Freyr

Volume

Freyr - 01.09.1954, Page 23

Freyr - 01.09.1954, Page 23
FREYR 275 ég, í félagi við Halldór Jónsson í Vík, fjög- urra vetra hrút norðan úr Þingeyjarsýslu. Jón Þorbergsson keypti þann hrút fyrir okk- ur árið 1920. Undan honum fengum við á- gætlega væn lömb, en það fé reyndist lin- gert og óhraust og urðu ærnar undan hon- um endingarlausar og áttu mjög vesæl lömb, svo sá stofn dó fljótlega út, og gætti engra áhrifa frá honum til frambúðar. Milli 1920 og -30 keyptu þeir bræður Jón og Ólafur Halldórssyni í Suður-Vík, nokkrar kindur (lömb), hrúta og gimbrar, frá Núpstúni í Árnessýslu. Mun sá stofn hafa verið frá Ólafsdal ættaður, upphaflega af Kleifakyni. Síðar keypti Jón einnig 1 hrút frá Ósi í Strandasýslu, og Jón Þor- steinsson, í Norður-Vík, annan af sömu slóðum. Þessum stofni blönduðu Suður- Víkur bræður við sitt fé, en munu þó hafa hreinræktað hann nokkur ár. Við fráfall Ólafs mun þetta hafa gengið nokkuð úr skorðum sem eðlilegt var, þar sem margháttuð störf heimilisanna, um- svifamikill atvinnurekstur og opinber störf hlóðust þá á herðar hans. Það kom fljótt í ljós, að þessi fjárstofn átti betur við staðhætti í Mýrdalnum en þingeyzka féð. Það mætti strax hinni al- kunnu góðu meðferð í Suður-Vík, enda dafnaði féð vel, og voru fljótlega keyptir hrútar víðsvegar að um sveitina, einnig austan yfir Mýrdalssand og einnig undir Eyjafjöll fór þetta fé. Gaf það allstaðar góða raun; reyndist þrifagott og kynfast með allgóðum holdsöfnunarhæfileikum, ullar- þétt og þelmikið. Allt var þetta fé kollótt. Á mörgum bæjum var Suður-Víkur stofn- inn búinn að setja svip sinn á hjörðina, þegar niðurskurðurinn fór fram 1952. Smávægilegar tilraunir voru gerðar með innflutning hrúta af þingeyzku kyni á þessu tímabili, aðrar en hér greinir, en náðu ekki neinni útbreiðslu og höfðu því ekki neina þýðingu til frambúðar. Af því, sem að framan greinir, kemur í ljós að innflutningur kynbótafjár af þing- eyzku kyni hefir ekki lánazt eða haft bæt- andi áhrif á fjárrækt Mýrdæla til frambúð- ar, en hins vegar hefir vestanféð valdið straumhvórfum til umbóta. Árið 1928 var sett á stofn sauðfjárkyn- bótabú á Höfðabrekku, undir stjórn Þor- steins Einarssonar, er þar bjó. Vafalaust hafa þær kynbótatilraunir, sem að framan greinir, átt sinn þátt í því, að þessi kyn- bótabússtofnun komst á. Fé til búsins var valið að sumu leyti af fjárstofni Þorsteins, en nokkuð aðkeypt. Eftir aðeins 12 ár flutti Þorsteinn burt úr héraðinu. Tók þá við jörðinni og kynbótabúinu Guðmundur Pét- ursson. Var hann á Höfðabrekku aðeins 2 ár, en þá var búið flutt að Þykkvabæ á Siðu til Þórarins Helgasonar, en hann flutti burtu eftir 6 ár. Lá þá búið niðri í 2 ár vegna þessara tíðu eigenda- og umráðamanna- skipta á kynbótabúinu. Var ekki þess að vænta, að sú festa, sem nauðsynlegt er að myndist í starfi slíkrar stofnunar, gæti myndazt og orðið að almennum notum. Þess skal þó getið, að allir þessir menn, er búinu stjórnuðu, eru viðurkenndir dugnað- ar- og greindarmenn, fullir áhuga og um- bótaþrá landbúnaðarins. Árið 1951 var kynbótabúið flutt að Segl- búðum á Síðu. Hefir það nú hlotið þann samastað, sem vonandi er að því endist til frambúðar. Mun nú fjárstofninn vera að mestu eða öllu leyti af Vestfjarða- eða Kleifakyni. Mýrdælingum var allmikil eftirsjá að þegar búið var flutt austur á Síðu, en um slíkt ber þó ekki að sakast, því hefði það starfað í Mýrdalnum, mundu afdrif þess hafa orðið slík, sem annars sauðfjár Mýr- dæla 1952, niðurskurðurinn. Þessar kynbótatilraunir Mýrdæla, þótt ósamstæðar hafi verið, hafa þó, ásamt bættri meðferð og hirðingu, orðið til þess að bæta svo fjárstofn sveitarinnar, að frá því að búa við lakasta fé sýslunnar um og eftir aldamótin síðustu, var meðalvigt á dilkum Mýrdæla orðin einna hæst í sýsl- unni hin síðustu ár, þrátt fyrir það að y3— y2 ánna var tvílembdar. Eru þetta miklar framfarir, þegar tillit er tekið til þess, að aðrar sveitir sýslunnar hafa einnig bætt fjárstofn sinn og meðferð hans, og hafa auk þess miklu rýmri og betri afréttarlönd. Nú er búið að skera niður þenna góða fjárstofn, en fá í staðinn ósamstæða og

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.