Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2006, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2006, Blaðsíða 25
0V Sviðsljós Stoltur Sunna segir kærastann Guðberg Krist jánsson mjög stoltan. Þrjár efstu Sig- rún Bjarnadóttir lentii öðru sæti, Sunna Stefánsótt- ir er ungfrú Suður- land og Halldóra Markúsdóttir tók þriðja sætið. •'Vv Flottar Sunna og Sara voru flottaribik- ini, enda búnar að æfa stift frá áramótum. „Þetta gekk mjög vel en var samt rosalega skrýtið," segir nýkrýnd Ung- frú Suðurland, Sunna Stefánsdóttir. Sunna er á félagsfræðibraut við Fjölbrautskóla Suðumesja og með mikla útþrá. „Ég klára skólann á þremur og hálfu ári og útskrifast í des- ember. Þá fæ ég hálft ár í frí og vil fara eitthvert erlendis og gera eitthvað öðruvísi. Langar helst til Englands eða Noregs." Sunna býst ekki við því að fá mikla pásu þar sem æfingar fyrir ungfrú ís- land hefjast strax eftir að forkeppnun- um lýkur, en henni hlakkar mikið til. Er ekkert erfítt að koma fram á bik- iní? „Það var erfiðasta atriðið en ég er mjög sátt við mig og líkama minn og var mjög örugg með mig,“ segir feg- urðardrottning Suðurlands með bros ávör. Forkeppnir fyrir Ungfrú ísland eru í fullum gangi úti um allt land. Sunna Stefánsdóttir hreppti titlinn ungfrú Suöurland um helgina í glæsilegri keppni sem haldin var á Hótel Selfossi. jí Arftakinn krýndur Svala Jónsdóttir, ung- frú Suðurland 2005, krýnir arftaka sinn. - - w <r Þúsund sushi á færibandinu þokast nær Sushi-ið eins og við þekkjum það er jap- anskur skyndibiti sem var fundinn upp um miðja 19. öld af Hanaya Yohei (1799-1858). íbúarTokýó komust strax á bragðið og síðan hefur sushi-ið borist um veröldina. Þrátt fyrir meintan fersk- leika íslensks sjávarfangs hefur sushi verið lengi að ná hér fótfestu og ýmsir staðir farið á hausinn á þeirri leið. Sushi er góðærismatur sem töff er að láta oní sig, Silvía Nótt etur til dæmis fátt annað. í góðærinu núna (sem vonandi lafir eitt- hvað áfram) er því loksins von á alvöru uppgangi í sushi-bransanum og Ósushi hefur farið mjög vel af stað. Það er gott. Ósushi - The Train Iðuhúsinu i Lækjargötu Veitingarhús segi ég nú bara, því eftir að ég „komst á bragðið" hef ég verið sushi-aðdáandi sem þarf að fá minn skammt einu sinni í mánuði eða svo. Á Ósushi er ferskleiki hráefnisins í fyrir- rúmi en staðurinn er líka nokkuð „fersk- ur" hipp- og kúl-lega séð. Setið er við færiband þar sem sushi-diskarnir rúlla hring eftir hring. Maður getur dáleitt sjálfan sig með því að horfa of lengi. Fimm verð eru í gangi á diskunum - 200, 250,300,350 og 500 kr. - og tákna litir diskanna verðin. Ég hef komið þarna nokkrum sinnum og virðist traffíkin dá- lítið stjórna framboðinu. Einu sinni kom ég seint í hádegi. Þá var dapurt ástand á færibandinu og mér tjáð að hrísgrjónin væru búin. Ég varð virkilega fúll að fá ekki sushi-ið mitt. Ef maður forðast annatíma ætti framboðið að vera tipp topp. (hádeginu á laugardaginn vartil dæmis gott rennsli, margar tegundir af maki-rúllum rúlluðu hjá, alls kyns sushi- bitar, sashimi og nokkrir gerðir eftir- rétta. Ég saknaði þó sushi með hvitum fiski og smokkfiski og hefði verið til í eitthvert salat eða nautakjöts-sushi. Þó er hægt að sérpanta ef mann langar i annað en það sem er á færibandinu. Ég pantaði mér California-kramhús sem var magnað enda kokkurinn á vakt, Guðjón Baldursson, orðlnn helviti góður og lík- lega besti sushi-kokkur landsins. Það er gaman að borða á Ósushi og bragðlaukarnir æpa af sushi-gleði. Það er líka gott að hugsa til þess að nú í góð- ærinu sé þetta eini fiskurinn sem maður þarf að sjá þokast nær á færibandi. — iFrábært fjölvítamín með •rSpLARAY spírolinu, lecetíni og fleiru í jurtabelgjum. Aðeins ein á dag Póstsendum | ’ 1 ð 11SU" um land allt S: 462-1889 • heilsuhorn@simnet.is • www.simnet.is/heilsuhorn Útsölustaðir m.a: Yggdrasill, Fjarðarkaup, Maður lifandi I Borgartúni og Hæðarsmára, Ufsins Lind I Hagkaupum, Lyfjaval I Mjódd og Hæðarsmára og Lyfja á Selfossi. m j | I wm FAGMENNSKA í FEGRUNAR TATTl LEYNDARMÁL MARGRA FAGURRA KVENNA 'ss;-r„y V. KYNNTU ÞÉRMÁLIÐ í S. 561 3060; SNYRTISTOFAN H E L E N A F A G R A <£>% 7Q) S. 561 3060 LAUGAVEG I 163 -LEGUR ..kúiulegur ..keflalegur ..veltilegur ..rúllulegur ..flangslegur ..búkkalegur Söluaðili Akureyri Slmi 461 2288 jnrSrRAUMRÁS __JP Furuvellir 3 - 600 Akureyri PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA í 25 ÁR • GELNEGLUR • LITUN OG PLOKKUN • HANDSNYRTING • BRÚNKUMEÐFERÐIR - FÓTSNYRTING • HÚÐSLÍPUN • VAXMEÐFERÐIR • SÝRUMEÐFERÐIR • ANDLITSBÖÐ SNYRTISTOFAN SQLon r"it_s LAUGAVEGI 66 - SÍMAPANTANIR: 552 2460 Hárvörur fyrir rautt Vertu eftirminnileg

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.