Símablaðið - 01.12.1973, Blaðsíða 15
Stöðin séð frá sjó.
ið yfir jökulinn, endalausa ísbreiðu, hvert
sem litið var.
í Brattahlíð, hinum fornu heimkjmnum
Eiríks rauða, er gamall amerískur herflug-
völlur, Blue West One, sem Danir sjá um
nú. Staðurinn er gróðursæll á að líta, kjarri-
vaxnar hlíðar og græn tún. Tvö hótel eru
a staönum, enda er talsverður ferðamanna-
straumur þangað á sumrin, en þá annast
Flugfélag íslands flug þangað á vegum SAS.
Allar byggingar þarna, tveggja hæða blokk-
ir, eru leifar herstöðvarinnar. Loftskeyta-
stöðin og flugumsjónin eru þó til húsa í gam-
alli hrörlegri byggingu, svo og íseftirlitið,
eða Iscentralen. Þeirri þjónustu var komið
upp eftir hið sviplega sjóslys, er danska
grænlandsfarið Hans Hedtoft fórst með allri
áhöfn, eftir að hafa rekist á ísjaka við
Hvarf.
Eftir skamma viðdvöl í Brattahlíð, var
ferðinni haldið áfram með þyrlu frá Grþn-
landsfly. Næsti viðkomustaður var Juliane-
háb, sem er vinalegur staður með um 3000
íbúa. Eru þar margir skólar m. a. loftskeyta-
skóli. Grænlenskur barnaskari tók á móti
þyrlunni. Voru þau heldur tötraleg greyin,
en brosandi út að eyrum og báðu okkur að
gefa sér sígarettur.
Síðan var komið við í Nanortalik, næstu
byggð við Prinsinn. Þar eru um 2000 íbúar.
Margar opinberar stofnanir eru á staðnum,
skólar, sjúkrahús, svo og aðsetur héraðs-
stjórnarinnar, amtsins. Hótel staðarins heit-
ir því virðulega nafni Kap Farvel. Staðir
þessir hafa upphaflega byggst upp sem
verslunarstaðir hinnar Konunglegu Græn-
lensku verslunar. Aðalatvinnuvegur er fisk-
veiðar og þá aðallega laxveiðar.
Grþnlandsfly annast áætlunarflug á vest-
urströndinni með þyrlum. Reyndist það hag-
kvæmara heldur en að byggja flugvelli. Er
af þessu niikil samgöngubót, því ís hindrar
siglingar með ströndinni mánuðum saman.
Þyrluferðirnar eru afar vinsælar af ferða-
mönnum, enda mikið auglýstar í ferðabækl-
ingum. Þyrlurnar eru einnig mikið notaðar
við ýmsar verklegar framkvæmdir.
Gamhr siðir og venjur Grænlendinga eru
furðu lífsseigir. Þeir eru glaðsinna fólk, sem
láta ekki annir nútímalífsins ná allt of
S I MAB LAÐ IÐ
45