Símablaðið - 01.01.1980, Síða 7
Reglugerð um Starfsmannaráð
Póst- og símamálastofnunarinnar
1. gr.
Hjá Póst- og símamálastofnun skal vera
starfsmannaráð skipað á eftirfarandi hátt:
a) Framkvæmdastjórar aðaldeilda Póst- og
símamálastofnunarinnar (fjármáladeild,
tæknideild, umsýsludeild og viðskipta-
deild) og umdæmisstjóri í Umdæmi I.
b) Formaður Félags íslenskra símamanna,
formaður Póstmannafélags íslands og
einn fulltrúi tilnefndur af Félagi íslenskra
símamanna. Auk þess á varamaður for-
manns Póstmannafélags íslands, sem fé-
lagið tilnefnir, sæti á fundum ráðsins með
málfrelsi og tillögurétti.
c) Fulltrúi Félags háskólamenntaðra póst-
og símamanna, þegar fjallað er um stöð-
ur, þar sem krafist er háskólamenntunar,
svo og á fundum í starfsmannaráði, sem
póst- og símamálastjóri boðar til skv. 2.
mgr. 3. gr.
2. gr.
Starfsmannaráð kýs sér formann og vara-
formann til eins árs í senn úr hópi fulltrúa
stjórnenda Póst- og símamálastofnunar og
ritara og vararitara úr hópi fulltrúa félag-
anna.
Starfsmannaráð skal halda fund minnst
einu sinni í mánuði.
Starfsmannaráð getur ákveðið fasta fund-
ardaga og haldið aukafundi eftir því sem
þörf krefur, svo og ef a.m.k. þrír atkvæðis-
bærir ráðsmenn krefjast. Formaður boðar
fundi með dagskrá og stjórnar þeim. Fundir
eru ályktunarbærir, ef 5 atkvæðisbærir ráðs-
menn eru mættir, enda hafi allir verið
boðaðir. Að jafnaði skal ekki afgreiða mál,
er heyra undir einhvern fulltrúa stofnunar-
innar í ráðinu, að honum fjarstöddum, né
heldur mál er varða starfsfólk að fjarstödd-
um fulltrúum viðkomandi félags, sbr. b. lið
1. gr.
Halda skal gjörðabók, þar sem fundarefni
og afgreiðsla mála er skráð. Ef ráðið er ekki
sammála hafa einstakir ráðsmenn rétt á að fá
bókuð sutt efnisleg sérálit.
Afgreiðsla mála og sérálit skulu jafnan
fylgja til þess aðila, sem fær málið til endan-
legrar afgreiðslu. Allir fundarmenn skulu
undirrita fundargerð.
3. gr.
Starfsmannaráð fjallar um þau mál, er
varða launakjör og starfsaðstöðu starfsfólks,
skipun og setningu í stöður, niðurlagningu á
stöðum, frávikningu, menntunarkröfur og
önnur skilyrði til starfa, svo og önnur mál er
varða hagsmuni einstakra starfsmanna,
starfshópa og stofnunarinnar, hvort sem þau
berast frá póst- og símamálastjóra eða
einstakir ráðsmenn bera þau fram. Skal að
jafnaði kynna málin með dagskrá.
Póst- og símamálastjóri skal boða starfs-
mannaráð á fundi þá, sem hann heldur með
framkvæmdastjórum aðaldeilda og umdæm-
isstjórum sbr. 8. gr. laga um stjórn og starf-
rækslu póst- og símamála nr. 36/1977.
Skal þar leggja fram, skýra og ræðarekstr-
ar- og framkvæmdaáætlanir stofnunarinnar,
svo og ársreikninga og fjárhagsstöðu, og
annað er varðar meginstefnumál og verkefni
stofnunarinnar.
Leitast skal við að auka áhuga starfsfólks-
ins á því að gefa ráðinu ábendingar um það,
sem betur mætti fara og gera tillögur til úr-
bóta og senda þær starfsmannaráði. Póst- og
símamálastjóri veiti starfsmönnum viður-
kenningu fyrir slíkar tillögur, eftir ábendingu
starfsmannaráðs.
SÍMABLAÐIÐ 5