Símablaðið - 01.01.1980, Page 11
athygli sína vakandi í Contor 85. Þar hafa
menn haft athygli vakandi á skrifstofu með
nýjustu rafeindatækni sem getur tengt sín
tæki við síma og tölvunet símans.
Um leið verðum við að nema staðar og
athuga hvaða áhrif tölvuvæðingin hefur á
vinnu og starfsskylirði starfsfólksins. Við
megum ekki láta heillast af tæknilegum
möguleikum tölvunnar til að geyma og með-
höndla upplýsingar. Við verðum að vega og
meta afleiðingarnar fyrir t.d. framtíð skrif-
stofuvinnunnar sem er afleiðing tölvuvæð-
ingar. Nýlega hefur vaknað áhugi á sálræn-
um og þjóðfélagslegum vinnuskilyrðum sem
á rót sína að rekja til aukinnar tölvuvæðing-
ar á skrifstofum og áhrifum hennar á skipu-
lagningu vinnunnar. Þessi hraða þróun
minnkar ekki áhugann og þörfina á að varpa
ljósi á og leysa starfsskilyrðin heldur eykur
hann miklu fremur.
Orkuvandinn skiptir sköpum um
tölvuvæðingu
Ameríski tölvusérfræðingurinn James
Martin heldur því fram að heimsmarkaðs-
verð á olíu ráði hraða tölvuvæðingarinnar.
Hann álítur að mikill hluti olíunotkunar fari
til ferðalaga fólks frá einum stað til annars
eingöngu til upplýsingaöflunar. Mikinn
hluta þessara upplýsinga (enn meiri síðar) er
hægt að gera aðgengilegan með tölvuneti.
Þannig er hægt að fækka fræðslu eða upp-
lýsingaferðum.
Notkun teletex og telefaximil er enn ein
aðferð við að dreifa upplýsingum. Þar sér
maður önnur áhrif tölvuvæðingarinnar —
samkeppnisaðila við póstinn. Bréf sem ritað
er á skrivautomat er sent gegnum telenatet
beint til annars skrivautomat án milligöngu
póstsins.
Ekki er um það að ræða að stöðva þróun-
ina. Eigi að vera hægt að taka upp tækni-
þróun verður hún samhliða að innihalda
betri starfsskilyrði. Að öðrum kosti er um að
ræða tæknilegar breytingar. Efalaust hefur
tölvuvæðingin leyst manninn af hólmi hvað
viðvíkur óhreinlegum, hættulegum og ein-
hæfum störfum og verður það að teljast
jákvætt. Starfsfólkið verður að geta haft
áhrif á tölvukerfið með því að vera með í
ráðum við skipulagningu og kaup á útbúnaði
nýrra tækja og tölva. Hin beinu samskipti
manna minnka við að notuð er talva. Getum
við í framtíðinni lifað í híbýlum okkar,
pantað vörur gegnum tölvu og borgað gegn-
um bankareikninginn með tölvu? Við blöð-
um gengum dagblaðið á sjónvarpsskermi og
við getum náð í frænku á Siglufirði á skerm-
inn viljum við tala við hana. Hvenær sem er.
Aukin þekking og möguleiki á stjórnun er
það sem ræður — vinur eða fjandmaður.
Þýtt úr St. televerket INFO nr. 6 '19
Þ.Ó.
SÍMABLAÐIÐ 9