Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.01.1980, Síða 12

Símablaðið - 01.01.1980, Síða 12
<* Irsk þrautsegja Myndin er tekin í O’ConnelI-stræti, sem er aðalgatan í Dublin á írlandi. Fremst á myndinni er aðalbygging Pósts- og síma á írlandi. Það var í þessari byggingu sem lýst var yfir stofnun írska lýðveldisins árið 1916, en þar voru þá höfuðstöðvar írsku frelsishreyfingar- innar. Á síðastliðnu vori barst F.Í.S. ábending frá PTTI (Alþjóðasambandi póst- og síma- manna) um að eitt af aðildarfélögum sam- bandsins ætti í erfiðri vinnudeilu. Var það írska félagið Post Office Workers’ Union sem telur um 7000 meðlimi, sem starfa bæði við póst og síma. Væru allir félagsmenn þess búnir að standa í verkfalli í rúma 2 mánuði til þess að fylgja eftir réttmætum launakröf- um, en þeir hefðu dregist aftur úr öðrum starfshópum á undanförnum árum. Þetta langa verkfall hafði nú haft þau áhrif á sjóði félagsins að þeir gætu ekki lengur veitt fé- lagsmönnum neina aðstoð. Hvatti PTTI þau aðildarfélög sem bol- magn hefðu til að senda POWU fjárhags- stuðning. Stjórn F.Í.S. samþykkti einróma að senda félaginu smá fjárupphæð, sem vott um stuðning okkar og virðingu fyrir baráttu þeirra. Eftir að verkfalli þeirra lauk barst stjórn F.Í.S. svohljóðandi bréf í lauslegri þýðingu: Kæru félagar. Fyrir hönd POWU vil ég færa ykkur ein- lœgar þakkir fyrir rausnarlegan stuðning við tilraun okkar til að bœta kjör félagsmanna okkar. Það var okkur mikil hvatning að verða var við umhyggju ykkar á þennan hátt og sér- staklega að vita að barátta okkar nyti stuðn- ingsykkar. Verkfaliið stóð frá 18. 2. 1979 til 26. 7. 1979 og árangur þess var launahækkun frá 12—21% til allra okkar félagsmanna. Að auki var tryggt jafnrétti í launum milli kven- símavarða og karl-símavarða, sem vinna á nóttum, án þess að konurnar yrðu skyldaðar til nœturvakta. Með þessum árangri lýkur 10 ára baráttu við Póst- og símastofnunina, sem felur í sér 32% hækkun til kven-talsíma- varða. Til viðbótar hefur síðan verið samið um 2 sterlingspund auka á viku. Félagið stóð frammi fyrir eindreginni ákvörðun stjórnvalda að semja ekki um neinar launahœkkanir fyrr en vinna væri hafin á ný, en hin algjöra samstaða félags- manna í 18 langar vikur neyddi ríkisstjórnina til að gefast upp og gera viðunandi sam- komulag áður en félagsmenn hyrfu aftur til starfa. Verkfallið var það lengsta í sögu landsins síðan 1913 þegar verkamenn í Dublin fyrst risu upp og héldufram rétt sínum til að vera í stéttarfélagi. 10 SÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.