Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.01.1980, Síða 2

Símablaðið - 01.01.1980, Síða 2
Jón Þóroddur Jónsson. Fyrsta íslenska jarðstöðin Draumurinn um íslenska jarðstöð er að rætast. Framundan eru því straumhvörf í ís- lenskum fjarskiptamálum, því í apríl n.k. mun starfsemi jarðstöðvarinnar hefjast. Aðaleinkenni jarðstöðva er loftnetið, sem líkist mest stórum disk, en hefur form eins og parabóla. A forsíðumyndinni sjáum við hvar loftnet fyrstu íslensku jarðstöðvarinnar teigir sig upp úr snjóbreiðunni við Úlfarsfell í Mos- fellssveit. Mikil vinna liggur að baki uppbyggingu þessarar stöðvar og undirbúnings og hefur sú vinna að mestu leiti hvílt á herðum örfárra starfsmanna Pósts og síma. Undirbúningsvinnan var unnin af Jarð- stöðvarnefndinni, sem sæti áttu í: Ólafur Tómasson, yfirverkfr., sem var formaður nefndarinnar, Gústav Arnar, yfirverkfr. og Jón Kr. Valdimarsson, deildartæknifr. Starfsmaður nefndarinnar var Jón Þóroddur Jonsson, verkfr. Þessi nefnd starfaði um tveggja ára bil. I þeirri Jarðstöðvarnefnd, sem nú starfar, eru: Gústav Arnar, sem er formaður nefnd- arinnar, Jón Kr. Valdimarsson og Jón Þór- oddur Jónsson. Yfirmaður Jarðstöðvarinnar er Jón Þóroddur Jónsson og aðrir starfs- menn eru: Guðni Ágústsson, símv.m., sem er verkstjóri stöðvarinnar, Páll Skýlindal, símv.m. og Markús Jósefsson, símv. Þessir starfsmenn, ásamt Jóni Þóroddi Jónssyni, fóru til Bandaríkjanna s.l. ár og kynntu sér tækjabúnað jarðstöðva. Símablaðið fékk þær upplýsingar hjá Jóni, að uppsetningu tækjanna væri lokið. Uppsetningin var innifalin í kaupverði tækj- ana og var hún því framkvæmd af tækni- mönnum frá Bandaríkjunum, þaðan sem tækin voru keypt. Prófun stendur nú yfir og er ráðgert að starfsemi stöðvarinnar hefjist í apríl n.k., eins og áður segir. Frá ritstjórn: Ritstjórn Símablaðsins telur sérstaka ástæðu til að þakka Þorvarði Jónssyni, yfir- verkfræðingi, fyrir fróðlega og læsilega grein hans hér i blaðinu. í greininni birtast svör við fjölmörgum spurningum, sem brunnið hafa á vörum símamanna. Ritstjórnin hefur góð orð frá Þorvarði um að vera okkur hjálplegur um fræðandi efni í framtiðinni. H.H.

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.