Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2006, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2006, Blaðsíða 10
70 FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR2006 Fréttir DV Kostir & Gallar Elma Lisa er traustur og skemmtilegur dugnaðar- forkur. Hún er tapsár og morgunfúl. „Hún eryndisleg manneskja i alla staði og ein af mínum bestu vinkon- um. Hún er ótrúlega skemmtileg, hlý, fyndin og klár. Það er alltafgaman að vera í kringum hana. Hún er traust- ur vinur og stórkostleg leik- kona. Hún hefur enga galla nema kannski að vera svolítið morgunfúl." ' Nína Dögg Filippusdóttir leikkona. „Kostir hennar eru að hún er óhrædd við að prófa nýja hluti. Svo er hún afskaplega drífandi og fylgin sér. Hennar gallar eru að hún er tapsár og kannski aðeins ofdugleg við að fylla fataskápinn." Jón Atli Jónasson rithöfundur. „Kostur Elmu Usu er fyrst og fremst dugnaður. Það að vinna með henni og hún vinnur vel. Hún er geislandi fal- leg og það er ailtaf gaman að hitta hana. Mér finnst hún ekki hafa neina galla nema kannski að hún sé ofsæt." Ólafur Darri Ólafsson leikari. ergott Elma Lísa Gunnarsdóttir er fædd 7. sepf- ember 1973. Hún gekk inn i Leiklistarskóla Islands 23 ára og útskrifaöist þaöan áriö 2001. Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum uppfærslum síöan og tók meðal annars þátt í Beyglunum í Iðnó. Elma Usa hefur starfaö sem fyrirsæta á Ítalíu og í Grikk- landi og rekur flóamarkaö viö Sirkus á Ijúfum sumardögum. Fyrsti fundur Voga Fyrsti bæjarstjórnar- fundur sveitarfélagsins Voga var haldinn í gær- kvöld í grunnskólanum Stóru-Vogaskóla. Var þetta hátíðarfundur með stuttri dagskrá. Þar var meðal annars kosið í bæjarráð, fjárhagsáætlun ársins 2006 rædd, litið á stöðu skipu- lagsmála og gert var sam- komulag við Búmenn og Snorra Hjaltason um upp- byggingu fyrir eldri borgara í Akurgerði. Árný Eva Davíðsdóttir og Kristinn Finnbogi Kristjánsson, sem voru sambýlisfólk til nokkurra ára, hafa barist fyrir forræði yfir tveimur börnum sinum sem Fjölskyldu- deild Akureyrar tók af þeim síðasta sumar. Þau hafa slitið samvistum og ætla að berjast fyrir forræðinu hvort í sínu lagi við Akureyrarbæ og síðan sín á milli. að sögn Kristins Finnboga eru þau bæði fallin í bullandi neyslu. Hann sagði það afleiðingu langvarandi andlegs ofbeldis af hálfu Fjölskyldu- deildar Akureyrarbæjar sem hefur beitt öllum ráðum til að koma í veg fyrir að þau geti átt stund með börn- um sínum. Einn tími í viku Eins og staðan er í dag fá þau að hitta hvort barn fyrir sig, klukkutíma í senn, einu sinni í viku. Kristinn Finnbogi segist vonast til að það muni breytast en getur þó ekki sagt til um hvort eða hvenær það gerist. „Það eina sem skiptir máli er að ég fái að sjá börnin mín reglulega. Það fer vel urn þau hjá fósturforeldrun- um á Dalvík en ég vil hitta þau oft- ar,‘‘ sagði Kristinn Finnbogi. „Við erum hætt saman. Þetta er bara búið. Hún er farin að búa með einhverjum öðrum gaur,“ sagði Kristinn Finnbogi í samtali við DV í gær. Að sögn Kristins Finnboga rfkir lítill kærleikur á milli þeirra skötu- hjúa. Kristinn Finnbogi segist ætla að beijast sjálfur fyrir forræði barna sinna og taka slaginn við fyrrverandi sambýliskonu sína þegar sálfræði- mat á þeim báðum hefur farið fram. í bullandi neyslu Ámý Eva og Kristinn Finnbogi eiga að baki langan feril misnotkun- ar á áfengi og fíkniefnum. Þau héldu sér á réttu róli í kringum fæðingu dóttur sinnar í maí á síðasta ári en í forræðisdeilu Fari svo að Ámý Eva og Kristinn Finnbogi fái á endanum forræði yfir börnum sínum segir Kristinn að hann muni fara í forræðisdeilu við fyrrverandi sambýliskonu sína. „Við emm ekki saman lengur og ég mun reyna að fá fullt forræði. Það þýðir ekkert annað.“ Ekki náðist í Árnýju Evu þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Deilan byrjaði þegar Fjölskyldudeild Akureyrar tók eins og hálfs klukkutíma gamalt stúlkubarn úr fangi Árnýjar Evu Davíðsdótt- ur í maí á síðasta ári. Sama dag var tveggja ára sonur hennar og Kristins Finnboga Kristjánssonar tekinn af þeim og settur í fóst- ur til Dalvíkur. Árný Eva og Kristinn Finnbogi, sem eiga að baki fortíð fulla af fíkniefna- og áfengismisnotkun, hafa barist saman fyrir forræði barna sinna án árangurs. Þau hættu öllu rugli en hafa í dag horfið í sama gamla farið. Þau eru skilin að skiptum og að sögn Kristins Finnboga ríkir lítill kærleikur á milli þeirra. KUIKKIISTIflUDAR- GAAUflLT BARIU MEKIB AF MOBIIR ,fl AKIIRfVfil Haáitm tutiMiaj gefa hmni briast psi ~-ía>otkimttiirirtltkiiinmr' Árný Eva og Krist- inn Finnbogi Hafa slitið samvistum og allt stefnir i forræðis- deiiu þeirra á milli. Anna Kristins- dóttir Eins og hún líturútídaq. Prófkjör Framsóknarflokksins í Reykjavík Nýtt andlit frambjóðanda Að mörgu þarf að hyggja fyrir prófkjör. Ekki síst útlitinu. Anna Kristinsdóttir, sem sækist eftir fyrsta sætinu á lista Framsókn- arflokksins fyrir borgarstjórnarkosn- ingarnar, hefur sent frá sér nýja ljós- mynd sem sýnir nýtt andlit fram- bjóðandans: „Myndina tók toppljósmyndari, Guðmundur Ingólfsson í ímynd,“ segir Anna sem þáði góð ráð sér- fræðinga þegar farið var yfir útlit hennar fyrir prófkjörsslaginn. „Ég er nú orðin 42 ára og með aldrinum verður alltaf erfiðara að segja manni fyrir verkum. En ég tók mark á ráðum þessa góða fólks þó svo ég hafi ekki farið í litgreiningu. En ég tók mig til og lét taka nýja mynd," segir hún. Annars segist Anna Kristinsdóttir vera í ágætu formi og hafi alltaf verið. Hún fer í líkamsrækt minnst Ijórum sinnum í viku auk þess sem hún stundar sundlaugarnar. Prófkjör framsóknarmanna í Reykjavík fer fram 28. janúar. 'mm Anna Kristins- I dóttir Eins og I hún leit út áður. s----------------

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.