Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2006, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006
Fréttir DV
1
Dúkkaði upp í
eigin útför
Angela Saraiva mætti
óvænt í eigin jarðarför -
sprelllifandi. Móðir hinnar
tvítugu argentínsku konu
hafði tilkynnt hana horfna
eftir áramótaveislu, en
Saraiva segist einungis hafa
verið í burtu í rúman sólar-
hring. Móðirin hafði borið
kennsl á lík sem líktist mjög
dóttur hermar og var í miðri
jarðarför þegar dóttirin
dúkkaði upp. „Þetta gerði
mér ljóst hversu mikið íjöl-
skylda mín og vinir elska
mig og sakna," segir Saraiva
sem ædar sér að lifa mun
lengur.
Fjórum rænt
í Nígeríu
Fjórum erlendum verka-
mönnum hjá
olíufyrirtæki
hefur verið rænt
í suðurhluta Ní-
geríu. Vopnaðir
menn réðust
um borð í bát
sem flytur starfsmenn olíu-
risans Royal Dutch Shell.
Fyrirtækið hefur ekki upp-
lýst hvaðan gíslarnir eru, en
fregnir herma að um sé að
ræða í það minnsta einn
Breta og mann frá
Hondúras. Mannrán af
þessu tagi eru algeng í Ní-
geríu þar sem lausnargjalds
er krafist af fyrirtækjum eða
aðstandendum.
Pöndupólitík
Sem vott um vinsemd
og virðingu hefur Kína boð-
ið Taívönum tvo
pandabirni, karl-
kyns og kvenkyns.
Boðið hefur hins
vegar valdið
uppnámi í Taívan
þar sem menn
telja að þekkist
þeir boðið séu þeir
um leið að viður-
kenna að ríkið sé enn hluti
af Kína, því samkvæmt
reglum um dýr í útrýming-
arhættu má ekki gefa þess
konar dýr milli landa. Yfir-
völd í Kína líta á Taívan
sem óaðskiljanlegan hluta
Kína sem eigi að lúta þeirra
stjórn. Taívanar eru þó ekki
á þeirri skoðun og munu að
öllum líkindum afþakka
pöndurnar.
„Það er alltafheilmikið að ger-
ast á Hornafírði," segir inga
Jónsdóttir, myndlistarmaður
á Hornafíröi.„Við opnum sýn-
inguna Auður Austurlands í
húsnæði Jöklasýningar á
Landsímiim
Hún
gengur útáað sýna og kynna
fjölbreytta muni sem unnir eru
úr hráefni sem tengist Austur-
landi eins og hreindýraskinni,
hreindýrshorni og beini, lerki
og líparíti. Þar verður líka
kynnt samkeppni innan Nest-
verkefnisins sem er fjölþjóð-
legt verkefni sem vinnur að
eflingu ferðamannaiðnaðar á
norðlægum slóðum."
Gestum Grafarvogslaugar brá heldur betur í brún þegar erlendir verkamenn sem
staddir eru hér á landi stungu sér til sunds á nærbuxunum. Áttu þeir engar sund-
skýlur. Að sögn gesta var mikil ólykt af mönnunum. Hafliði Halldórsson, forstöðu-
maður Grafarvogslaugar, segir gesti hafa kvartað við baðvörð vegna lyktarinnar.
A nærbuxunu
Nærbuxur Gestir í
heitum potti Grafar-
vogslaugar voru ekki
sáttir við litlar nxrbux-
ur verkamanna
*Sm HP -
jtm
wmmmmmM:
♦ ...................................................- ;•-?
i — i. i
y -r
■ ■■■ ■ ■
W ::
Hafliði Halldórsson For-
stöðumaður sundtaugar-
innar segir starfsmenn hafa
fengið kvartanir vegna
ólyktar og litilla nærbuxna.
in
Erlendir verkamenn, sem starfa hjá einu af stærri verktakafyrir-
tækjum á íslandi, brugðu sér í Grafarvogslaug nú á dögunum.
Gestum laugarinnar leist ekki á blikuna þegar mennirnir gengu
út úr búningsklefunum á nærbuxunum og stungu sér til sunds.
„Þú ert væntanlega að hringja út
af útlendingunum sem komu hing-
að í gær,“ sagði Hafliði Halldórsson
þegar blaðamaður DV hafði sam-
band við hann vegna málsins.
Gestir laugarinnar kvörtuðu til
baðvarðar sem ræddi við íslenskan
mann sem var með þeim og borgaði
fýrir þá í sund.
Ólykt af þeim
„Það voru viðskiptavinir sem
kvörtuðu við baðvörðinn um að það
væri svo mikil ólykt af þessum
mönnum," segir Hafliði.
„Baðvörðurinn ræddi þá við ís-
lendinginn sem var með þeim en
hann vildi ekkert kannast við þá og
neitaði fyrir það að hafa komið með
þeim í sundlaugina," segir Hafliði en
á meðan baðvörðurinn og íslend-
ingurinn ræddu saman gengu
verkamennirnir ofan í laugina á
nærbuxunum.
Á nærbuxunum
„Þeir fóru alla leiðina ofan í, við
hefðum átt að læsa hurðinni og
koma þeim í skilning um að þeir
gætu ekki farið ofan í án sundfata,"
segir Hafliði en það var hins vegar
ekki gert og fóru þeir því ofan í laug-
ina á nærbuxunum.
„Einn af þeim var í minni teg-
undinni af nærbuxum og það voru
þess vegna ekki allir sáttir í heita
pottinum," segir Hafliði.
Töluðu um pungalykt
Hafliði segir þó að ekki sé hægt
að áfellast verkamennina, þeir eigi
bara einfaldlega ekki sundföt en
bendir þó á að starfsfólkið hefði átt
að leigja þeim þann fatnað.
„Svo þegar annar starfsmaður
ræðir við Islendinginn sem með
þeim var seinna játar hann að verka-
mennirnir séu skjólstæðingar hans.
„Einn afþeim varí
minni tegundinni af
nærbuxum og það
voru þess vegna ekki
allir sáttir í heita
pottinum."
Starfsmaður minn lendir þá í rifrildi
við þennan mann og miður falleg
orð um meðal annars pungalykt,
svona lykt og hinsegin lykt eru látin
falla," segir Hafliði og bætir við að
næst verði rétt farið að málinu svo
menn stingi sér ekki til sunds á
skítugum nærbuxunum.
atii@dv.is
Strætó gerir úrbætur á leiðakerfinu
Leið 12 tekin í gagnið á ný
„Við erum ekki komin með endan-
lega dagsetningu en við stefnum á að
breyta leiðakerfinu um mánaðamót-
in febrúar-mars," segir Ásgeir Eiríks-
son, framkvæmdastjóri Strætós. Frá
því að nýtt leiðakerfi var tekið í notk-
un síðastliðið haust hefúr staðið yfir
vinna við úrbætur á kerfinu.
„Úrbæturnar eru byggðar á
ábendingum farþega og vagnstjóra
og farþegatalningu sem við höfum
framkvæmt. Við reynum að koma til
móts við athugasemdir og óánægju-
raddir," segir Ásgeir.
Strætó stefnir á útgáfu á nýju
kynningarefni og leiðbeiningum með
úrbótunum. Eins og fram hefur kom-
ið í fréttum DV reyndi Ingi Gunnar Jó-'
hannsson landfræðingur að selja
Strætó hugmynd sína að einföldu
leiðakorti. Hann náði ekki samning-
um við Strætó og gaf leiðakortið út
sjálfur með hjálp auglýsingastyrkja.
„Við höfum verið í samningavið-
ræðum við Inga Gunnar síðustu daga
og það er aldrei að vita nema við
göngum til samninga við hann og
kaupum af honum kortið," segir Ás-
geir. Ingi Gunnar staðfesti við DV að
samningaviðræður milli hans
Strætó hefðu átt sér stað.
í nýju og úrbættu leiðakerfi eru
þrjár nýjar leiðir.
„Við setjum inn leið sem er í
líkingu við leið 12 og gengur frá
Efra-Breiðholti niður á Hlemm.
Svo er ný leið sem svipar til leiðar 7
og fer frá Grafarholti niður á
Hlemm. Að síðustu kemur inn
ný innanbæjarleið í Kópa-
vogi," segir Ásgeir um
nokkrar af þeim breyt-
ingum sem fyrir- y
hugaðar eru á
leiðakerfinu. df
svavar@dv.is 1 12
og
Ásgeir Eiríksson Fram-
kvæmdastjóri Strætós
hefurhlustað á
óánægjuraddir og breytt
leiðakerfinu eftir þeim.
Ingi Gunnar Jóhannsson
Hannaði leiðbeiningakort
fyrir Strætókerfið og gafút á
eigin vegum eftir árangurs-
lausar viðræður við Strætó.
I