Símablaðið - 01.12.1973, Page 30
Furhubréf Póstmannafélagsins
í byrjun nóvember barst stjórn Félags
íslenzkra símamanna samrit af furðulegu
bréfi, sem stjórn Póstmannafélags íslands
hafði skrifað Braga Kristjánssyni reksturs-
stjóra Pósts og Síma, en samrit af bréfi þessu
höfðu póstmenn einnig sent samgönguráðu-
neytinu.
í bréfinu er Félag íslenzkra símamanna bor-
ið þungum og alvarlegum sökum, en í svar-
bréfi rekstursstjóra er sýnt fram á, að ásakan-
ir þessar í garð F.Í.S. eru gersamlegar úr
lausu lofti gripnar og eru bæði órökstuddar
og ósannar.
Félagi íslenzkra símamanna er ekki kunn-
ugt um, hvaða tilgangi furðubréfi stjórnar
P.F.Í. er ætlað að þjóna. Verður helzt álitið,
að með bréfinu hafi bréfritarar viljað sverta
félagsmenn F.Í.S., starfsfólk Pósts og Síma,
í augum yfirmanna stofnunarinnar og sam-
gönguráðuneytisins.
Framkvæmdastjórn F.Í.S. hefur tvisvar fjall-
að um þetta marklausa og furðulega bréf for-
ystumanna P.F.Í. á fundum sínum og sam-
þykkti hún, eftir að hún hafði fengið afrit af
svarbréf rekstursstjóra, að bæði bréfin yrðu
birt hér í blaðinu, þannig að félagsmenn
fengju fulla vitneskju um mál þetta eins og
það gekk fyrir sig. Fara bréfin hér á eftir:
BRÉF PÓSTMANNAFÉLAGSINS.
„Reykjavík 1. nóvember 1973. — Rekstrar-
stjóri Pósts og Síma, Flr. Bragi Kristjánsson,
Landsímahúsinu, Reykjavík. —
Okkur hefur borist kæra frá nokkrum af
starfsmönnum Póstgíróstofunnar þess efnis,
að Félag íslenzkra símamanna hafi nú og und-
anfarið látið draga af launum þeirra gjöld til
F.Í.S.
Hér er um að ræða félaga í Póstmannafé-
lagi Islands og munu þeir standa okkur skil
á félagsgjöldum sem slíkir. Petta hlýtur F.Í.S.
að vera fullkunnugt um, enda um póststörf að
ræða. Hafa umræddir félagar bent á þetta, án
þess að fá leiðréttingu.
Stjórn P.F.Í. lítur mjög alvarlegum augum
svona vinnubrögð, sem ekki eru sæmandi
nokkru stéttarfélagi, og krefst þess, að þetta
mál verði tafarlaust tekið fyrir af rekstrar-
stjóra, sem sjái svo um, að full leiðrétting
fáist.
Jafnframt tökum við fram, að við munum
ekki þola endurtekningu svona ráðslags, og
förum fram á, að löglegir félagar í P.F.Í. verði
látnir í friði fyrir ómannsæmandi yfirgangi
óskilds stéttarfélags.
Vi rði ngarfy I Ist, Póstmannaféfag íslands.
Reynir Ármannsson, Axel Sigurðsson, Birgir
Jakobsson".
SVARBRÉF REKSTURSSTJÓRA
PÓSTS OG SÍMA.
Hinn 14. nóvember s.l. barst formanni F.Í.S.
síðan afrit af bréfi Braga Kristjánssonar,
rekstursstjóra, til Póstmannafélagsins, en af-
rit af bréfinu sendi hann einnig til sam-
gönguráðuneytisins. Bréfið er svohljóðandi:
„Póstmannafélag íslands, Pósthólf 103,
Reykjavík, 14. 11. 1973. —
í tilefni bréfs Póstmannafélags íslands,
dags. 1. nóv. 1973, viðvíkjandi félagsgjaida-
greiðsiu nokkurra starfsmanna Póstgiróstof-
unnar, skal eftirarandi tekið fram:
Frádráttur félagsgjalda F.Í.S. og P.F.Í. í
Reykjavík á sér stað í skýrsluvélum ríkisins
og hefur starfsfólkinu, af hagkvæmisástæð-
um vegna vinnslu í skýrsluvélum, frá gam-
alli tíð verið skipt í mismunandi deildir, t. d.
fastráðið starfsfólk Pósts og Síma nr. 610,
lausráðið nr. 620 og fastráðið hjá Póststofunm
í Reykjavík nr. 640.
Af starfsfólki í deildum nr. 610 og 620 hef-
ur verið tekið félagsgjald mánaðarlega 1%
af fastakaupi, en í nr. 640 einu sinni eða tvisv-
ar á ári skv. munnlegri ósk deildarstjóra á
skrifstofu Póststofunnar í Reykjavík og hafa
þessar innheimtur um fjölda ára alltaf komist
til skila á rétta staði.
Frá því að Póstgíróstofan tók til starfa hafa
starfsmenn hennar verið skráðir í nr. 610 og
620 og eru enn. Par af leiðandi hafa félags-
BÍ MAB LAÐ IÐ