Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2006, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2006, Blaðsíða 17
DV Sport ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2006 17 Sir Alex Ferguson telur að mikil samkeppni um framherja- stöður síns liðs sé af hinu góða og bendir á lið sitt sem vann þrefaldan sigur veturinn 1998-98 sem dæmi um það. Hol- lendingurinn Ruud van Nistelrooy þykir einn hættulegasti framherji ensku úrvalsdeildarinnar og er nú ásamt Theirry Henry hjá Arsenal markahæstur í deildinni með 19 mörk. Hann hefur hinsvegar þurft að byrja á bekknum í síðustu þremur leikjum Manchester United á meðan þeir’ Wayne Rooney og Louis Saha hafa byrjað saman í ffamlínunni. Fyrir sjö árum vann Manchester United sigur í ensku úrvaisdeildinni, ensku bikarkeppninni og meistara- deild Evrópu og þar háðu þeir Andy Cole, Dwight Yorke, Teddy Shering- ham og Ole Gunnar Solskjaer harða samkeppni um framherjastöðumar tvær. Sir Alex Ferguson átti þá alltaf tvo framherja til góða á bekknum og sem dæmi um það vom það Shering- ham og Solskjaer sem komu inn af bekknum í úrslitaleik meistaradeild- arinnar og skomðu mörkin í uppbót- artfma sem tryggði United 2-1 sigur á Manchester United og Evróputitil- inn. Erum mjög heppnir „Við erum mjög heppnir með að hafa Wayne Rooney, Ruud van Nistelrooy, Louis Saha og hinn unga Giuseppe Rossi í okkar liði og ég er loks- ins að fá þá samkeppni um framherjastöðumar sem ég hef lengi beðið eftir," sagði Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, þegar hann var spurð- ur um stöðu van Nistelrooy hjá félaginu. „Ef við förum til baka til ársins 1999, þá áttum við fjóra frábæra framheija og þeg- ar ég valdi liðið þurfti ég alltaf að skilja tvo eftir sem báðir vom allt annað en ánægðir með það. Þeir vom hinsvegar alltaf reiðubúnir að koma inn á og sýna það og sanna að þeir ættu heima í byrjunarliðinu og það reyndist okkur mjög vel. Samkeppni um stöður er hveiju liði mjög mikilvæg,“ sagði Ferguson. Tveimur mörkum frá 150 fyrir United Van Nistelrooy hefur komið inn á sem varamaður í síðustu tveimur leikjum, spilaði í 19 mínútur gegn Wigan og í 15 mínútur gegn Newcastle um síðustu helgi. Sir Alex Ferguson talar mikið þessa dagana um keppnistímabilið 1998 til 1999 en þá vom þeir Andy Cole og Dwight Yorke aðalframherjaparið en Teddy Sheringham og Ole Gunnar Solskjaer biðu báðir þolinmóðir á bekknum. Sheringham var þá á lokakafla ferils síns og hugsaði meira um að vinna titla en að ná einstaklingaárangri og Solskjaer hafði löngu sannað sig sem súper-varamann. Van Nistelrooy er hins vegar í annarri stöðu en þessir tveir og hann gæti fljótlega farið að horfa tií Spánar og Ítalíu haldi Sir Alex honum áffam á bekknum. Það er allavega ljóst að nægur er áhuginn á þessum frábæra framherja. Wayne Rooney er orðinn aðalmaðurinn Það hefur samt verið áberandi hversu Wayne Rooney er að spila vel við hlið Louis Saha og það er eflaust aðalástæðan fyrir því að Van Nistel- rooy þarf að verma bekkinn. Rooney hefur leikið frábærlega að undan- fömu og er löngu orðinn aðalmaður- inn í sóknarleik Manchester United. Ferguson er ánægður með Frakkann Louis Saha sem hefur haldið Van FRAMHERJAR MAN. UTD í SÍÐUSTU LEIKJUM: 4-0 sigur á Wigan (Rooney 2, Saha, Ron- aldo) Wayne Rooney - 90 minútur Louis Saha - 90 minútur Ruud van Nistelrooy - Kom ekki viö sögu Giuseppe Rossi - Ekki íhop 2-1 sigur á Wigan (Ronaldo, sjáifsmark) Wayne Rooney - 90 mlnútur Louis Saha - 90 mínútur Ruud van Nístelrooy - I/aramaður á 71. minútu Giuseppe Rossi - Ekkl í hóp 2-0 sigur á Newcastle (Rooney 2) Wayne Rooney - 90 minútur Louis Saha - 90 minútur Ruud van Nistelrooy - Varamaður á 75. minútu ' Giuseppe Rossi - Kom ekki við sögu Nistelrooy á bekknum síðan í úr- slitaleiknum um deildarbikarinn, þegar Sir Alex setti Hollendinginn á bekkinn. United vann 4-0 sigur og þeir Rooney (2 mörk) og Saha (1) vom báðir á skotskónum. Það er kannski engin ástæða fyrir Sir Alex að breyta liðinu. Manchester hefur unnið alla þrjá leikina síðan Van Nistelrooy fór á bekkinn og liðið er nú komið með fimm stiga forskot á Liverpool í baráttunni um 2. sætið. Það er samt ömggt að allra augu verða á leikskýrslunni sem Ferguson skil- ar inn fýrir næsta leik sem verður gegn West Brom á laugardaginn kemur. ooj@dv.is uiid van Nistelrooy hefur verið á varamannabekknnm i hiistu þremur leikjum Manchoster Uniied. Þeir hafa all Ir unnist og Sir Alex Ferguson er greinilega ekkert að reyta sigurliði þótt það þyði að markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar sitji á hekknum. Tveir titlar til KR-inga Gestgjafar KR-inga stóðu sig vel bæði innan sem utan vallar á bikarúrslitum yngri flokka körfuboltans sem fram fóm í DHL-höllinni um helgina. Auk þess að skapa glæsilega umgjörð utanum leikina unnu KR-ingar tvo bik- armeistaratitla en alls eign- uðust sjö félög bikarmeist- ara. KR vann 10. flokk karla og drengjaflokk en önnur fé- lög sem eignuðust meistara vom Grindavík (10. flokkur kvenna), Fjölnir (9. flokkur karla}, FSU (Unglingaflokkur karla), Njarðvík (9. flokkur kvenna), Valur (11. flokkur karla) og Haukar (Unglinga- flokk kvenna). Flottur leikur hjá Hlyni og Sigurði Hlynur Bæringsson og Sigurður Þorvaldsson áttu báðir góðan leik þegar lið þeirra Leeuwarden Woon! Aris vann 13 stiga sigur á Nijmegen Matrixx Magixx, 10-88. Hlynur var með 13 stig og 11 fráköst og Sigurður skoraði 12 súg og gaf 4 stoðsendingar. Nijmegen er í 4. sæti deildarinnar á meðan Leeuwarden situr enn í botnsætinu en þetta var að- eins þriðji sigurleikur liðsins á tímabilinu. N í vetur Ný taeki - Betna verð! Ssr' 17.900.- n«NDt«TONi- m n nnn kr ifulmx. lc.aUU.- ,.allti.y.dr..krflpp.irin HREYSTI Síðasti leikur 16 liða úrslita meistaradeildarinnar er í kvöld Inter varaðir við að vanmeta Ajax aftur í kvöld ræðst hvað verður áttunda og síðasta liðið til þess að tryggja sér sæti f 16 liða úrslitum rneistaradeild- ar Evrópu í knattspymu en ítalska liðið Internazionale tekur þá á móti hollenska liðinu Ajax. Liðin gerðu 2-2 jafntefli í fyrri leiknum þar sem Ajax komst tveimur mörkum yfir eft- ir aðeins 20 mínútna leik. Það var mikið búist við að Inter- nazionale í vetur en liðið hefur ekki náð að fylgja Juventus eftir í barátt- unni um ítalska meistaratitilinn og er nú f 3. sæti, tólf stigum á eftir Juve. Það skiptir liðið hins vegar miklu máli að Brasilíumaðurinn Adriano virðist vera að ná sér á strik á ný en þegar hann skoraði sigurmarkið gegn Sampdoria um helgina hafði hann ekki skorað í 10 leikjum í röð. Forseti Inter, Giacinto Facchetti, varaði sína menn við að vanmeta ekki Ajax-liðið í annað sinn. „Við lærðum tvennt á fyrri leiknum. Ef við mætum í leik með það í huga að vera að fara að spila léttan leik þá lendir þú 2-0 undir. Ef við mætum hins vegar eins og við komum til með í seinni hálfleiknum í Amsterdam þá eigum við mjög góða möguleika á að komast áfram í átta liða úrslitin," sagði Facchetti í viðtali við ítalska út- varpsstöð en hann er einnig frægasti leikmaður Intemazionale og ítalska landsliðsins frá upphafi. Facchetti varð meðal annars Evrópumeistari með Inter 1964 og 1965. „Umfram allt megum við ekki álíta að 0-0 jafntefli séu bestu úrslit- in,“ sagði Facchetti ennfremur og bætti við. „Ajax er með ungt lið, skemmtilega og leikna leikmenn sem hafa komið í gegnum unglinga- starf félagsins og hafa spilað lengi saman." Leikmenn Ajax þurfa að endur- skrifa sögu síns félags ætli þeir sér áfram því Ajax hefur aldrei unnið leik á Norður-Ítalíu en takist það í kvöld þá mæta þeir liði Villarreal í átta liða úrslitunum. HUELLUR „ í eimini grænum G. Tómasson ehf • Súóatvofil 6 • simi: 577 6400 • www.hvellur.cotn • hvellur@hvellur.com BÍLSKÚRS OC IÐNAÐARHURÐIR * Hurðir til á lager * Smt'ðað eftir máli • Eldvarnarhurðír * Öryggishurðír

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.