Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.12.1973, Blaðsíða 8

Símablaðið - 01.12.1973, Blaðsíða 8
Hörður Bjarnason: ELDGOS / EYJUM Hörður Bjarnason var stöðvar- stjóri Pósts og' Síma í Vestmannaeyj- um, þegar náttúruhamfarirnar hófust þar snemma á þessu ári, Hörður varð góðfúslega við þeirri beiðni Síma- blaðsins að skrifa grein um hið sögu- lega tímabil, meðan á eldgosinu í Eyj- um stóð. Fer greinin hér á eftir: Eins og öllum er í fersku minni hófst eldgos á Heimaey þann 23. janúar s.l. Þegar þetta gerðist var ég ásamt konu minni staddur í Reykjavík, en heima í Eyjum var ein dætra okkar. Hún hringdi til okk- ar klukkan rúmlega tvö um nóttina til að láta okkur vita, hvernig komið væri. Við hjónin ókum strax af stað á- leiðis austur fyrir fjall og var hug- myndin að aka það langt austur, að við gæt- um séð til Eyja. Um klukkan fjögur um nóttina heyrðum við í útvarpinu, að bátai myndu flytja fólk frá Vestmannaeyjum til Þorlákshafnar. Við snerum því við og ók- um þangað og biðum þar eftir dóttur okkar. Fyrstu bátarnir komu til Þorlákshafnar milli klukkan sjö og átta og síðan hver á eftir öðrum. Ég átti þess kost að spyrja nokkra Eyja- menn um ástandið strax um morguninn og er mér minnisstætt, þegar Pétur Guð- jónsson í Kirkjubæ sagði við mig: „Held- urðu að það sé gaman að vakna upp við þetta. Eldurinn var rétt um 200 metra frá húsinu, þegar ég leit út“. Þetta svar fannst mér gefa nokkuð skýra mynd af því, hvern- ig ástandið raunverulega var. Hins vegar er alveg einstakt, hve vel tókst til um bj örg- un allra íbúa eyjanna til lands; þar hjálpaði til, að eldgosið hófst að næturlagi, flestir 33 voru heima hjá sér, allir bátarnir í höfn og veðrið eins gott og bezt gat verið. Björgunin á yfir fimm þúsund manns á jafn skömmum tíma og án þess að nokkur teljandi meiðsli eða óhöpp yrðu á fólki er sennilega algert einsdæmi í sögunni. En gera má ráð fyrir, að fáir hafi í raun og veru gert sér ljósa grein fyrir því, hve al- varlegt ástand ríkti í Vestmannaeyjum þessa örlagaríku nótt. Strax í upphafi eldgossins reyndi mjög á þjónustu símans og er það einróma álit þeirra, sem til símans þurftu að leita, að þeir hafi fengið greidda götu sína eins og hægt var. Miklar annir voru á loftskeytastöðinni og á radíoverkstæðinu, en fljótlega barst okk- ur liðstyrkur björgunarflokka, sem voru út- búnir ýmiss konar fjarskiptatækjum. Ástandið útheimti geysimikla vinnu af starfsmönnum símans og var vinnutími oft óslitinn allan sólarhringinn. Fyrstu dagana var unnið að björgun bú- slóða úr húsum næst gosstöðvunum. Það var ömurleg sjón að sjá, hve mikil breyting var orðin á bænum, fljótlega eftir að gosið var hafið. Þarna var áður blómleg- asta verstöð landsins og glaðvær byggð. Nú voru götuljósin slökknuð og kolsvartur vikur lagðist yfir bæinn. Þegar í fyrstu viku gossins hurfu mörg hús undir vikur. Það var eins og dauða 'hönd teygði sig yfir bæ- inn. Svo kom að því, að hraunrennsli fór að ógna byggðinni og innsiglingunni og hver hörmungin dundi yfir af annarri. Rafstrengurinn og önnur vatnsleiðslan frá landi fóru í sundur samtímis. í fyrstu var talið, að báðar vatnsleiðslurnar hefðu rofnað, en við nánari athugun reyndist svo ekki vera. Nóg rafmagn var hægt að fram- leiða með vélum rafstöðvarinnar, svo að Skemmdin á rafstrengnum var því ekki eins bagaleg og ætlað var í fyrstu. 5 I MAB LAÐ IÐ

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.