Símablaðið - 01.12.1973, Page 20
Póst- og
Símaskóiinn
Póst- og símaskólinn er orðinn mikilvæg-
ur þáttur í starfsemi Pósts og Síma. Eins og
kunnugt er átti Félag íslenzikra símamanna
mikinn þátt í þvá, að skólinn var settur á
stofn.
Símablaðið ræddi á dögunum við Kristján
Helgason, skólastjóra Póst- og símaskólans,
um starfsemi skólans, en Kristján hefur að
verulegu leyti borið hitann og þungan af
skipulagningu þessa þáttar stofnunarinnar
og er hann eini fastráðni starfsmaður skól-
ans.
Námið við skólann skiptist í nokkrar und-
irstöðugreinar, en þær eru: póstnám, sím-
virkjanám og nám til undirbúnings línu-
mannsprófi. Þessu til viðbótar kemur fram-
haldsnám í áðurnefndum greinum, þ. e. nám
póstmanna til yfirpóstafgreiðslumanna-
prófs, nám símvirkja til símvirkjameistara-
prófs, nám símritara til yfirsímritaraprófs
og Símsmiðanám í framhaldi af línumanna-
prófi.
Auk þessa hefur skóhnn efnt til ,,frjálsra“
námskeiða fyrir starfsfólk stofnunarinnar
m. a. í bók'haldi og tungumálum, svo sem í
ensku og þýzku fyrir starfsfólk talsam-
bandsins við útlönd og í frönsku fyrir starfs-
fólk í póststörfum, en eins og kunnugt er er
franska alþjóðlegt póstmál.
Allir nemendur skólans í „föstu námi“ eru
á námslaunum, meðan á námi stendur, og
eru launin ákveðinn hundraðshluti af laun-
um endanlegs launaflokks þeirra að námi
loknu.
Nú sem stendur eru samtals 95 nemendur
í námi við Póst- og símaskólann. í sameigin-
legum bekk nemenda í loftskeyta- og sím-
virkjanámi eru alls 27 nemendur, þar af eru
11 í símvirkjanámi og 16 í loftskeytanámi. í
2. foekk símvirkjanáms eru nú 11 nemendur,
Kristján Helgason, skólastjóri.
þar af eru 8, sem verið hafa í símvirkjanámi
frá byrjun, og 3 loftskeytamenn, sem bætt-
ust ií hópinn í 2. bekk. í 3. bekk símvirkja-
náms eru 13 nemendur, þar af eru 5 loft-
skeytamenn, sem komu inn í 2. bekk.
13 nemendur eru í 1. bekk póstnáms og
sömuleiðis 13 nemendur í 2. bekk sama
náms.
Þá er nýlokið linumannsnámskeiði, þar
sem þátttakendur voru alls 15, en fleiri eru
á svonefndum reynslutíma og eru ek'ki
formlega komnir inn í skólann.
Eftir áramót er að sögn skólastjóra ætl-
unin að inn í skólann komi nýr bekkur í
póstnámi og ennfremur nýr bekkur loft-
skeytamanna í símritaranámi. Þá er ætlun-
in að efna til námskeiðs fyrir línumenn til
símsmiðaprófs og er gert ráð fyrir, að bekk-
irnir verði tveir, og framhaldsnámskeiðs
fyrir símvirkja, sennilega 1—2 bekkir.
Ennfremur er fyrirhugað að hefja eftir
áramót kennslu til prófs yfirsímritara og
efna til námskeiðs fyrir bréfbera og ,-,sund-
urlesara11 pósts.
Að síðustu koma um áramótin inn í skól-
ann tveir nýir hópar til þátttöku í námskeiði
til undirbúnings línumannaprófi.
Að undanförnu hefur gætt nokkurrar ó-
ánægju með fyrirkomulag kennslu til und-
irbúnings símsmiðaprófi, en nú horfir til
bóta í því efni. Um þetta atriði sagði Krist-
50
S I MAB LAÐIÐ