Símablaðið - 01.01.1980, Blaðsíða 6
viðbótar því sem áður var, niðurlagningu á
stöðum og menntunarkröfur og önnur skil-
yrði til starfa (3. gr. 1. mgr.).
F.Í.S. lagði mikla áherslu á bæði þessi
atriði, en eins og kunnugt er hefur talsvert
verið um það að undanförnu að stöður hafa
verið lagðar niður vegna aukinna sjálfvirkni
og styttingar á þjónustutíma símstöðva. Nú
verður skylt að fjalla um slík efni í starfs-
mannaráði áður en ákvarðanir um það eru
teknar. Þá taldi félagið mjög mikilvægt að fá
tækifæri til að hafa áhrif á kröfur þær sem
gerðar eru til umsækjenda um stöður, en
þetta ákvæði tryggir það m.a. að allar breyt-
ingar í þessum efnum ber að ræða í ráðinu.
III. Kveðið er á um það að póst- og síma-
málastjóri skuli boða starfsmannaráð á alla
fundi sem hann heldur með framkvæmda-
stjórum aðaldeilda og umdæmisstjórum, eða
svo kölluðum ársfjórðungsfundum, sbr. lög
um stjórn og starfrækslu póst- og símamála
en skv. þeim ber honum aðeins að boða
ráðið á einn slíkan fund á ári (3. gr. 2. mgr.).
Starfsemi og hlutverk starfsmannaráðs
hefur verið nokkuð til umræðu að undan-
förnu ekki hvað síst vegna könnunar Há-
skóla íslands á viðhorfum til slíkra ráða í
nokkrum stofnunum, en fjöldi starfsmanna
hefir fengið spurningalista þar að lútandi, en
áður höfðu ráðsfulltrúar svarað spurningum
háskólans.
F.Í.S. hefur ávallt lagt mikla áherslu á
þýðingu Starfsmannaráðs, en tæp 27 ár, eru
nú síðan Starfsmannaráð Landssímans tók
til starfa, en það var þá algjör nýjung hér á
landi.
Hér fer á eftir í heild hin nýja reglugerð
um Starfsmannaráð Póst- og símamálastofn-
unarinnar og hvet ég alla félagsmenn til að
kynna sér efni hennar vel.
Á.G.
Fulltrúar í Starfsmannaráði Pósts og síma. F.v.: Kristján Helgason, Umdæm-
isstjóri, Sigurður Þorkelsson, framkvæmdastjóri Tæknideildar, Þorgeir K.
Þorgeirsson, framkv.stjóri Umsýsludeildar, Bragi Kristjánsson, framkv.stjóri
Viðskiptadeildar, Bjarni Ólafsson, fulltrúi F.Í.S., Páll V. Daníelsson, fram-
kv.stjóri Fjármáladeildar, Björn Björnsson, formaður P.F.I., Gylfi Gunnars-
son, fulitrúi póstmanna og Ágúst Geirsson, formaður F.Í.S.
(Mynd: Jón Svavarsson).
4 SÍMABLAÐIÐ