Símablaðið - 01.01.1980, Síða 26
Við símastörf
í Danmörku
Oktavía Guðmundsdóttir.
í haust sem leið, hafði Símablaðið fregnir
af því, að einn sumarafleysari Ritsímans í
Reykjavík, Oktavía Guðmundsdóttir, hefði
unnið í tæpt ár við Rigstelefonen í Árósum.
Þótti trúlegt að mörgum þætti fróðlegt að
heyra hvernig starfið þar gengi fyrir sig, tók-
um við því Oktavíu tali.
— Hvernig stóð á því, að þú fórst að
starfa í Danmörku, Oktavía?
— Við hjónin, ásamt tveim sonum okkar,
erum búsett í Árósum, meðan maðurinn
minn stundar þar nám. Ég þurfti að fá mér
vinnu og þar sem ég hafði starfað í fjögur ár
við Ritsímann í Reykjavík, datt mér í hug
hvort möguleikar væru á starfi við Ritsím-
ann í Árósum. Svo var ekki, en mér var
boðið að taka þátt í fimm vikna námskeiði
við Talsímann þar. í fyrstu fannst mér það
algjör firra, að ætla mér að vinna við talsíma
vegna málsins, en það gekk ótrúlega vel að
komast inn í þetta og að námskeiðinu loknu
hóf ég starf við Rigstelefonen : Árósum.
— Hvaða menntunar er krafist af um-
sækjendum?
— Það er krafist góðrar almennrar mennt-
unar auk þýsku- og ensku kunnáttu.
— í hverju er starfið fólgið?
— Rigstelefonen er ekki langlínustöð eins
og hér, heldur eru teknar niður beiðnir um
samtöl, ef t.d. númer hafa verið lengi á tali
og fólk er orðið óþolinmótt. Er þá beiðninni
komið áleiðis til Rigstelefonen í Kaupmanna-
höfn, sem afgreiðir samtalið. Aðalstarfið er
24 SÍMABLAÐIÐ
við Bílaradíóið (Biltelefon) og Upplýsingar,
en þær eru gefnar allan sólarhringinn. Einnig
eru afgreidd svo nefnd fundarsamtöl, þar
sem 5—6 aðilar geta talað saman í einu.
Hvernig er vinnunni háttað?
— Hver stúlka hefir sitt borð, þar sem
tveir viðskiptavinir geta komið upp í einu.
Ekki mega líða nema þrjár sekúndur áður en
svarað er, og verður því oft að biðja annan
aðilann að bíða, meðan lokið er við að
afgreiða hinn. Stöðugt eftirlit er með því
hvernig hver og einn sinnir sínu starfi. Það er
mjög mikið að gera og mikið álag, en vakt-
inni er skipt milli starfsgreina, t.d. er unnið í
tvær klst. í Upplýsingum og svo þrjár klst.
við Bílaradíóið. Er mikil hvíld í því.
— Hvernig er vinnuaðstaðan? Það eru
auðvitað tölvuskermar í Upplýsingum?
— Nei, síður en svo. Það er mjög gamal-
dags aðstaða þarna, því það eru notaðar
venjulegar símaskrár og getur stundum verið
seinlegt að fletta upp í þeim, þar sem gefnar
eru upplýsingar fyrir allt Sjáland, Suður-Jót-
land og Fjón.
— Eftir þessu að dæma er þá ófullkomn-
ari aðstaða á Rigstelefonen í Árósum, en í 03
hjá okkur, en þangað eru væntanlegir tölvu-
skermar á næstunni.
— Já, það er alveg rétt. En í sama húsi og
Rigstelefonen er, hefir Jydsk Telefon aðsetur
og hann er með upplýsingaþjónustu fyrir allt
Jótland. Þar eru tölvuskermar og ágæt