Símablaðið - 01.01.1980, Blaðsíða 14
Minningargreinar
Sæmundur Símonarson.
Sæmundur Símonarson símritari, andaðist
á Landspítalanum 11. janúar s.l. Hann átti
að baki sér nær hálfrar aldar starf innan
Símastofnunarinnar. Þar verður hans lengi
minnst sem góðs starfsmanns. Hann var þar
eftirminnileg fyrirmynd um skyldurækni og
fágaða framkomu við starfsfélaga og við-
skiptavini.
í félagslífi símamanna verður hans ekki
minnst sem neins miðlungsmanns. Þar var
hann virkur og farsæll trúnaðarmaður um
áratugaskeið, og var kjörinn til nær allra
helstu trúnaðarstarfa samtakanna. Ekki var
það af því að hann sæktist eftir þessu, heldur
öðlaðist hann tiltrú þrátt fyrir hlédrægni
hans. Honum var treyst til þess að fylgja
málum eftir. Með honum vildu allir starfa,
sem kynntust skapferli hans og heiðarleik. í
slíkum félagssamtökum sem F.Í.S. eru oftast
einhverjir, sem telja vænlegast til árangurs,
12 SÍMABLAÐIÐ
að vera með hnefana á lofti. Það var honum
víðsfjarri. Með hæglátum og hógværum rök-
um beindi hann oft sókninni inn á árangurs-
ríkar leiðir. Með því vann hann sér líka þá
tiltrú yfirrnanna stofnunarinnar, sem við
samferða- og samstarfsmenn hans gleymdum
ekki.
Sæmundur var heiðursmaður, sem ekki
mátti vamm sitt vita. Hann var Ijúfur í við-
móti, og traustvekjandi, einn þeirra sam-
ferðamanna á lífsleiðinni, sem maður saknar
við ferðalok.
Á sextíu ára afmæli F.Í.S. árið 1965 var
Sæmundur kjörinn heiðursfélagi F.Í.S.
Við félagar í Eftirlaunadeild F.Í.S.
sendum Svanhildi ekkju hans og sonum,
innilegar samúðarkveðjur, og biðjum Guð
að blessa minningu hans.
A.G.Þ.
Sæmundur Símonarson var fæddur á Sel-
fossi 22. mars 1903. Eftir að hafa lokið námi
við Samvinnuskólann stundaði hann símrit-
unarnám við Ritsímann í Reykjavík 1928.
Hann starfaði síðan á Akureyri og Seyðis-
firði, en við Ritsímann í Reykjavík hóf hann
störf 1941, og vann þar sem símritari síðan,
þar til hann lét af því starfi fyrir aldurssakir
1973. Hann var jafnna fulltrúi F.Í.S. á flest-
um þignum B.S.R.B., og fulltrúi þess í
Starfsmannaráði Landssímans um margra
ára skeið.
Formaður F.Í.S. var hann um 3ja ára
skeið, og átti sæti í stjórn félagsins í fjölda
mörg ár. Auk þessa var hann kallaður til
fjölda vandasamra trúnaðarstarfa fyrir síma-
mannastéttina. Hann átti sæti í stjórn Eftir-
launadeildar F.Í.S. frá stofnun hennar, og
var fyrsti formaður hennar.
Sæmundur var heiðursfélagi F.Í.S.