Símablaðið - 01.12.1973, Page 29
MINNING
Magnús Jochumsson
fyrrv. póstmeistari
Magnús Jochumsson, fyrrverandi
póstmeistari í Reykjavík, andaðist
11. nóvember síðastliðinn, 84 ára að
aldri.
Magnús Jochumsson fæddist á ísa-
firði 14. ágúst 1889. Hann varð
stúdent frá Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1911 og stundaði
síðan liáskólanám í Kaupmannahöfn
í latínu, frönsku, ensku og dönsku
til ársins 1919.
Ævistarf sitt átti Magnús hjá ís-
lenzku póstþjónustunni, var skipað-
ur fulltrúi aðalpóstmeistara 1. jan-
úar 1919; skipaður póstmálafulltrúi
1946 og póstmeistari í Reykjavík ár-
in 1952-1959.
Magnúsi var falin skipulagning og
forsjá milliríkjaviðskipta póstþjón-
ustunnar, en þau mál höfðu áður
verið í höndum dönsku póststjórnar-
innar. Mun enn vera búið að þeim
undirstöðum, sem Magnús lagði í
þessum efnum.
Það var póstþjónustunni mikið
happ, að svo hámenntaður maður
sem Magnús Jochumsson skyldi ráð-
ast í hennar þjónustu. Hann gekk
að starfinu af alúð og áhuga og öðl-
aðist fljótt djúpstæða þekkingu á
alþjóða-póstlöggjöf og póstlöggjöf í
öðrum löndum.
Jafnframt bví að annast utanríkis-
mál póstsins, þ. e. samskipti við er-
lendar póststjórnir og alþjóðastofn-
anir, bæði reikningsskil og samn-
ingagerðir hvers konar, kom 'það að
sjálfu sér, að honum var falið að
grundvalla hvers konar nýmæli í
póstmálum hérlendis og færa í hún-
ing reglugerða og leiðbeininga.
Magnús Jochumsson lét af starfi
hjá póstþjónustunni árið 1959 eftir
40 ára bjónustu í hennar þágu. En
nokkur næstu árin vann hann að
ýmsum verkefnum fyrir póst- og
símamálastjórnina, svo sem hýðing-
um. Jafnframt vannst honum þá
meiri tími til að sinna ýmsum hugð-
arefnum sínum. Hann stundaði til
dæmis finnskunám við Háskóla ís-
lands og tók þar próf 81 árs að aldri.
Meðal bóka, sem Magnús Jochums-
son hefur þýtt af erlendum málum
á íslenzku, eru: „Nazareinn“, þrjú
bindi, eftir Sholem Asch, „Endur-
minningar sævíkings“, eftir L. T.
Golif, „Vonin blíð“ eftir færeyska
skáldið WiIIiam Heinesen, og „Man-
illareipið" eftir finnska höfundinn
Veijo Meri, en tvær síðastnefndu
skáldsögurnar þýddi Magnús ásamt
öðrum.
5 I MAS LAÐIÐ
59