Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2006, Side 13
DV Fréttir
FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006 13
Slökkvilið Vestmanna-
eyja var kallað út 14 sinn-
um á síðasta ári að því er
fram kemur á vef sunn-
lenska.is. í fimm tilfellum
var kallað út í íbúðarhús,
tvisvar vegna elds í skipum
og þrisvar vegna grunscun-
legs reyks á vinnustöðum.
Einnig hefur slökkviliðið
verið kallað út vegna
minni háttar atvika, svo
sem vegn.a elds í bílum,
sinubruna og rusls við
Sorpu. Þetta kemur fram í
ársskýrslu Ragnars Þórs
Baldvinssonar slökkviliðs-
stjóra fyrir síðasta ár.
Freyfaxi
töltiráís
Félagar í hestamannafé-
laginu Freyfaxa standa fyrir
stórmóti í ístölti á Lagar-
fljótinu síðasta laugardag-
inn í janúar. „ístölt Aust-
urland fer fram í Eg-
ilsstaðavík í fallegri
náttúru þar sem
áhorfendabrekkur frá
náttúrunnar hendi
umlykja svellið,"
segir í tilkynningu ‘
frá Freyfaxa. „í ár hafa
margir af nafntoguðustu
knöpum landsins boðað
þátttöku sína og þess vegna
má búast við að Istölt Aust-
urland treysti sig í sessi
sem stærsta útimót vetrar-
ins í hestaheiminum.“
Sérfræðingar í öryggis-
málum forrita hafa upp-
götvað þóra al-
varlega öryggis-
galla í fjölmiðl-
unarforritinu
QuickTime frá
Apple. Forritið er
nauðsynlegt til
nota á lagaveitu
Apple, iTunes. Gallarnir
gera „hökkurum" kleift að
yflrtaka tölvukerfl í gegnum
forritið. Þetta getur valdið
fjölda fyrirtækja og stofn-
ana ómældum vandræðum
þar sem starfsmenn hafa
hlaðið forritinu niður á
tölvur sínar. Apple hefur
þegar tekið á málinu og
gefið út nýja útgáfu forrits-
ins sem fáanleg er á heima-
síðu fyrirtækisins.
Charles Róbert Onken er ákærður fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir alvarlega
líkamsárás. Charles er betur þekktur sem Bad Boy Charlie og var með fyrstu karl-
kyns strippurum íslands. Hann lék líka í fyrstu og einu ljósbláu kvikmyndinni sem
gerð hefur verið á íslandi.
Charles Róbert Onken, eða Bad Boy Charlie eins og hann er bet-
ur þekktur, er ákærður fyrir tvær alvarlegar líkamsárásir í sept-
ember á síðasta ári.
„Ég tala ekki við þig," sagði
Charles Róbert Onken þegar blaða-
maður hringdi í hann.
Charlie er gefið að sök að hafa
gefið manni hnefahögg í andlitið
með þeim afleiðingum að hann féll
aftur fyrir sig og höfuð hans skall i
gangstétt svo hann hlaut talsverðan
skaða af. Einnig er hann ákærður
fyrir að hafa gefið öðrum manni
sama kvöld hnefahögg þannig að
maðurinn nefbrotnaði.
Charlie er fyrir löngu orðinn
þjóðþekktur á meðal kvenna vegna
vaxtarlags síns og goðsagnakennds
limaburðar en hann var vinsæll
strippari í veislum og uppákomum
kvenna.
Ljósblár leikari
Ásamt því að vinna sem strippari
lék Charlie í fyrstu og einu ljósbláu
kvikmyndinni sem gerð hefur verið
á íslandi, Skýrslumálastofiiun ríkis-
ins, sem Davíð Þór Jónsson leik-
stýrði. Sú mynd markaði ákveðin
tímamót í íslenskri kvikmyndasögu.
Charlie hlaut talsverða frægð í
kjölfarið og sat mikið fyrir enda van-
ur sem nektarmódel. Hann var vin-
sæll sem aldrei fyrr hjá kvenþjóð-
inni. Nokkrum árum síðar var gerð
heimildamynd um líf Bad Boy
Charlie.
Keyrði formúlubíl
Charlie hefur snúið baki við
strippinu og rekur nú go kart-leigu
við Smáralind. Hann er mikill aðdá-
andi hraðskreiðra bíla og hefur not-
ið þeirra forréttinda að keyra for-
múlu eitt bíl á Englandi. Charlie
mun vera eini íslendingurinn sem
keyrt hefur slíkt tryllitæki.
„Ég fékk að keyra tíu hringi og
komst upp í 200 kílómetra hraða,"
sagði Charlie um þessa einstöku
reynslu sína.
Ævintýramaður
Það er ekki nóg fyrir Charlie að
aka formúlubíl. Hann er líka skráður
í fræga keppni sem nefnist Gumball
3000 og á að fara fram í apríl á þessu
ári.
„Þá langaði að fá svona íslenskan
víking í keppnina," hefur Charlie
sagt um þetta. Aðeins þátttökugjald-
ið í keppninni hleypur á mUljónum.
Charlie sagði í viðtali við DV að hann
væri með sterkan bakhjarl á bak við
sig sem borgaði gjaldið.
Keppnin er sögð ævintýraleg.
Auðmenn og furðufuglar aka 3 þús-
und mílur á átta dögum í gegnum
mörg lönd. Ökumennirnir eru
þekktir fyrir að virða ekki hámarks-
hraða og hafa nokkur slys átt sér
stað í keppninni.
valur@dv.is