Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2006, Blaðsíða 17
DV Sport
FÖSTUDAGUR13. JANÚAR 2006 17
Fer Indriði til
Stoke í sumar?
Allt útlit er íyrir
að landsliðsmaður-
inn Indriði Sigurðs-
son, leikmaður
Genk í Belgíu, fari
frá félaginu eftir að
tímabilinu í Belgíu
lýkur í vor. Það stað-
festi hann í samtali
við Fréttablaðið. Þar kemur
einnig fram að Johan Bos-
kamp, knattspymustjóri
liðsins, hafi áhuga á að fá
hann þá þar sem félagið
þurfi ekki að greiða neitt fyr-
irhann. „Okkur vantar sár-
lega vinstri bakvörð og Ind-
riði er að verða samnings-
laus," sagði Boskamp.
Eggert gefur
kostásér
Eggert Magnús-
son mun áffam gefa
kost á sér í for-
mannsembætti
Knattspymusam-
bands íslands, sem
hann hefur gegnt frá 1989.
Kosið er í embættið á árs-
þingi KSÍ sem fer næst fram
þann 11. febrúar og verður
það 60. í röðinni. Ekki er
búist við að Eggert fái mót-
framboð en kjörið er til for-
mannsembættisins á tveggja
ára fresti.
VA
Samningurinn
lögmætur
Norskir dómstól-
ar úrskurðu í vik-
unni að samningur
Nígeríumannsins
Johns Mikels Obi
við norska knatt-
spymufélagið Lyn
hafi verið lögmætur
og stendur því samningurinn
sem Obi undirritaði í apríl
síðastliðnum, sem segir að
hann hafi orðið liðsmaður
Manchester United frá og
með nýliðnum áramótum.
Fljótlega eftir undirritunina
skipti Obi um skoðun og vildi
fá að ganga til liðs við Chel-
sea. Búist er við að annað
hvort norska knattspymu-
sambandið eða FIFA taki
málið næst til umfjöllunar.
Argentínumenn í
vandræðum?
Svo virðist sem landslið Argentínu sé I
hinu mesta basli. Ekki nóg með að
margir af lykilmönnum liðsins eigi við
erfið meiðsli að stríða, svo sem Gabriel
Heinze, Roberto Ayála, Javier Mascher-
ano og Juan Pablo Sorin, heldur er
þjálfari liðsins, Jose Pekerman, afar
umdeildur. Frá því aö hann tók við fyr-
ir tveimur árum hefur hann notað 50
leikmenn og virðist eiga f mestu vand-
ræðum með að velja sitt besta byrjun-
arlið. Það sem venra er, landsliðið á að-
eins eftir einn leik í
undirbúningi sín-
umfyrirsjálft mótið
í sumar þar sem lið-
ið er í afar erfiðum
riðli með Hollandi,
Fílabeinsströndinni
og Serbíu.
George Graham KnattspymustjóriArsena
sem varrekinn frá féiaginu fyrir mútuþægni
áriðms. Hann er fyrir miöri mynd.
Mike Newell, knattspyrnustjóri Luton, hefur lofað því að stíga
fram og nefna þá aðila á nafn sem tengjast mútustarfsemi í
knattspyrnuheiminum. Segir hann í samtali við fréttastofu
BBC að það séu margir aðilar sem þiggi mútur frá umboðs-
mönnum knattspyrnumanna sem svífast einskis.
„Margir þeirra sem eru í sam-
bandi við umboðsmennina og
ganga frá samningum þiggja eitt-
hvað í eigin vasa,“ sagði Newell sem
hefur áður gagnrýnt enska knatt-
spymusambandið fyrir að hafa ekki
stjóm á starfsemi umboðsmanna.
Þeir em þymir í augum margra
framámanna í knattspymuheimin-
um. Einn þeirra, Eggert Magnússon
formaður KSÍ og meðlimur í fram-
kvæmdastjórn UEFA, sagði þá vera
„Ulgresi knattspymunnar" í samtali
við DV Sport.
Richard Scoudamore, aðalfram-
kvæmdastjóri deildarinnar, hvatti
Newell til að stíga ffam og nafri-
greina þessa aðila. „Geti hann stutt
sín orð með sönnunargögnum er
það frábært," sagði Scoudamore.
„Ég mun gera það, það er ekkert
vandamál. Ég óttast það ekki," sagði
Newell í kjölfarið í öðru viðtali.
Plága knattpyrnunnar
„Enska knattspymusambandið
verður að spila stærra hlutverk en
það hefur gert hingað til," sagði
Newell. „Umboðsmenn eru plága á
íþróttinni." Aðspurður hvort honum
hafi verið boðnar mútur þegar hann
hafi samið um leikmannakaup játti
hann því. „Að sjálfsögðu. En ég
myndi aldrei taka við þeim. Ef ég
væri opinn fyrir því myndi þetta
koma reglulega upp. Það eina sem
ég þyrfti að segja væri: Hvað græði
ég á því?"
Árið 1995 var George Graham
knattspymustjóri Arsenal og komst
upp um að hann hefði þáð greiðslu í
tengslum við leikmannaviðskipti.
Hann var í kjölfarið rekinn frá félag-
inu og dæmdur í eins árs bann frá
íþróttinni.
„Það kæmi mér mjög á óvart ef
George Graham væri sá eini sem
hefði gerst sekur um að þiggja mút-
ur á síðustu tíu árum. Ef knatt-
spymuyfirvöld geta ekki komið upp
um sumt af því sem á sér stað mun
það ganga af íþróttinni dauðri."
Milljónir punda týndar
Eggert Magnússon sagði í sama
viðtali við DV Sport að margir um-
boðsmenn knattspymumanna hirtu
peninga sem annars hefðu farið í
ungliða- og grasrótarstarf. Newell
tekur í svipaðan streng og segir að
það sé aðeins einn aðili sem standi
uppi sem sigurvegari í þessu máli.
„Ég hef séð hvaða upphæðir
umboðsmennimir þéna í 1. deild-
inni og get aðeins ímyndað mér
hversu mikið það er í úrvalsdeild-
inni. Það em svo margir leikmenn
sem hafa komið og farið og hafa
engum tilgangi þjónað, hvorki í
íþróttinni né hjá félögunum sem
keyptu þá. En umboðsmennirnir
verða að fá sitt og það er okkar
enska knattspyrna sem hefur liðið
fyrir það. Milljónir punda hafa sog-
ast úr knattspyrnunni og þessi pen-
ingur kemur aldrei aftur."
Forráðamenn enska knatt-
spymusambandsins hafa sett sig í
samband við NeweU og munu þeir
hittast vegna þessa máls snemma í
næstu viku.
eirikurst@dv.is
Mike Newell Knattspyrnustjóri Luton
Town sem segir aö mútustarfsemi sé al-
geng I knattspyrnunni og aO hann sé
ekki hræddur viö aö nefna nöfn
Ófáir framámenn í knattspyrnuheiminum hafa horn í síöu umboðsmanna knatt-
spyrnumanna og segja margir þeirra þá vera að gera út af við íþróttina. Einn þeirra,
knattspymustjórinn Mike Newell, segist ætla að nefna þá á nafn sem hann viti til þess
að hafi komið nálægt mútustarfsemi umboðsmannanna.
aö skemma
bojtann meö
mutustarfsemi
„Ef knatt-
spyrnuyfirvöld
geta ekki kom-
ið upp um sumt
afþví sem á sér
stað mun það
ganga afiþrótt-
inni dauðri."
Harry Redknapp styrkir lið Portsmouth
Keypti þrjá menn frá Spurs
Portsmouth hefur gengið frá
kaupum á þremur leikmönnum
Tottenham, þeim Sean Davis, Pedro
Mendes og Noe Pamarot. öllum gekk
þeim illa að fóta sig undir stjóm Mart-
ins Jol og er talið að stjóri Ports-
mouth, Harry Redknapp, hafi borgað
um 7,5 milljónir króna fyrir þríeykið.
Eftir að Edgar Davids og Jermaine
Jenas vom keyptir til Tottenham í
haust hafa þeir Mendes og Davis fá
tækifæri fengið. Þá hefur vamarmað-
urinn Pamarot aðeins komið tvívegis
við sögu í liði Tottenham á leiktíðinni.
Þeir verða allir gjaldgengir í lið Ports-
mouth sem mætir Everton á heima-
velli á morgun. Hið sama má segja
um framherjana Benjani Mwamwari
og Emmanuel Olisadebe sem Ports-
mouth keypti á dögunum. Óhætt er
að segja að Redknapp hafi ekki verið
lengi að nýta sér þá fjármuni sem
Nýr liðsmaður Benjani Mwaruwari, hand-
salar samninginn við Alexandre Gaydamak.
komu inn í félagið með nýjum eig-
anda, rússneska auðkýfingnom Alex-
andre Gaydamak. „Ég er hæstánægð-
ur með að fá þrjá úrvalsleikmenn sem
ég þurfti virldlega á að halda og vildi
fá,“ sagði Redknapp. „Það þarf nauð-
synlega að styrkja liðið og ég vissi
alltaf að ég þyrfti að setja saman lið
sem myndi koma því aftur á beinu
brautina."
Danskur varnarmaður til Liverpool
Benifez yfir sig hrifinn
Knattspymustjóri Liverpool, Rafa-
el Benitez, er í skýjunum með nýja
varnarmanninn, Danann Daniel Agg-
er. Hann kemur frá Bröndby og er 21
árs en talið er að hann hafi kostað
Evrópumeistarana um 5,8 milljónir
punda. Benitez reyndi að krækja í
piltinn síðastliðið sumar en það gekk
ekki í gegn fyrr en nú. Þetta er í annað
skiptið sem Liverpool fær til sín nýjan
leikmann í mánuðinum, áður gekk
hollenski vamarmaðurinn Jan Krom-
kamp til liðs við félagið.
Agger skrifaði undir samning sem
tryggir vem hans á Anfield út leikti'ð-
ina árið 2010. Söluverðið er þó talið
vera háð því að Daninn ungi leiki
ákveðið marga leiki fyrir Liverpool.
Þegar hann verður búinn að spila 100
leiki mun upphæðin verða greidd að
fullu.
„Þegar við sömdum við Jan Krom-
kamp vissum við að við þyrftum að
Daniel Agger eitt mesta efni sem hefur
komiö fram lengi I Danmörku.
gera meira. Við erum sífellt að ijíéý
reyna að styrkja liðið," sagði Beni-
tez. „Það er mikilvægast að reyna að
ná í réttu menninna, ekki hversu lengi
það tekur að fá hann."