Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.12.1973, Blaðsíða 39

Símablaðið - 01.12.1973, Blaðsíða 39
SÍMASKRÁIN TilkynnLb strax allar breyiingar eða leiðréttingar sem þér viljih koma inn l símaskrána hveriu sinni. MíNNI HÆTTA Hingað til hefur símnotendum verið gefinn ákveðinn frest- ur til að senda inn tilkynningar um breytingar og leiðrétt- ingar i símaskrá næsta árs. Þessu hefur fylgt nokkur liætta á villum, enda ekki unnt að vinna úr tilkynningunum fyrr en skömmu áður en ný símaskrá fer í prentun. Það kemur sér betur fyrir alla aðila, að þér sendið tilkynn- ingu um breytingu eða leiðréttingu strax. Með þeim hætti getur handritið að nýrri símaskrá orðið til jafnóðum, eða frá dcgi til dags. Auk þcss fá „Upplýsingar“ 03 þá vitncskju um allar breytingar og leiðréttingar jafnóðum og þær verða, í ljós hefur komið, að margir símnotendur veita ekki at- hygli auglýsingum um síðustu forvöð til að koma á fram- færi breytingum eða leiðréttingum í næstu símaskrá. Berist tilkynning ol' seint, komast viðkomandi breytingar eða leið- réttingar ekki inn í símaskrána fyrr en að ári liðnu. Slíkt er að sjálfsögðu til mikilla óþæginda fyrir alla aðila. í stað j)ess að tilkynna um breytingar cða leiðréttingar á síðustu stundu, áður en ný símaskrá fer í prentun, ber sím- notendum framvegis að tilkynna STRAX allar breytingar eða leiðréttingar, sem þeir vilja koma inn í næstu símaskrá. SÍÐIÐ ÞVÍ EKKI NÆSTA DAGS ... Tilkynnið strax Símaskránni í Landssímahúsinu við Austurvöll, Reykja- vík, skriflega um allar breytingar cða leiðréttingar, sem þér viljið koma inn í næstu símaskrá, nema breytt heimilisfang, en breytingu á heimilis- fangi annast skrifstofan sjálf. Verði breytingar á högum yðar, munið þá eftir SlMASKRÁNNI. SIMASKRÁIN Á VSLLUM BETRI UPPLÝSINGA- ÞJÓNUSTA AUKIÐ ÖRYGGI S I MAB LAÐ IÐ 69

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.