Þetta er nú allt aðeins formáli hjá Jóni og kemur ekkert við því efni, sem um var deilt. Það voru aðeins þrjú atriði, sem ég mót- mælti hjá Jóni og þau voru þetta: I. Að engin framför hafi orðið í kynbót- um sauðfjár. II. Að enginn fjármaður hefði skímu um það, hvernig sauðkind ætti að vera byggð til þess að gefa sem mestan arð í samanburði við tilkostnað. III. Að sauðfjárrækt Þingeyinga í 100 ár hefði engan árangur borið. Nú er bezt að sjá, hvernig Jóni tekst að hrekja þau rök, sem ég færði fyrir mínu máli og þá komum við að fjórða atriðinu. 4. Jón segir, að ég fari að bera saman hrúta og naut þeirra Hrunamanna og finni þar engan kostamun til kynbóta. Hann undrar að ég sé ekki þann reginmun sem er á þessu og nefnir sem dæmi nautið Suðra í Mývatnssveit, og við munum geta rakið ætt hans 50 ár aftur í tímann. Við þetta er nú það að athuga, að það eru hrein og bein ósannindi, að ég gerði nokkra tilraun til þess að bera saman sauðfjárrækt og nautgriparækt Hrunamanna. Aðeins lagði ég á borðið blákaldar staðreyndir um það, að framför hefði orðið í sauðfjárrækt- inni á síðustu 20 árum. Staðreyndir, sem Jón vogaði sér ekki að hagga við og kýs þá heldur að halla réttu máli í stað þess að þegja. Um nautið Suðra er það að segja, að hann keypti ég og sendi norður í Mývatnssveit. Hann var undan Huppu nr. 12 á Kluftum. Við vitum, hvað móðir Huppu hét, en svo getum við ekki rakið þá ætt lengra aftur í tímann. Ég held að það sé alveg vonlaust að Jón í Yztafelli slái sér upp á því að fræða mig um ættir nauta og hrúta í Hrunamanna- hreppi síðustu 50 árin. Hann ætti því held- ur að halda uppteknum hætti og ættfæra kerlingarnar í Köldukinn. Svo er á Jóni að heyra, að við Hruna- menn munum heldur lítið vita um ættir sauðfjárins. Til dæmis hefi ég merkt og vigtað hvert lamb undan ánum á sauðfjár- búinu á Hrafnkelsstöðum í meira en þrjá tugi ára og það eru til skýrslur um vigt bæði á ám og lömbum jafn lengi, og ættina sömu- leiðis. Fjöldi af bændum merkir og vigtar lömbin undan ánum og sauðfjárræktarfélag hefir starfað í sveitinni um nokkur ár og gerir ennþá. 5. „H. H. heldur, að auknar afurðir sauð- fjár um allt land hljóti að stafa af kynbót- um.“ Þar greip Jón nú á kýlinu; á þessu hélt ég að hann mundi ekki flaska. Það er nú fyrst að ég hélt, að Jón teldi engan bónda á íslandi svo fávísan, og ég ekki undan skilinn, að hann vissi ekki, að búfjárrækt byggist á þessu tvennu: kyn- bótum og bættri meðferð. Annað, að meðferðin var alls ekki á dag- skrá. Jón nefndi hana ekki á nafn í grein sinni, og þá var engin ástæða fyrir mig að gera það. Eða heldur Jón, að framfarirnar í nautgriparæktinni séu eingöngu vegna kynbóta og að þær kýr, sem nú mjólka 4000 kg, fái ekki meira fóður en kýrin um alda- mótin, sem mjólkaði 2000 potta á ári. Ég efa ekki, að kýrnar hefðu mjólkað stórum meira um aldamótin en þær gerðu, hefðu þær þá fengið fóðurbæti. Hitt er líka jafn víst, að ef farið væri að fóðra nútíma kúna á sama hátt og gert var fyrir 50 árum, mundu flestar beztu kýrn- ar steindrepast og stór spurning, hvort þær, sem lifðu það af, mjólkuðu meira en kýr gerðu þá. Nei! Við höfum ræktað kýrnar þannig, að þær geta umsett meira fóður og breytt því í afurðir, en ekki til þess að geta skap- að neitt úr engu. Nákvæmlega sama gildir um sauðféð, og er ekki spurning, að við séum komnir nokk- uð skemmra með það.

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.