Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2006, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2006, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2006 Fréttir DV -----Tt': Gym 80 Arásin áttisérstað I ágúst 2004. Bogomil Font í Fríkirkjunni Dægurlaga- söngvararnir Bogomil Font og Ragnar Bjarnason verða sérstakir gestir á vetrarhátíð í Fríkirkjunni. Raggi Bjarna og Bogomil eiga það sameiginlegt að hafa gert garðinn frægan með sveifluhljómsveitinni Milljónamæringunum. Þannig að það er hafið yfir vafa að það verður hörku- stuð í Fríkirkjunni fimmtu- dagskvöldið 23. febrúar. Fyrr um daginn verður kyrrðar- og bænastund þar sem fremst í flokki tónlist- armanna verða að vanda söngkonan Anna Sigga og píanóleikarinn Carl Möller ásamt Fríkirkjukórnum. Sportbáta- bryggja Fiugmyndir eru uppi um að byggja sportbátabryggju á Isafirði. „Þetta er ekki komið á fast ról, en mein- ingin er að kaupa flothylki af Snarfara, félagi sport- bátaeigenda í Reykjavík, og setja niður sem bryggju. Snarfari mun svo ætla að leigja pláss við bryggjuna í sumar. Ekki er búið að fast- ákveða staðsetningu bryggjunnar og verður lík- legast ekkert unnið meira í þessu máli fyrr en nær dregur vori," segir Ragn- heiður Hákonardóttir, for- maður hafnarstjómar, við fréttavefinn bb.is. Fortíðarþrá verbúðarliðs Þrír menn sem allir bjuggu í verbúð í Horna- firði á sínum tíma ætla að efna til gleðskapar fyrir fólk, sem bjó á verbúðun- um Skakkanum og Ásgarði á árunum 1975 til 1985. Þetta kemur fram á horna- ijordur.is. Ætlunin er að riíja upp gamla og góða daga. Þeir Hornfirðingar og aðrir, sem glöddu vertíðar- og farandverkafólkið með heimsóknum sínum á ver- búðirnar, em hvattir til að mæta. Áhugasömum, sem jafnvel hafa aðeins óljósa minningu um að hafa stundað verbúðarlífið, er bent á að hafa samband við Andrés Kolbeinsson. Sif Garðarsdóttir, einkaþjálfari og fitnessdrottning, er ákærö fyrir aö hafa sparkað í andlit Sæmundar Bæringssonar þar sem hann lá í bekkpressu í líkamsræktarstöð- inni Gym 80 í ágúst 2004. Sif segir aö Sæmundur hafi ofsótt hana og hótað henni með SMS-skilaboðum og því hafi árásin í raun verið sjálfsvörn. Sæmundur segist ekki hafa ofsótt Sif. Þau hafi átt í ástarsambandi. Fitnessdroltning lemur mann í líkamsræktarstöð „Ég fékk hótanir sendar frá honum með SMS-skilaboðum,“ seg- ir Sif Garðarsdóttir, einkaþjálfari og fitnesskeppandi, sem er ákærð fyrir líkamsárás á Sæmund Bæringsson í líkamsræktar- stöðinni Gym 80 í ágúst 2004. Sif er gefið að sök að hafa klórað Sæmund í andlitið þegar hann lá í bekkpressu, og sparkað svo í andlitið á honum með þeim afleiðingum að hann hlaut glóðar- auga og hruflusár. Sæmundur segir að hann hafi ekki átt skilið þessa meðferð og er algjörlega ósammála orðum Siijar. „Ég kom í Gym 80 til þess að sýna barnsföður mínum SMS-skilaboðin en þá var Sæmundur þar að æfa,“ segir Sif um tildrög árásinnar. Hún segir að eftir að hún hafi sýnt barns- föður sínum, Auðuni Jónssyni lyft- ingamanni, skilaboðin hafi hún ákveðið að tala við Sæmund. Hann lá á lyftingabekk og var að æfa sig. Á milli þeirra urðu snörp orðaskipti sem enduðu með því að Sif klóraði Sæmund og sparkaði í hann. ímyndað ástarsamband „Ég óttaðist hann,“ segir Sif. Hún játaði fyrir dómi að hafa ráðist á Sæ- mund en segir árásina í raun hafa verið sjálfsvöm. Sif segir að Sæmundur hafi verið haldinn þeirri hugsýki að þau ættu í ástarsambandi, og hafi ítrekað sent ,Hún sparkaði í mig með barnið í fanginu. henni skilaboð um að ef hún yrði ekki kærasta hans myndi hann gera líf hennar að helvíti. Sif leitaði þrisvar til Lögreglunnar í Reykjavík vegna Sæmundar en ekkert var hægt að gera vegna þess að hún hafði engar haidbærar sannanir í hönd- unum. Ofsótt heima „Hann of- sótti mig heima," segir Sif um hegð- un Sæ mundar sem að hennar sögn bankaði ítrekað heima hjá henni og hringdi. Hún segir að Sæmundur hafi hótað að ljóstra upp um ímyndað samband þeirra við Auðun, og sent henni skilaboð um að hann ætlaði ekki að láta hana komast upp með þetta. Áttu í ástarsambandi „Við sváfum saman," segir Sæ- mundur og er algjörlega ósammála sögu Sifjar. Hann segir að þau hafi átt í ástarsambandi í tæpan mánuð. Sæmundur segir að hann hafi slitið sambandinu sjálfur og játar að hann hafi hótað að segja frá kynnum þeirra en Sif og Auðunn voru saman að hans sögn þegar ástarsamband þeirra stóð yfir. réttlætt hegðun Sifjar. Hann segir það þvælu að hann hafi ofsótt hana að nokkru leyti. Það hafi í raun verið hún sem hótaði honum sem og Auð- unn þar á undan. Framhald að- almeðferðar |j fer fram síðar í mánuðin- .. r»„ * ^ 6fe?Í um valur@dv.is Ekki að ofsækja hana „Hún sparkaði í mig með barnið í fanginu," segir Sæmundur og telur árásina ekki verðskuldaða. Hann segir að hann hafi ekki gert neitt sem gæti Sif Garðarsdóttir Segist hafa verið of- sótt afSæmundi og hótað með SMS- skilaboðum. Auðunn Jónsson Barnsfaðir Sifjar og fyftingamaður. p j t S29 Einkagæsla á Seltjarnarnesi skilar ótrúlegum árangri 327 milljónirtil aðfækka innbrotum „Ég get ekki séð neitt að því að. prófa þessa tilraun í öðmm hverfum," segir Geir Jón Þórisson, yfirlögreglu- þjónn í Reykjavík, um svokallaða einkagæslu öryggisfyrirtækja. Síðan í október hefur tilraunaverk- eíni verið í gangi á Seltjamamesi sem felst í því að Securitas sinnir hverfagæslu í sveitarfélaginu. Engin innbrot hafa verið framin síðan verk- efiiinu var Jmindið af stað. Löggæsla í Reykjavík kostar 2 milljarða á ári. Einkagæsla eins og tekin hefur verið upp á Seltjamamesi kostar Reykjavík 327 milljónir á ári til viðbótar. Hvað liggur á? Securitas Stendur fyrir einkagæslu á Seltjarnarnesi. „Eftirlitsfyrirtæki gera nú þegar mildð gagn í Reykjavík þar sem þau em á ferðinni allan sólarliringinn að sinna fyrirtækjum, heimilum og stofn- unum," segir Geir Jón og bætir við að Seltjamames sé auðvelt hverfi til að liggur á að veita Akureyringum atvinnu, minnka atvinnuleysi og hækka launin hjá láglaunafólki," segir Baldvin H. Sigurðsson sem vann prófkjör Vinstri-grænna á Akur- eyri um daginn.„Ég veit að margir I bæjarstjórn Akureyrar kvíða fyrir að fá mig Ipólitik- ina með allar mlnar hugmyndir. Álver er ekki það sem við þurfum hér I Eyjafjörð heldur hóa saman athafnafólki sem á pening og vill leggja þá íatvinnuskapandi verkefni. Af nógu erað taka. Annars erég hamingjusamurog velgiftur maður Igóðri vinnu." sinna eftirliti meðan þjófar eigi auð- veldara með að athafna sig í Reykjavík. „Þessi fyrirtæki sinna mikilvægu eftirliti og tilkynna um fjölda inn- brota," segir Geir Jón og einnig að Lög- reglan í Reykjavík hafi einbeitt sér að fækkun innbrota á undanfömum ámm. „Við höfum séð stórfellda fækkun á innbrotum á síðustu ámm og í fyrra vom 1500 innbrot miðað við 1700 árið á undan," segir Geir Jón og bætir við að ásamt eftirliti sinni lögreglan • einnig ýmissi annarri' ___ vinnu með rannsókn- um og upplýsingaöflun um þekkta afbrota- menn. Vinna sem eftirlitsfyrir- tækin sinni ekki. Sigurjón í Húsdýragarðinn Reykjavíkurborg ætlar að ganga til viðræðna við fyrirtæki Sigurjóns Sighvatssonar, Palomar Pictures, og Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. eftir að farið hefur verið yfir tillögur sem bámst í hugmyndasamkeppni um Fjöl- skyldu- og húsdýragarðinn. Þetta samþykkti innkauparáð borgar- ihnar eftir að Ómar Einarsson, sviðstjóri íþrótta- og tómstunda- sviðs, hafði kynnt úrslit sam- keppninnar. Ekki var nánari upp- lýsingar að fá um málið í gær hjá Reykjavíkurborg þar sem aðilum málsins hafði enn ekki verið kynnt niðurstaðan. GeirJón Þórisson Yfirlög- regluþjónn segir að hann sjái ekkert að því að prófa einka- gæslu öryggisfyrirtækja í hverfum Reykjavlkurborgar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.