Freyr - 01.09.1954, Síða 14
266
FREYR
mjög öra kólnun niður fyrir frostmark.
Við snöggar hitabreytingar af því tagi er
hætt við, að frumusafinn frjósi og frum-
an skaddist til dauðs.
c) Ennfremur getur gróðurinn beðið tjón
af skjótri þiðnun við of öra bráðnun ís-
kristalla utan fruma. Af því tagi eru
frost- eða kalskemmdir á trjám og kart-
öílugrösum hér á landi og einnig á tún-
grösum.
Klakakal verður við mismikla þenslu
jarðlaganna. Myndast þá holklaki og ræt-
ur togna og slitna. Einkum er mýra- og leir-
jarðvegi hætt við klakakali vegna mikils
vatnsmagns, en sandjörð síður.
Svellkal telur Sturla Friðriksson vera
sennilega verstu tegund kalskemmda hér-
lendis. Það verður með þeim hætti, að yfir-
borðsvatn frýs að gróðrinum og veldur
spjöllum á vefjum hans. Einkum skeður
þetta við skafla, sem eru í dældum og laut-
um. Bráðnar úr þeim á daginn, en á næt-
urnar frýs svo aftur til. Sama máli gegnir
þar sem vatn stendur í lægðum og bollum
yfir veturinn og frýs við og við. Ber mikið
á þessu kali á flatlendum túnum og ný-
ræktum, þar sem yfirborðsvatn getur ekki
komizt burt.
Rotkal virðist höfundi algengara á Norð-
ur- en Suðurlandi. Það myndast er snjóar
liggja lengi yfir illa þroskuðum gróðri, sem
er vanbúinn við vetri. Telja jurtafræðing-
ar kalskemmdir þessar stafa annaðhvort af
myglu, en hún dafnar vel í raka og undir
snjó, ellegar af því, að gróðurinn kafni í
sínum eigin kolsýringi, er eigi kemst burt
vegna snjófargsins.
Saga kalára á íslandi.
Eins og áður var getið, gáfu hinar óvenju
miklu kalskemmdir síðari ára mörgum á-
stæðu til þess að ætla, að eitthvað væri at-
hugavert við tegundaval í grasfræblöndur,
eða að nýjum ræktunaraðferðum á þessum
tíma væri í einhverju ábótavant, að öðru
jöfnu.
Til þess að fá úr því skorið, hvort hér sé
um ný tíðindi að ræða í sögu landsins, hefir
höfundur bæklingsins skyggnzt um í ann-
álum og fornum bókum og aflað sér furðu
ýtarlegra heimilda um kal fyrri ára. Dreg-
ur höf. fáanlegar heimildir um grasvöxt á
ýmsum tímum saman í eftirfarandi töflu:
12. öld Slæm grasár 3 Meðal grasár Góð grasár Ar alls 3
13. — 2 — 1 3
14. — 6 — 2 8
15. — 2 — 1 3
16. — 3 — 7 10
17. — 29 14 20 63
18. — 37 31 32 100
19. — 25 40 35 100
20. — 8 20 22 50
Það er alkunnugt, að kálhcetta er
meiri á flatlendi en i halla. Þar
sem valn stendur uppi er sérstalc-
lega ha:tt við kali — eða köfnun
jiurrlendisjurta — og er framrcesla
helzta ráðið til úrbóta par sem
svo hagar til.