Freyr

Volume

Freyr - 01.09.1954, Page 30

Freyr - 01.09.1954, Page 30
Raforkumálastjóri hefur gefið út rit, sem nefnist: „Leið- beiningar um mœlingar á vatnsrennsli í smá-ám og lœkj- um“. Ritið á brýnt erindi til þeirra bænda, sem búa í dreifbýli og ekki er útlit fyrir að verði aðnjótandi raf- magns frá héraðsveitum, en hafa í þess stað möguleika á að notfæra sér til raforkuvinnslu læki eða smáár ná- lægt híbýlum sínum. Höfundur ritsins er Sigurjón Rist, vatnamælingamaður, og kemst hann þannig að orði: „Orka vatnsfalla grundvallast á tveim meginþáttum, fallhæð og vatnsmagni. Aður en beizlun orkunnar til nýt- ingar er hafin, verður að þekkja þessar stærðir. Fallhæðina, sem talin er í metrum, er hægt að mæla í eitt skipti fyrir öll, en öðru máli gegnir um vatns- magnið, sem fer eftir rennslinu, en það er sífelldum breytingum undirorpið. Til þess að öðlast þekkingu á rennslinu, sem er ei síður nauðsynlegt, verður að gera samfelldar rennsliat- huganir um nokkurt skeið, ár eða árabil, og halda skýrslur um þær. Hér skal greint frá aðferðum, sem eru auðveldar í fram- kvæmdum við mæl- ingu Iækja og annarra srnárra vatnsfalla. — Með rennslinu er átt við þann lítraf jölda vatns, sem á sekúndu hverri rennur um þverskurð farvegar- ins.“ Því næst er mæl- ingaaðferðunum lýst. Fyrst er greint frá rennslismælingu með keri, sem er handhægt við smálæki. En aðal- efni ritsins fjallar um yfirfallsstíflur, sem Þverskurður timburstíflu í lausum jarðvegi. — Reynslan hefur sýnt, að megin L.Uðleikarnir við byggingu timburstíflna er að þétta þœr í botninn. I lausum jarðvegi er handhœgast að þétta hana í botninn með pokum eða segli, sem neglt er á neðsta borðið og lagt er svo um 1 metra inn í lónið og tyrft síðan.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.