Símablaðið - 01.12.1973, Side 28
— III !■!! 1111—II
MINNING
skeytaskólann og lauk prófi þaðan
Páli Rúnar Jóhannesson
yfirsímritari
Á allt, sem áttum sundurlaust
og saman,
er sætst og þakkað — alvöruna
og gaman.
Ég finn til skarðs við auðu
ræðin allra,
sem áttu rúm á sama
aldursfari
Miðvikudaginn 23. maí 1973
barst sorgarfregn til okkar starfs-
mannanna i Gufunesi. Mætur
skólafélagi og starfsbróðir um
fjökla ára, Páll Rúnar Jóhannes-
son, var látinn, tæplega 41 árs gam-
all.
Páll Rúnar fæddist á Akureyri
14. ágúst 1932. Bjuggu foreldrar
bansí lnisinu Rosenborg. Ölst hann
iþar upp og lauk gagnfræðaprófi
frá Gagnfræðaskóla Akureyrar.
Árið 1953 innritaðist hann í Loft-
1954, ásamt undirrituðum. Ekki
vildi Páll binda sig við sjóinn, cn
vildi þó stunda þann starfa, sem
bann menntaði sig fyrir. Ilóf hann
því störf við fjarskiptastöðina i
Gufuncsi 1(5. maí 1955 sem loft-
skeytamaður við veðurþjónustu,
tók síðar símritarapróf og loks yf-
irsímritarapróf hjá stofnuninni.
Var hann starfsmaður í Gufunesi
þar til hann varð að hætta störfum
sökum veikiuda.
Loftskeytamannastarfið á skip-
um var alltaf ofarlega í huga Páls,
þó að hann gerði það ekki að lífs-
starfi sínu, því hann fór margar
ferðir scm loftskeytamaður í frí-
tíma sinum.
Páll Rúnar var heilsteyptur per-
sónuleiki. Hann sagði sina mein-
ingu, hver svo sem í hlut átti. Hann
hafði alla tíð mikinn áhuga fyrir
félagsmálum. Þótt hann kysi ekki
að standa á oddinum í baráttunni,
fylgdist hann vel með og lagði sitt
af mörkum til að ná fram kjarabót-
um.
Páll Rúnar kvæntist eftirlifandi
konu sinni Ragnheiði Guðráðsdótt-
ur árið 1953 og eignuðust þau 3.
mannvænleg börn, Sigríði 20 ára,
Margréti 16 ára og Jóhann 13 ára.
Votta ég þeim og öðrum aðstand-
endum mina innilegustu samúð.
Sigurður Tómasson.
SÍMAB LAÐ IO