Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2006, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2006
Fréttir X3V
Vilja ekki
fiskifýlu
Bæjarráð Sandgerðis er
ósátt við að Heilbrigðiseftirlit
Suðumesja hafi veitt fyrir-
tækinu Samey starfsleyfi til
tjögurra ára tÚ heit-
loftsþurrkunar
fiskafurða þar í
bænum. „Það hefði
verið eðlilegt að
óska eftir umsögn bæjar-
stjómar Sandgerðisbæjar á
umræddum hugmyndum,"
segir bæjarráðið í harðorðri
bókun og minnir á að verk-
unin verði í næsta nágrenni
við miðbæjarsvæðið. Því sé
þungur hugur í bæjarfulltrú-
um. Þá er lögð mikil áhersla
á að strangt eftirlit verði með
því að heitloftsþurrkun
fiskafurða verði í lokuðu kerfi
með lykteyðingarkerfi.
Matsmenn í
mál Gunnars
Ríkislögreglustjóra er
heimiit að kalla til tvo dóm-
kvadda matsmenn til að
meta störf Gunnars Amar
Kristjánssonar sem endur-
skoðanda fyrir Tryggingar-
sjóð lækna. Láms
Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri sjóðs-
ins, hefur þegar ver-
ið dæmdur fyrir að
draga sér um 80
milljónir króna af eigum
sjóðsins. Hæstiréttur vísaði
hins vegar málinu gegn
Gunnari frá dómi vegna
galla í málsmeðferð. Síðan
haihaði héraðsdómur ósk
ríkislögreglustjóra um dóm-
kvadda matsmenn en
Hæstiréttur dæmdi í gær að
þeir gætu tekið til starfa.
Málið gegn Gunnari heldur
því áfram.
en maður
getur lika farið í allar áttir með
það/'segir Þorsteinn Stein-
grimsson, eigandi Frakka-
stigsreitsins.„Ég er slakur á því
sem gerist. Ég flýti mér hægt
enda þýðir ekkert annað þeg-
ar maður býr við silalegasta
kerfí sem maður hefur nokk-
Hvað liggur á?
urn
timann
fyrir-
fundið, sér í lagi Reykjavíkur-
borg. Maður er bara búinn að
setja sig í þann gir að láta sér
ekki liggja á þó manni liggi á.“
Ungar stúlkur sem vilja megrast sækjast í auknum mæli eftir stólpípuskolun. Að
minnsta kosti tvær stofur bjóða upp á slíka meðferð. Prófessor í læknisfræði segir
það geta valdið óbætanlegum skaða á ristli að stunda slíka hreinsun.
Megrun með því að skola út ristilinn með stólpípu verður sífellt
algengari meðal ungra stúlkna sem jafnvel föndra við það sjálfar
heima að skola sig út.
Stólpípuhreinsun er nú hægt að fá
á að minnsta kosti tveimur sérstökum
stofum en þeir sem aðhyllast óhefð-
bundnar lækningar sækjast í auknum
mæli eftir úthreinsun með stólpípu.
Kolbrún Bjömsdóttir grasalæknir seg-
ist hafa orðið þess vör að ungar stúlk-
ur sem stöðugt eru í baráttu við auka-
kílóin telji stólpípu allra meina bót.
Úthreinsunin veldur ákveðinni
vellíðan og auðveldlega er hægt að
ánetjast stólpípuhreinsun. Prófessor í
læknisfræði segir það geta valdið
óbætanlegum skaða á sh'mhúð ristils-
ins að fara endurtekið og með stuttu
miflibili í stólpípu eins og margar ung-
ar stúlkur virðist gera.
Ungar stúlkur spenntar fyrir
stólpípuhreinsun
„Það er vandmeðfarið að gefa stól-
pípu og auðvelt að ofnota þessa með-
ferð,“ segir Kolbrún Bjömsdóttir
grasalæknir, en hjá henni er ekki hægt
að fá stólpíphreinsun.
Kolbrún segist í starfi sínu hafa
orðið vör við aukna eftirspum eftir
stólpípuhreinsun sem hún sér ekkert
athugavert við, sé aðferðin ekki ofnot-
uð.
„Ég hef orðið vör við aukinn áhuga
ungra stúlkna á þessari meðferð. Það
fylgir því nokkur velhðan að fá stól-
pípu, sérstaklega á eftir. Því er þessi
hreinsun varasöm fyrir þá sem veikir
em fyrir hvers kyns öfgum en ég veit
til þess að sumar þeirra ofnota stól-
pípumeðferð og mynda
hreinlega nokkurs
konar fíkn í þetta,"
bendir Kolbrún á.
Hún segist eigi
að síður vera
meðmælt með-
ferðinni, sé hún
notuð rétt og þá í
tengslum við
föstu
sinni eða tvisvar á ári. Það hafi allir
gottafþví.
Stúlkur með anorexíu eða
búlemíu fíknar í úthreinsun
„Ég veit þess nokkur dæmi að.
stúlkur sem em á mörkum þess að
vera með anorexíu eða búlemíu eigi til
að ofnota stólpípumeðferð og fara afit
að einu sinni í viku sem getur skaðað
em að berjast við aukakílóin sem sæki
í þetta. „Sú árátta hefur lengi þekkst
að þeir sem em fastir í að megra sig
hreinsi sig út með microlax eða toilax.
Þetta er svipuð árátta," bendir hún á.
Stólpípuhreinsun á stofu
DV er kunnugt um að minnsta
kosti tvær konur sem vinna nær ein-
göngu við að gefa stólpípu. Hvert
skipti kostar um það bil fimm þúsund
krónur en misjafnt er hvort allur
ristiUinn er skolaður út eða aðeins
hluti hans. Báðar þær konur sem
„Ég veit þess dæmi að stúlkur sem haidnar
eru anorexíu eigi til að ofnota stólpípu-
meðferð og fara alit að einu sinni í viku
sem getur skaðað ristilinn."
Kolbrún Björnsdóttir grasa-
læknir Finnur fyrír auknum
áhuga meðal ungra stúlkna á
að fara i stólpipuskoiun.
ristilinn. Þær em líka að föndra við
þetta sjálfar heima og gefa hver
annarri pípu en það hefur
verið hægt að kaupa
einnota stólpípur í apó-
tekum,“ segir Kolbrún
og bendir á að það séu
einkum stúlkur sem
bjóða upp á stólpípu á stofum sínum
hafa lært það erlendis en aðferðin er
aldagömui og hefur verið mikið not-
uð innan þess sem einu nafni kallast
óhefðbundnar lækningar.
Getur skaðað slímhúðina
Stefán B. Sigurðsson, prófessor
við læknadeild Háskóla íslands, kann-
ast við að hafa heyrt um aukna ásókn
í stólpípuhreinsun.
„Það getur beinlínis verið skaðlegt
að hreinsa sig út á þennan hátt ef það
er ranglega gert. Hættan liggur í því að
það skaði slímhúðina í ristlinum sem
er mjög viðkvæm. Slím í meltingar-
fæmm er til staðar til að taka upp
næringu og önnur efrú og ef verið er
að spúla því út með vatni getur það
valdið óbætanlegum skaða,“ bendir
hann á.
Trúa að allt sem er vont geri
gagn
Stefán segir það afar sjaldgæft að
stólpípa sé notuð núorðið í læknis-
fræðilegum tiigangi en það þekkist þó
og sé þá gert af læknismenntuðu fólki
sem loinni til verka. Það hafi löngum
verið trú manna að eftir því sem með-
alið sé verra á bragðið, því árangurs-
ríkara sé það.
„Svona bólur koma upp aftur og
aftur og ég sé ekki að tiigangurinn sé
annar en að hafa peninga af fólki. Það
eina sem gæti réttlætt þetta er að ef
fólk er að hefja átak í átt til heilsusam-
legra lífemis, þá haldi það áfram og
hugsi um hvað það lætur ofan í sig. En
ég legg áherslu á að þeir sem kunni til
verka gefi stólpípu og alls ekki eins og
mér skilst að það sé gert, mörgum
sinnum með stuttu millibili,“ segir
Stefán.
| Stefan B. Sigurðsson prófessor í lækn
fræði „Slím imeltingarfærum er tilstaðar
að taka upp næringu og önnur efni og efvt
er að spúla þvi út með vatni getur það vald
obætanlegum skaða."
Glæsilegt úrval af
handsmíðuðum
íslenskum
skartgripum
(ÍÁr£)
SKÓLAVÖRÐUSTlG 10
sími 561 1300
Skoðanakönnun um hljómsveit fyrir
sj ómannadaginn
Jónsi skákar Stuð-
mönnum á Patró
sól, Buff, Milljónamæringamir og
Vinir vors og blóma.
Sjómannadagurinn er að venju
haldinn hátíðlegur fyrsm helgina í
júní og er ekki víst að Jónsi og í svört-
um fötum verði á lausu þá. En tími er
til stefhu og þá má alltaf færa sig
niður listann.
Patreksfirðingar vilja fá Jónsa og
hljómsveit hans, í svörtum fötum, til
að leika á balli á sjómannadaginn. Er
þetta niðurstaða skoðanakönnunar
sem héraðsfréttavefurinn Tíðis gerði.
Alls tóku 972 þátt í könnuninni og
hlaut Jónsi og hljóm-
sveit hans 308 at-
kvæði. í öðm sæti
vom Stuðmenn
með 278 atkvæði
og svo komu
þær í
röð
hljóm-
sveit-
irnar Á
móti
draumur Patreks-
firðinga á sjó-
mannadaginn.
Viðbrögð við erfiðleikum í Qármálakerfinu
Fjármálasamráðið í
fastan farveg
Ákveðið hefur verið að formbinda
samráð þriggja ráðuneyta, Fjármála-
eftirlitsins og Seðlabankans varðandi
ijármálastöðugleika og viðbúnað við
hugsanlegum áföllum í ijármálakerf-
inu, en undanfarin tvö ár hefur átt sér
stað óformlegt samráð þessara aðila.
Samráð sambærilegra aðila á sér stað
í mörgum nágrannaríkja okkar.
Að sögn vefrits fjármálaráðuneyt-
isins mun samráðið fara fram í sér-
stökum samráðshópi sem gert er ráð
fyrir að hittist eigi sjaldnar en tvisvar á
ári og verður vettvangur upplýsinga-
og skoðanaskipta. Mun samráðshóp-
urinn m.a. fjalla um stöðu og horfur á
fjármálamörkuðum, meiriháttar
breytingar á lögum, reglum og starfs-
háttum er varða fjármálamarkaðinn
og álitamál í alþjóðlegu samstarfi,
Kauphöllin Grundvallaratriði erað eigend-
ur og stjórnendur fjármálafyrirtækja og
markaðsaðilar leysi vanda sinn sjálfir.
sérstaklega innan EES. í samkomu-
lagi sem gert hefur verið um umrætt
samráð er tekið fram að ef til þess
komi að fjármálakerfinu sé talin
hætta búin vegna áfalls í fjármálafyr-
irtæki eða á markaði séu viðbrögð við
slíkum vanda háð aðstæðum hverju
sinni. Grundvallaratriði sé samt að
eigendur og stjórnendur fjármálafyr-
irtækja og markaðsaðilar leysi vanda
sinn sjálfir.