Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.09.1954, Qupperneq 34

Freyr - 01.09.1954, Qupperneq 34
286 FRE YR Mjólkurverð til framleiðenda 1953. Samkvæmt skýrslu frá Framleiðsluráði landbúnaðar- ins var útborgað mjólkurverð til framleiðenda 1953 sem hér segir: h. lítri Mjólkurstöðin í Reykjavík ................. kr. 2.74 Mjólkursamlag Borgfirðinga, Borgarnesi .... — 2-48 Mjólkursamlag Húnvetninga, Blönduósi .... — 2.25 Mjólkursamlag Skagfirðinga................... — 2.18 Mjólkursamlag KEA, Akureyri ................. — 2.30 Mjólkursamlag KÞ, Húsavík ................ — 2.13 Mjólkurbú Flóamanna, Selfossi ............ — 2.63 Lesendur FREYs eru hérmeð beðnir að leiðrétta meinlega villu, sem orðið hefir í síðasta hefti, en þar á að standa, ofarlega í fremra dálki á bls. 239: Þeir hefðu gert um 20 kg kjöts til jafnaðar, í stað „30 kg kjöts til jafnaðar“, eins og þar hefir ranglega prentast. Júgurbólga. Víða um heim er júgurbólga algengur og afleitur kvilli í kúm. Ráðstafanir til að útrýma henni eru kapp- kostaðar víða um lönd, og nútíma lyf eru sum ágæt en ekki einhlít til þessa. Maður nokkur að nafni Slantez, prófessor í Durliam í New-Hampshire í U.S.A., hefir einkaleyfi á aureomy- cini, sem hann og fleiri telja betra en önnur virk lyf til þess að útrýma júgurbólgu. Nýlega hefir lyf Slantez verið sent að vestan til heilbrigðisstofnunar dönsku veiki sé litil á þessum slóðum, sagði Guð- mundur Gíslason að lokum. J. J. D. mjólkurfélaganna við Árhus í Danmörku og á stjórnandi hennar, IJvoni dýralæknir, að prófa lyf þetta áður en alþjóðaráðstefna dýralækna verður haldin í Osló á kom- andi hausti. Það hefir sýnt sig, að streptomycin og penicillin lækna ekki júgurbólgu í öllum kúm og er það ætlun- in að fá nú nánara yfirlit yfir livort umrætt lyf Slant- ez tekur hinum fram. (Dansk Husdyravl). Hve þungur er klárinn? í Frakklandi er notuð formúla til þess að reikna þunga hestanna, en þunginn er talinn hafa nokkra þýð- ingu viðvíkjandi dráttarhæfni þeirra. Formúla þessi segir: Brjóstmálið í öðru veldi, margfaldað með lengd af bóghnútu á mjaðmarlið sinnum 82.5, gefur útkomu, sem segir til um þungann í kg. Leggja ber þó ögn við eða draga frá eftir því hvort hesturinn er mjög feit- ur eða mjög holdgrannur. Þess skal getið, að bæði mál- in eru talin í metrum. — Er hægt að reikna þunga íslenzka hestsins eftir þessari formúlu? Túnstœrðin. Ekki er vitað nákvæmlega um stærð túnanna, því að þau hafa ekki verið mæld síðan á árunum 1916—1919, en með því að leggja nýræktirnar við síðan, er tún- stærðin nú talin vera rúmlega 55 þús. hektarar. Tölur yfir túnstærð í landinu eru annars sem hér greinir: Árið 1900 16.933 ha 1910 18.591 1920 22.923 — 1930 26.973 1940 35.973 1950 45.368 Síðastliðið ár nam nýræktin um 3.000 hekturum, svo nú bætist ört við túnin, ef svo miðar áfram. Ef húsmunir úr plasti hafa fengið á sig dökka hringi af kaffi, te eða þ.u.l., verða þeir ekki hreinir við venjulegan uppþvott. Bezt er þá að blanda 1 tsk. af natriumperbórati í 2 lítra af volgu vatni og láta plastmunina liggja í þessari upp- lausn í 2 klst. Síðan eru þeir þvegnir á venjulegan liátt og hreinsast þá að fullu. f-----------------------—----------------------------------------------------------------------—----------\ Útgefendur: Búnaðarfélag íslands og Stéttarsamband bænda. — Útgáfunefnd: Einar Olafsson, Pálmi Einarsson, Steingr. Steinþórsson. — Ritstjóri: Gísli Kristjánsson. — Ritstjórn, afgreiðsla og innh.: Lækjarg. 14 B, Reykjavík. Pósth. 1023. Sími 8-22-01. Áskriftarverð FREYS er kr. 50.00 árgangurinn. — Prentsmiðjan Edda h.f. k_________________________________________________________________________________________________________-J Freyr- BÚNAÐARBLAÐ

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.