Símablaðið - 01.12.1973, Qupperneq 18
fyrir fisk, en urðum hvergi varir. Einnig
lögðum við laxanet í ósinn, en fengum ekk-
ert, því stór ísjaki hafði rekið yfir netið um
nóttina. Er við vöknuðum næsta dag var
hitinn við frostmark og svartaþoka. Það
birti þó til, er á daginn leið. Á heimleið-
inni áttum við í erfiðleikum með að komast
út fjörðinn, vegna íss og þoku, en allt gekk
þó vel að lokum og var okkur innilega fagn-
að, er við komum heim aftur, rétt eins og
við værum úr helju heimtir.
Samgöngur hafa verið góðar hingað í
sumar og skipakomur tíðar. Getum við að-
allega þakfcað það norska trúboðaskipinu
„Hábet“, sem fyrst kom hingað til Græn-
lands í sumar. Eiga það dönsk hjón, nokkuð
við aldur. Seldu þau allar eigur sínar til
að kaupa skipið, sem er gamall norskur sel-
veiðibátur. Ætlun þeirra er að stunda trú-
boð hér meðal Grænlendinga. Ferð þeirra
frá Noregi var allmikil svaðilför. Þau létu
okkur vita um ferð sína hingað frá Vest-
mannaeyjum, þar sem þau höfðu tafist
vegna vélarbilunar. Áætluðu þau að vera
5 daga á leiðinni. Er ekkert hafði heyrst frá
þeim í 9 daga, gerðumst við óttaslegnir um
afdrif þeirra. En um það bil er leit var að
hefjast, sigldi „Hábet“ inn í höfnina í Prins
Christian sundi, hægt og rólega, eins og ekk-
ert hefði í skorist. Kváðust þau hafa hreppt
mikinn storm á leiðinni og legið til hlés
þvert fyrir í meira en 100 klst. Meðan storm-
urinn gnauðaði í siglutrjánum báðu þau til
„Vor Herre“ og voru bænheyrð að eigin
sögn. „Hábet“ hefur síðan verið tíður gest-
ur hér á Prinsinum og verið í siglingum fyr-
ir stöðina með varning og póst. Er hann hinn
mesti aufúsugestur eins og nærri má geta.
Sólríkt og milt sumar er liðið og kominn
vetur. Hundarnir dkkar kúra sig niður í
snjóskaflana í verstu veðrum og ýlfra á-
mátlega greyin. Rekísinn er óvenju snemma
á ferð og hefur fyllt öll sund. Utan af hafi
berast drunur frá borgarísjökunum.
Við erum vel undir veturinn búnir. Höf-
um fengið nýjar vistir og næga olíu. Þá
höfum við fengið TV-segulband, ný stereo-
tæki og bókasafnið hefur verið endurnýjað.
Menn notfæra sér óspart hinar ágætu skíða-
brekkur í nágrenninu. Af nógu er að taka
og engin ástæða til að láta sér leiðast á
þessum friðsæla og notalega stað, á útkjálka
veraldar, fjarri heimsins glaumi.
Að lokum sendi ég bestu jólakveðjur
heim, með von um að sjá ykkur aftur á
næsta ári.
Með félagskveðju
Björn Emilsson.
HOSSHSBSflBESHKBSBB^R^nBBSBðBSl^HS&BBEil^^BnSð^KEIiSSm
AtvinnuLýðræbi og starfsfóllc
Pósts og Síma
Atvinnulýðræði er hugtak, sem nú á miklu
fylgi að fagna. Eins og nafnið ber með sér
er gert ráð fyrir að starfsmenn stofnana og
fyrirtækja geti haft áhrif á gang stjórnunar-
mála vinnuveitenda, einkum með hagsmuni
umbjóðenda sinna (starfsmanna) í huga, en
hafi þó jafnframt framgang viðkomandi starfs-
greinar fyrir augum.
Fyrir okkur símamenn er þetta ekki nýjung.
í rúm 20 ár hefur þetta fyrirkomulag ríkt hjá
Landssíma íslands og gengið undir nafninu
Starfsmannaráð Landssíma íslands.
Ráðið er uppskera af löngu en farsælu
48
félagsstarfi Félags íslenzkra símamanna.
Þar er skipað forstjórum landssímans for-
manni F.Í.S. auk annars kjörins fulltrúa félags-
ins.
Eitt höfuðverkefni Starfsmannaráða er að
ráða fram úr fjölþættum málefnum starfs-
fólksins, en fjöldi annarra verkefna eru þar
og tekin til meðferðar.
Samstarf kvað hafa verið gott í ráðinu og
samstaða fengizt um lausn flestra verkefna
þess.
Með tilkomu ráðsins var brotið blað í sögu
sambúðarhátta vinnuveitenda og launþega á
5 I MAB LAÐ IÐ