Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1954, Síða 17

Freyr - 01.09.1954, Síða 17
FREYR 269 Góö ræsing jarðvegsins er mikilvæg kal- vörn. Brottveita yfirborðsvatns er nauðsyn- leg. Einkum skyldu menn vara sig á ruðn- ingunum, þar sem miklir skurðir hafa verið grafnir, því að þar er hætt við, að yfir- borðsvatnið komist ekki brott, heldur safn- ist fyrir á sléttunni, frjósi síðan og valdi miklu kali. Þarf þá að jafna úr skurðruðn- ingunum og helzt að færa þá inn á miðja sléttuna, þannig að hún verði lítillega kúpt í stað íhvolf. Einnig mætti gera grunnar rásir í grassvörðinn og veita þannig stöðn- uðu yfirborðsvatni brott, þar sem hægt er að koma því við. Einhliða notkun köfnunarefnisáburðar er talin óráðleg á túnum, sem hætt er við kali, en hins vegar ætti að auka notkun kalí- og fosfórsýruáburðar á þeim túnum, því álitið er, að þessar áburðartegundir auki stórlega frostþol gróðurs. Hvað húsdýraáburði viðvíkur, er ráðlagt að nota fremur hrossa- og sauðatað held- ur en kúamykju á tún, sem er kalhætt, og einnig að bera á eingöngu að hausti, eða fyrri hluta vetrar. Þá er mælt með því að hlífa gróðrinum við seinum slætti og mikilli haustbeit til þess að honum gefist einhver tími til þess að búa sig undir veturinn, t. d. með því að safna forðanæringu. Að undanförnu hafa bændur ekki átt völ á nema einni grasfræblöndu, hvernig sem aðstæður hafa verið á hverjum stað. Hefir þetta verið bagalegt, vegna þess, að jarð- vegur og önnur skilyrði eru mjög mismun- andi eftir landshlutum og staðháttum, og bændur og þjóðarbúið í heild hefir skaðazt stórlega af þessum sökum. Á þessu er þörf bráðra breytinga. Er lögð áherzla á það í ritinu, að útvega þurfi fíeiri fræblöndur, er henti hverjum stað, sem bændur geti síðan valið um sjálfir eða með aðstoð ráðunauts. Bent er á að sá skuli grasfræi eins snemma að vorinu til og unnt er, vegna klaka. Græðsla kalbletta. Völtun. Mælt er með því að valta hol- klakablettina með léttum valta snemma að vorinu, áður en farið er að grænka og klaki er farinn úr jörðu. Við það verður jarðveg- urinn þéttari og gróðurinn nær rótfestu á ný. Haustvöltun kemur einnig til greina. Hafi nú völtunin gefið góða raun, en þó eru enn smá kalblettir hér og þar, skal bera á þær eins og túnið í kring (eigi þó húsdýra- áburð), þó að sjálfsagt megi ekki gera ráð fyrir, að hann svari mikilli eftirtekju. Sláttur. Ef einhver gróður er upp úr kal- skellunum, ber að slá hann snemma og oft, því að við það eykst jarðstöngulmyndun eft- irlifandi grastegunda og illgresið nær síður að fella fræ. Endurvinnsla landsins. Ef kalið er víð- tækt og algert, dugar ekkert annað en að endurvinna landið og sá í það að nýju. * * Gróðurrannsóknirnar. Síðari hluti ritsins fjallar um gróður- rannsóknir á túnum, til þess að komast að raun um, hvaða sáögresistegundir eru var- anlegastar í túnum, einkum þeim, er kalið hafa. Af fjölda línurita má lesa endingu þeirra tegunda, er hafa verið notaðar í gras- fræblöndur hérlendis, hvort þær hafa hald- ið velli eða dáið út. Að lokum er skýrsla um útbreiðslu gras- tegunda í mismunandi jarðvegi, skýrð með línuritum. Gefur hún nokkra vísbendingu um það, hvaða grastegundir henta bezt hverjum jarðvegi. Þess er áður getið hér að framan, hvaða tegundir eru þolnastar og hverjar eru lin- gerðastar, og verður það eigi endurtekið. í ritinu eru gerðar tillögur um þrenns- konar grasfræblöndur, er henta mismun- andi skilyrðum, en þær eru: Harðlendis- blanda, valllendisblanda og mýrlendis- blanda. Þess má geta hér, að vorið 1953 og s.l. vor hafa verið á boðstólum tvennskonar grasfræblöndur, önnur fyrir harðviðrasam- ari sveitir, en hin fyrir staði með hagstæð- ari skilyrði. Níðurlagsorð. Þessi skýrsla Sturlu Friðrikssonar er allr- ar athygli verð. Hún nær að vísu yfir að- eins eitt kaltímabil og öruggari niðurstöður

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.