Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2006, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2006, Page 24
“1 24 ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2006 Sviðsljós X3V I.Pétur Yamagata Kommon - hann vinnur I fm Nörda- ’ ■ BÚÐINNI. 2. Bjarni Ármannsson Áhugamál: Vöxturís- landsba... ég meina Glitnis. Og útsaumur!!! É 3. Hávar Sigurjónsson Hávarskreið undan nörda- steininum sfnum og skaut föstum skotum á hinn gullfallega Gillzenegger. Meira, meira! 4. Hilmar í Eve online Konungur nördanna í Eve online t/maeyðslu- heiminum. 5. Jón Gnarr Var einu sinni nörd , ogerþað i enn. Verður bráðum fullnuma i fp' kaþólskum dýrlingum. 1/, h 6. Ármann og Sverrir Jakobssynir „Gáfuðu f tvlbur- g* arnir“eru glæsilegir nördar bæði I hátt- um og útliti. 7. Palli í Maus Palli I Maus er nördalegastur Islenskra popp- ara, en það má ekki gleyma því aðídagerllka dálltið töffað vera nörd. 8. Margeir Pétursson „Skák-nördar“ er sérstakur undir- flokkurinnan nörda- „heimsins“ og I þeim hópisláfáir Margeir úti nördaskap. '©1 ft 9. Stefán Pálsson Þeir sem taka að sér að semja spurningar I Gettu betureru und- antekinga- laustmeiri- háttar nördarog Stefán er meiriháttar nörd. 10. Stefán í Málefnunum Lltið á manninn - meganörd- isminn skín af honum! Svo læturhann lika konurógnasér. Þrír nýir þættir hefja göngu sína á sjónvarpsstöðinni Sirkus í byrjun apríl. Það eru þættirnir Bakvið böndin, Matador og Tívolí. Efni þáttanna og stjórnendur þeirra virðast vera eins langt frá hnakkavæðingunni og komist verður. Atli Bollason Fjallar um menn- ingu I Matador. HmkkavæHngin f byrjun apríl hefja göngu sína þrír nýir þættir á sjónvarpsstöðinni Sirk- us. Þeir bera nöfnin Tívolí, Bakvið böndin og Matador. Það er óhætt að segja að þættimir séu öndverðum megin við þá hnakkavæðingu sem Sirkus fór af stað með í janúarmán- uði. Þáttarstjómendur nýju þáttanna eiga það allir sameiginlegt að vilja sem minnst láta bendla sig við hnakkavæðinguna og taka allir skýrt ífam að þættimir séu allt nema liður af henni. Þorsteinn Lár, einn stjóm- enda þáttarins Tívolí, sagði til dæmis í viðtali við DV á dögunum: „Við erum ekki hluti af þessari hnakkaspiksbylt- ingu á Sirkus, það get ég sagt þér." Bakvið böndin „Hugmyndin er að kynnast bönd- unum. Hver er framtíðin, lífið, per- sónumar? Sem sagt gefa smá innsýn," segir Ema Bergmann Bjömsdóttir um þáttinn Bakvið böndin. Ema sér um þáttinn ásamt A Ellen Lofts-. dóttur. Þær stöllur em einnig þekktar sem plötusnúðamir Ellen og Ema. „Þetta em sex þættir og við tökum eitt band í hverjum þætti," segir Ema um uppbyggingu þáttanna. „Við reynum að taka alla flóruna og höfða til sem flestra." Ema segir að hug- myndin að þættinum sé komin ffá þeim vinkonunum og tek- ur skýrt fram að þetta sé ekki svokall- aður djammþáttur. „Þetta er fræðsluþátt- ur með skemmtana- gildi. Þetta er alls enginn djammþáttur. Þetta er miklu ffekar eitthvað sem öll fjöl- skyldan gæti horft á," segir Ema um innviði þáttarins. Matador „Þetta er þáttur fyrir hugsandi ungt fólk," segir Atli Bollason um menningarþáttinn Matador. Atli er einn stjómandi þáttarins og segir ekki komna endanlega mynd um hvort hann sitji einn við stjómvölinn. „Það er verið að reyna að skoða menningu með gagnrýnum hætti," segir Atli. „Þessir þrír þættir em að vissu leiti andsvar við hnakkavæðing- unni, en samt ekki á snobblegan eða L beinan hátt. Þetta er meira byggt á því , að fólk nenni að hugsa aðeins meira lút íhlutina." Ellen Loftsdóttir og Erna Berg- mann Stjórna þætt- inum Bakvið böndin. Tívolí „Þetta verður skemmti- og fræðsluþáttur fyrir fólk á aldrinum 12 til 35 ára, þar sem ferskleikinn er í fyrirrúmi. Það verða viðtöl, tón- listammfjöllun og heimsóknir í kaupstaði sem heimahús. Síðan kíkjum við á bíla, smá jaðarsport og í raun allt sem er eitthvað fútt í, nema þá kannski djammið," sagði Þorsteinn Lár Ragnarsson í viðtali við DV ekki alls fyrir löngu. Hann er einn umsjónarmanna Tívolí, þriðja nýja þáttarins á Sirkus. Asamt honum verða rapp- ararnir Dóri DNA, Ágúst Bent og Lúðvík úr Rottweilerhundum í þættinum. asgeir@dv.is Lúðvík og Þorsteinn Segja Tlvolí fræðslu- og skemmtiþátt fyrir fólk á aldrinum 12til35ára. Hnakkará Sirkus Blésu til sóknar um ára- mótin. Finnar em algjörir lúserar þegar kemur að Eurovision. Þeir keppa nú í fertugasta skipti en hafa aldrei komist hærra en í 6. sæti, árið 1973. Nú reyna þeir algjörlega nýja taktík og senda hljómsveitina Lordi, sem eins og sést á myndinni er stífmeikuð fimm manna skrímslahijómsveit og algjörlega ólík öllu sem áður hefur sést í keppninni. Hljómsveitin nýt- ur hylli heima fyrir með melódíska leikhús- þungarokkinu sínu og hefur gert fjórar plötur. Lagið sem þeir ætla að flytja, Hark rock halle- lujah, burstaði forkeppnina enda grípandi og skemmtilegt og minnir á frægustu lög Meat- loafs. Hljómsveitin er nefnd í höfuðið á aðal- manninum Lordi, sem lýsir sér sem „beljaka frá heivíti". Aðrir meðlimir eru Amen („múmí- an óstöðvandi"), Enary („stjórnsama valkyrj- an"), Kalma („mótorhjólazombíið frá helvíti") og Kita („manndýrið utan úr geimnum"). Hljómsveitin er alltaf í karakter, bæði á sviði og utan þess, og verður eflaust gaman að fylgj- ast með henni á blaðamannafundum. Það eru því fleiri frík en Silvía Nótt sem munu berjast um athyglina í Aþenu og jafnvel möguleiki að þessi nýja taktik Finnanna muni loksins skila þeim skárri árangri en 6. sætinu. Lordi þarf þó fyrst að komast upp úr undankeppninni, en skrímslunum frá helvíti ætti ekki að verða skotaskuld úr því. í DAG ERU® DAGAR TIL STEFNU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.