Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2006, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2006, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2006 Fréttir JJV Köttur á Álftanesi Kettir mega ekki vera úti eftir miðnætti. Kæra forseta til ráðuneytis Bæjarfulltrúar í Grinda- vík deila vegna tillögu um gjaldskrárbreytingar frá fulltrúa minnihluta Fram- sóknarflokks, sem ekki fékkst tekin á dagskrá á bæjarstjórnarfundi. „ftrek- að var reynt að þvinga á dagskrá máli sem ekki var til umræðu," bókar meiri- hluti Samfylkingar og Sjáif- stæðisflokks. „Sem betur fer er úrskurður Harðar Guðbrandssonar, forseta bæjarstjórnar Grindavíkur, ekki fullnaðarúrskurður um meðferð sveitarstjórnar- mála. Bíðum við úrskurðar félagsmálaráðuneytis og fullvissir um sigur okkar þar sem réttlætið sigrar,“ bóka framsóknarmenn á móti. Hagvöxtur nam 5,5% Landsframleiðslan á árinu 2005 varð 996 millj- arðar króna og óx að raungildi um 5,5% frá fyrra ári, að sögn Hag- stofunnar. Þessi vöxtur kemur í kjölfar 8,2% vaxt- ar á árinu 2004. Vegna batnandi viðskiptakjara og minni nettó vaxta- og arðgreiðslna til útlanda uxu þjóðartekjur nokkru meira, eða um 6,7%. Vöxturinn einkenndist af miklum vexti einka- neyslu sem óx um 11,9% og fjárfestingar sem óx um 34,5%. Þjóðarútgjöld- in uxu því talsvert um- fram landsframleiðsluna, eða um 14,9% og leiddi það til verulegs halla á vöru- og þjónustuvið- skiptum við útlönd. 80 ökumenn stoppaðir Lögreglan í Kópavogi stöðvaði tæplega 80 öku- menn á mánudag- inn fyrir að vera á óskoðuðum bflum og í sumum tilfell- um fyrir að vera ekki með trygg- ingagjöldin af bfl- unum greidd. Segir lögreglan að fólk trassi alltof lengi að fara með bfla sína í skoðun og þeir sem eru stoppaðir fá eingöngu vikufrest til þess. Hinir sem hafa ekki greitt tryggingar af bflum sínum lenda í því að númerin eru klippt af bflunum á staðn- um. Bæjaryfirvöldum á Álftanesi gengur illa aö framfylgja reglum sem banna lausa- göngu katta eftir miðnætti. Hermann Már Þórisson, íbúi á Álftanesi, hefur sent bæjaryfirvöldum kvörtun vegna kattanna sem espa hund hans um nætur og þá get- ur Hermann Már ekki sofið. m& „Ég óskaði einfaldlega eftir því að farið væri að reglum ef verið væri að setja þær á annað borð," segir Her- mann Már Þórisson, íbúi á Álftanesi, sem kvartað hefur við bæjaryflrvöld út af næturköttunum. „Álftanes hef- ur gengið skrefi lengra en önnur bæjaryfirvöld og bannað lausa- göngu katta eftir miðnætti. Bæjaryf- irvöld verða þá að sjá til þess að regl- unum sé ffamfylgt." Andvaka Hermann Már er ekki að kvarta að gamni sínu. Kettimir hafa óbeint haldið fyrir honum vöku um nætur: „Ekki kettirnir sjálfir heldur | hundurinn minn en hann byrjar að gelta þegar kettirnir breima fyrir utan," segir Hermann Már sem þarf sinn nætursvefii eins og aðrir. Hann tekur þó ffarn að hvergi sé betra að búa en á Álftanesi. Hann hefur búið í Reykjavík, Kópavogi, Bandaríkjun- um og á meginlandi Evrópu: „En hér Næturkettir valda sveínleysi á Alftanesi Kettir á Álftanesi eru orðnir vandamál, svo mjög að íbúar'sjá sig tilknúna að kvarta yfir þeim við bæjaryfirvöld. Eru kettir á ferli úti um allan bæ þrátt fyrir samþykkt bæjarstjórnar og reglur um að lausaganga katta sé bönnuð eftir miðnætti. 0** 40. er best að vera. Það gerir náttúran og sjórinn," segir hann og óskar í raun þess eins að vera laus við kettina um nætur. Kunna ekki á klukku Yfirvöld á Álftanesi hafa íjallað um kvörtun Hermanns Más og í ff amhaldinu falið Guðmundi Gunn- arssyni bæjarstjóra að kynna málið og skýra fýrir heilbrigðiseftirlitinu'. Gunnar bæjarstjóri lá veikur heima þegar DV reyndi að ná í hann í gær en Þórður Kristleifsson, skrifstofu- stjóri og staðgengill bæjarstjóra, varð fyrir svörum: „Það getur verið erfitt að kenna köttum á klukku," segir Þórður og viðurkennir að kettir séu að verða of áberandi í landslaginu á Álftanesi. Og það sama gildi reyndar um hunda. „En við viljum taka á þessu og ég veit að Gunnar bæjarstjóri er sama sinnis. Hann er enginn sér- stakur kattavinur." I Baejarstjórinn Guðmundur I Gunnarsson erenginn sér- I stakur kattavinur, segir stað- | gengill hans. I Álftanes Kettir j breima, hundar I gelta og fólk Igetur ekki sofið. Þjáist Jón Ársæll af tannrótarbólgu eins og Clark Gable? Svarthöfði las sér til furðu í DV í gær hvernig Geir Hilmar Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, kemur Jóni Ársæli fyrir sjónir. Svarthöfða hefur alltaf þótt Jón Ár- sæll frekar svona undarlegur ná- ungi. Viðtalstælcnin sérkennileg: Fer einhvern veginn alveg ofan í viðmælanda sinn og blæs á hann. Þetta heitir víst að mása. Eftir að Svarthöfði las það einhvers staðar að hin leikrænu tilþrif Vivien Leigh í Gone With the Wind - þessi sér- stæði svipur leikkonunnar sem lengi þótti lýsa einstakri sálarang- ist og innri baráttu - var sprottinn Svarthöfði af því að Clark Gable var óvenju andfúll, veltir hann fyrir sér hvort Jón Ársæll bursti ekki örugglega tennurnar? Eða hvort hann sé eins og gamla lcvilcmyndabuffið andfúll og viðmælendur svari bara ein- hverju aðstæðnanna vegna. Og þess vegna þyki Eddu-liðinu þáttur Jóns Ársæls svona góður? Það dett- ur nefnilega ýmislegt sérkennilegt, fyndið og ósldljanlegt upp úr fólki þegar það er að kafna. Hvernig hefur þú það? „Ég hefþað bara fint, er að undirbúa mig fyrir tökur á Mýrinni eftirArnald Indriðason sem brátt hefjast,"segir Ingvar Sigurðsson leikari sem fer meö aðalhlutverk Imynd- inni og tekst þará við Erlend rannsóknarlögreglumann. Já, ég hef lesið bækurnar og þekki Erlend, rétt eins og aðrir sem lesið hafa bækur Arnaldar. Ég veit ekki hvort við erum llkir en þegar að er gáð er aldrei að vita nemaþað leynist þræðir hér sem við eig- um sameiginlega, “ segir Ingvar. Sýn sjónvarpsmannsins varpar algerlega nýju ljósi á formann Flokksins. Jón Ársæll segir Geir skemmtilega blöndu af feimnum sveitastrák og gallhörðum stjórn- málamanni. Jón Ársæl langar til að faðma manninn og lcnúsa eins og gamlan bangsa. Fyndinn er Geir svo af ber en samt þannig að allar ömmur vildu ekkert annað en eiga hann sem barnabarn. Og Geir vill láta minnast sín sem gúddí gæ. Hann hefur minni eins og ffllinn og Davíð en er samt ekld iangrækinn eins og þeir!? Þessi mótsagnakennda lýsing Jóns Ársæls á Geir Hilmari er eldd sannfærandi. Lái Svarthöfða hver sem vill. Og þegar svo rifjast upp að öðlingurinn Kjartan Gunnars- son situr afskiptur í Valhöll af því að Geir leggur hann í einelti fer að renna á Svarthöfða önnur gríma. Hversu raunsannar eru mannlýs- ingar Jóns Ársæls? Er skýringanna á sérkennilegheitunum að leita í því að Jón Ársæll er með tannrót- arbólgu eins og Clark Gable? Svarthöfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.