Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2006, Síða 10
7 0 ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2006
Fréttir DV
Kostir & Gallar
Magnús er fyrst og fremst frábær
listamaður. Hann fer ótroðnar
slóðir, þykir frábær félagi og er
traustur með eindæmum.
Gallar hans eru þeir aö hann
getur látið smámuni angra sig,
getur veriö sérvitur í skapi og
þykir einnig helst til ofaf-
kastamikill sem veiðifélagi.
„Magnús er mjög fær
tónlistarmaður, það ligg-
ur alveg I augum uppi.
Hann ersérviturá tónlist,
fer aðrar leiðir en gengur
og gerist.Alveg óhætt að
segja aðhann fari ótroðnar slóðir.
Hann erlíka alveg einstaklega hitt-
inn ágóð lög. Einnig þykir hann
vera smekkmaöur mikill, tildæmis
mikill sérfræðingur I tedrykkju.
Hvað gallana varðar er hann mjög
sérvitur i skapi, hann er ekki allra.
Hann fer slnar eigin leiðir. Enþaðer
auðvitað lika afhinu góöa, sérvitr-
ingarná alltaf lengst."
Kristinn T. Haraldsson, betur þekktur sem
Kiddi rót, vinur Magnúsar og veitingamað-
„Hann Magnús er fyrst og fremst
góður drengur. Hann er
mjög heiðarlegur mað-
ur.Svoerhann líka ákaf-
lega skemm tilegur og
góðurfélagi. Hann er
einnig frábær listamað-
ur í alla staði, eins og þekkt er.
Hvað gallana varöar þykir mér ekki
gottað fara í veiðiferðir meðhon-
um. Ástæðan fyrir þviersúað hann
veiðir alla fískana sjálfur. Annars er
hann fínasti veiðifélagi."
Pétur Hjaltested tónUstarmaöur.
Magnús er mikið náttúrubarn og
fyrir utan að vera frábær
tónlistarmaður og
skemmtilegur félagi er
hann trausturog stefnu:
fastur.Magnúsgetur
verið mjög drífandt og
hrífur fólk með sér. Hann
hefur varðveitt barnið í sjálfum sér
og er mikill fjölskyldumaður, skarp-
skyggn með góðan húmor og laus
við hégóma.
Þáað göllunum. Maggi áþaðtilað
vera smá prófessor á stundum, er
þá gleyminn og utan við sig og get-
ur látið óþarfa smámuni angra
sig.“
Jóhann Helgason tónlistarmaður.
Magnús Þór Sigmundsson fæddist 28. septem-
ber 1948. Hann er einn afkastamesti lagahöf-
undurþjóöarinnar. Eftir hann liggja mörg
þekkt lög, til dæmis ísland er land þitt, Ást, JörO-
in sem ég ann og Ást viö fyrstu sýn. Magnús
komst í fréttimar á dögunum fyrir aö semja lag
um heimabæ sinn, Hverageröi, og syngja þaÖ á
bæjarstjórnarfundi.
Fimmtugur fasteignasali úr Grafarvogi, sem kærður hefur verið fyrir að hafa
nauðgað konu ítrekað á heimili sínu í febrúar, reyndi að flýja til Tælands á laug-
ardagsmorgun. Fórnarlamb mannsins fór sjálf upp á Leifsstöð og kom í veg fyrir
að hann kæmist af landi brott.
smm.
Stöðvaði sjálf tlótta
kvalara síns
„Ég vil að manninum
verði refsað svo hann
geti ekkigert svona
Meint fórnarlamb
nauðgunar Sýndi fá-
dæma hugrekki með þviað
fara sjálf upp á flugvöll.
Fimmtugur fasteignasali sem er kærður fyrir að hafa haldið konu nauð-
ugri á heimli sínu í níu tíma og nauðgað henni ítrekað reyndi að flýja
land á laugardaginn. Fórnarlambið heyrði að hann ætlaði að flýja til
Tælands og fór sjálf upp á Leifsstöð þar sem hún benti lögreglunni á
Keflavíkurflugvelli á manninn. Hann var handtekinn í kjölfarið og
leiddur fyrir rétt þar sem hann var úrskurðaður í farbann.
„Ég vil að manninum verði refs-
að svo hann geti ekki gert svona aft-
ur,“ segir fórnarlamb mannsins um
ástæðu þess að hún fór sjáif upp á
flugstöð til þess að stöðva mann-
inn. KvÓldið áður fékk hún skilaboð
um að maðurinn ætlaði að taka
næsta flug til Tælahds og koma sér
þannig hjá hugsanlegri refsingu.
Hún lét lögrégluná vita en vildi vera
viss um að hann kæmist ekki úr
landi ef ske,kynni að hann væri
með fajgaðVegabréf.
Fór sjálf upp á flugvöll
„Eg vildi ekki að að hann
kæmist upp með það sem
hann gerði mér," segir kon-
an, sem er brugðið eftir at-
burði helgarinnar. Hún segir
að hún hafi farið með tveim-
ur vinkonum sínum upp á
flugvöll til þess að benda
lögreglunni á manninn.
Hún segir að þegar hann hafi
komið á laugardagsmorgn-
inum hafi lögreglan beðið
hans og gert vegabréfið upp-
tækt. í kjölfarið var farið með
hann fyrir Héraðsdóm Reykja-
víkur og þar var hann dæmdur
í farbann.
Reynt áður að fá farbann
Réttargæslumáður konunnar,
Helga Leifsdóttir, reyndi að fá far-
bann á manninn stuttu eftir að
hann var kærður fyrir nauðgunina.
Ekki fékkst farbann á hann þá þrátt
fyrir að fórnalambið teldi að mik-
il hætta væri á að hann yfirgæfi
landið til þess að komast hjá
hugsanlegri refsingu.
Hræðileg nauðgun
Maðurinn, sem er um fimmtugt,
er kærður fyrir að halda konunni
nauðugri heima hjá sér í níu tíma
og nauðga henni ítrekað í
febrúar síðastliðn-
um. I viðtali, sem
DV tók við
hana
stuttu eftir
atburð- |
inn, lýsti
hún
hrylli-
legri
lífs-
reynslu
Hún
sagði að
maðurinn
hafi lamið
sig, kæft með
kodda og
nauðgað sér
margoft. Það var
ekki fyrr en hún
gat gert vini sínum
viðvart í gegnum SMS
að lögreglan var send
á staðinn. Sam
kvæmt lög-
reglu var
að-
koman ljót því mikið blóð var úti
um alla íbúðina og konan afar illa
leikin.
Hættulegur maður
„Ég óttast þennan mann dag-
lega," segir konan, sem er ekki sátt
við að maður sem fremur svona af-
brot sé ekki í gæslu lögreglunnar.
Konan mun ítrekað hafa fengið
skilaboð frá manninum eftir at-
burðinn. Hún segir að lögreglan
hafi beðið hann sérstaklega að
hætta því. Maðurinn sé
mjög hættulegur og hún
geti ekki gengið örugg
um götur borgarinn-
ar þegar hann sé
laus.
Maðurinn neit-
ar sök og segir að
konan hafi
samþykkt að
hafa mök við sig.
valur@dv.is
Meintur nauðgari Reyndi Wf-l
að flýja til Tælands áðuren I
mál hans var dómtekið P
Kristján Pálsson, fyrrverandi alþingismaður, skellti sér til Tansaníu fyrr á árinu
XÁHA'
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 10
sími 561 1300
Glæsilegt úrval af
handsmíðuðum
íslenskum
skartgripum
Kristján Pálsson á toppi Kilimanjaro
f gær gaf Kristján Pálsson Reykja-
nesbæ mynd af sér á toppi fjallsins
Kilimanjaro í Tansaníu. Á myndinni
sem hann gaf bænum sést hann
með merki Reykjanesbæjar og því
óhætt að segja að Kristján hafi haid-
ið merki bæjarins bókstaflega á lofti
í Tansaníu í ferðinni sem hann fór í
lokjanúar.
I samtali við DV segir Kristján að
ferðin hafi verið farin í tilefni af sex-
tugsafmæli bróður hans, Ólafs K.
Pálssonar. Með þeim bræðrum í för
var Eiríkur Einarsson. Kristján segir
ferðina hafa verið afar athyglisverða.
„Við flugum út til Keníu og gistum
eina nótt í Naíróbí. Þaðan keyrðum
við til Tansaníu." Ferðin upp á topp
tók fjóra daga. „Já, við vorum með
J0 innlenda aðstoðarmenn með
okkur. Þetta var frábær reynsla. Erf-
iðast þótti mér að venjast því hversu
loftið var þunnt þegar maður var
kominn langt upp fjailið." Kristján
segir að allir sem hafi verið með í för
hafi komist á toppinn. „Já, þangað
komumst við allir. Þarna uppi var
kalt, enda alltaf kalt á toppnum, eins
og þeir segja."
Ferðin niður tók tvo daga. Eftir
það héldu Kristján og ferðafélagar f
tvo þjóðgarða. „Við heimsóttum
meðal annars Maashai-þjóðflokk-
inn. Þeir eru frægir fyrir að vera með
hjarðir úti á mörkinni. Þeir verja
dýrin sín fyrir árásum rándýra. Fal-
legt fólk, mjög hátt og grannt. Það
segist vera svo hraust sem raun ber
vitni því það drekki blóð."
Kristján segist hafa orðið vitni að
mikilli fátækt á svæðinu. „Fátæktin
sést hvert sem maður fer. En þrátt
fyrir það er vegakerfi bæði í
Tansaníu og Keníu betra en í mörg-
um öðrum Afríkuríkjum. Ég hitti
ákaflega gott fólk, sem tók vel á
móti okkur og var höfðingjar heim
að sækja."
Kristján hefur í nógu að snúast
þessa dagana. Meðal annars er hann
að leggja lokahönd á lokaverkefni í
sagnfræði um áhrif komu varnar-
liðsins á Suðurnesin. Einnig rekur
hann fyrirtæki, er formaður UMFN
og ferðamannasamtaka Suðurnesja.
kjartan@dv.is
fjgs&ŒSS}.
Kalt á toppnum Kristján seg-
ir að það hafi verið kalt á toppi
Kilimanjaro. Hér sésthann
með merki bæjarins á lofti.