Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.12.1973, Blaðsíða 23

Símablaðið - 01.12.1973, Blaðsíða 23
þínir, lagt á okkur helmingi lengri kvöld- gang, heldur en eiga það á hættu að skipta um verkstjóra. Drengskapur þinn í öllum þínum skiptum við okkur og skilningur þinn á ungum mönnum meira eða minna breyskum og óstýrilátum var sá hjálmun- völur, sem hönd þín ávallt bar í allri verk- stjórn þinni. Þú hefur aldrei gert státt að sjálfum þér, Einar Jónsson, og þú hefir aldrei ósk- að þér þess, að aðrir gerðu stáss að þér. Þess vegna veit ég, að þú verður mér ekk- ert þakklátur fyrir að birta á prenti þetta afmælisbréf. En ég geri það samt. Ég geri það mín vegna — vegna okkar allra, sumrunga þinna. Ef til vill felst bezt lýsing á sjálfum þér í því; hve þér var ógeðfellt að horfa á okkur pilta vinna, sjálfur auðum hönd- um. Hversu marga menn, sem þú hafðir með þér \ föruneyti, brást aldrei, ef aðeins var eins manns verk að vinna, að þú kys- ir þér að gera það sjálfur og láta okkur vera áhorfendur. Flestallir verkstjórar forðast þetta sem heitan eld. Það hefur reynzt jafnan öruggast flestum verkstjór- um virðuleikans vegna að forðast að taka t.il hendi. Ekkert er og vafasamara yfirmanni en að umgangast undirmenn sína sem jafn- ingja, til þess að geta það, verður hann að hafa manni að má og yfirburði. Enn er þó einn sá hlutur í fari þínu, Einar Jónsson, sem ég hef jafnan dáðst að og kunnað að meta æ því betur, sem ald- ur hefur yfir mig færzt. Það er sá háttur þinn, að sjá þér takmark í hverjum degi. Þú hefur aldrei um ævina vaknað til þess að morgni að skipta deginum í vinnutíma og hvíldartíma, eins og okkur flestum hættir til. Þú hefur ávallt vaknað til þess að nota daginn allan og nýta til staría. Þú hefur þetta öfundsverða óþol í blóð- inu, sem er einkenni allra afkastamanna, kannt ekki og vilt ekki unna þér hvíldar, á meðan eitthvað er ógert, þess sem gera á. Það hefur jafnan verið leiðarhnoða þín í lífinu að heilsa morgundeginum án þess að standa í verkskuld við gærdaginn. Og þegar slíkur hugsunarháttur vakir yfir hverjum degi ævinnar, verða afköstin mik- il um það er lýkur. Einar minn! Um leið og ég að lokum þakka þér allt gott og gamalt, bið ég' þig að skila kveðjum mínum til þinnar góðu konu og vinkonu okkar allra gamalla símamanna. Hver sem á heimili þitt kem- ur, fer þaðan ekki án þess að hafa gert sér grein fyrir því, að þú hefur átt góð- an förunaut í lífinu. Einar Jónsson er fæddur í Núpakoti und- ir Austur-Eyjafjöllum hinn 28. apríl 1892 Voru foreldrar hans Jón síðar bóndi að Steinum Einarsson og kona hans Jóhanna Magnúsdóttir bónda á Arngeirsstöðum í Fljótshlíð, Þorvaldssonar. Sigríður móður- systir hans átti Árna Pálsson, barnakenn- ara í Njarðvíkum. Börn þeirra voru Ár- sæll bókbindari og merkur bókaútgefandi og hans þjóðkunnu systkini. Einar ólst upp hjá föðursystur sinni, Sigurveigu Einarsdóttur, og manni henn- ar, Guðmundi Jónssyni, bróður Sveins í Völundi. Þau hjón bjuggu á Þóroddsstöð- um í Grímsnesi, en fluttust hingað tii Reykjavíkur árið 1907. Stundaði Guð- mundur fyrst „keyrslu“, sem svo var köll- uð, en byggði sér síðan hús í grennd við Öskjuhlíð og hóf þar búskap. Stendur húsið enn og heldur nafni sínu, Þórodds- staðir Auk fermingarundirbúnings naut Einar aðeins nokkurrar tilsagnar í skrift og reikningi, að sinnar tíðar hætti. Eftir að hann fluttist til Reykjavíkur, gerðist hann ,,keyrslumaður“ hjá fóstra sínum, unz hann réðst til sjós. Reri hann í Þor- lákshöfn og Vestmannaeyjum veturinn 1915—’17, en var á skútum á sumrum. Haustið 1917 réðst Einar í þjónustu Lands- símans, var hann fyrst hér í bænum í vinnuflokki Samúels Kristbjörnssonar, en 1919 réðst hann til Kristjáns Björnæs og varð ,,beztmaður“ hjá honum sumarið 1921. Árið 1925 var Einari sjálfum falin á hendur verkstjórn símamannaflokks og hafði hana á hendi til ársins 1956, er hann varð að láta af störfum um skeið sökum veikinda. Er Einar hafði endurheimt heilsu sína, hóf hann aftur störf hjá símanum, Framh. á bls. 61 53 S I MAB LAÐ IÐ

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.