Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2006, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2006, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 Fréttir DV 19ísápukúlu Heimsmetið í fjölda manns innan í sápu- kúlu var bætt í gær. 19 manns komust fyrir innan í sápu- kúlu, sem búin var til í Surrey skemmtigarðin- um á Englandi. Áður var metið 18 manns. Maður sem gengur undir nafninu Sámur sápukúlu- maður setti metið og not- aði til þess gjörð sem er sjö metrar í þvermál. Allir í kúlunni urðu að vera yfir 150 sentímetrr að hæð. „Við gengum úr skugga um að allir væru í réttri hæð. Met- ið er gott og gilt," sagði Cra- ig Glenday, ritstjóri heims- metabókar Guinnes. ‘,iS Dónalegir lögreglumenn Rússneskir lögreglu- menn þurfa nú að sækja námskeið í mannasið- um. Þetta kemur í kjölfar- ið á fjölda kvartana vegna slæmrar hegðunar þeirra. Smoren Duborev sér um námskeiðið og segist vilja koma í veg fyrir að lögreglu- mennirnir blóti og einn- ig að þeir temji sér meiri kurteisi. „Ég ætla einnig að kenna þeim ýmislegt ann- að. Til dæmis bókmenntir, listasögu, tónlist og dans. Ég ætla að kynna þá fyrir ýmis konar menningu." Bænir virka ekki Niðurstöður nýrrar rannsóknar sem fram- kvæmd var í Bandaríkj- unum hafa leitt í ljós að bænir virka ekki fýrir fólk sem fer í hjartaaðgerð. 1 raun hefur það slæm áhrif að sjúklingar viti af því að beðið sé fyrir þeim. Fram- kvæmd rannsóknarinnar var þannig að kristilegur trúarhópur var beðinn um að biðja fyrir sjúklingum. Sá hópur sjúkhnga sem var sagt að ekld yrði beðið fyrir þeim kom best út úr rann- sókninni. Þeir sem voru látnir vita að beðið yrði fyr- ir þeim komu verst út. Abu Jandal, fyrrverandi öryggisvörður bin Ladens segir víst að bin Laden muni gera aðra árás á Bandaríkin. Jandal er nú í haldi í Yemen. Hann lýsir því hvernig samstarfið við bin Laden gekk og hvernig hann sé við sína nánustu. Jandal lýsir bin Laden sem miskunnsömum og siðprúðum manni. Osama bin-Laden mun gera aðra árás á Bandaríkin Fyrrverandi öryggisvörður bin Ladens, Abu Jandal, fullyrðir að bin Laden muni gera árás á Bandaríkin. „Þegar sheik Osama lof- ar einhverju þá stendur hann við það. Ég er viss um að hann er að undirbúa árás á Bandaríkin," sagði Jandal í viðtali í 60 mínútum, sem sýnt var í Bandaríkjunum skömmu íyrir helgi. Abu Jandal var náinn samstarfsmaður bin Ladens frá 1996 til 2000 í Afganist- an. Jandal er nú í haldi í Jemen, þar sem hann var handsamaður. Hann verður þar næstu tvö árin. Jandal er viss um að bin Laden sé enn í Afganistan, en ekki í Pakistan eins og margir telja. „Hann er ekki í Pakistan. Ég þekki aðstæður þar. Jú, vissulega eru þar menn sem gera nánast allt fýrir trúbræður sína. En þar eru líka menn sem eru tilbúnir að selja upplýsingar fyrir lítið verð. Þess vegna held ég að bin Laden sé ennþá í Afganistan." Jafnvel þó að bin Laden myndi finnast, þá mun ekki vera hægt að ná honum, að sögn Jandal. „Hann hefur fyrirskipað mönnum sínum að drepa sig, verði hann nálægt því að vera handsamaður. Til er sérstök byssa sem á aðeins að nota af því til- efni." Heppni bjargaði bin Laden Jandal segir í viðtalinu að Banda- ríkjamenn hafi eitt sinn verið ákaf- lega nálægt því að granda bin Laden, fyrir 11. september 2001. Banda- ríkjamenn gerðu loftárás á bæinn Abu Jandal Vill deyja fyrir trúna og vonast til þess aö sonur sinn geri slíkt hið sama. Khost, þar sem al-Kaída samtök- in voru með æfingabúðir. Bin La- den átti að vera í búðunum. Það var heppni sem bjargaði honum. „Við vorum að keyra í átt til Khost en þá skiptist vegurinn í tvennt. Annar veg- urinn lágt til Khost en hinn til Kabúl. Sheik Osama spurði okkur, ferðafé- laga sína, hvert við vildum fara. Við vorum allir sammála um að það gæti orðið skemmtilegt að heimsækja Ka- búl. Hann féllst á það og þangað fór- um við. Ef við hefðum verið í Khost hefðum við líklega dáið." Siðsamur Jandal segir að menn hafi kom- ist að því hver hafi gefið Bandaríkja- mönnum upplýsingar um að bin La- den hafi átt að vera í Khost. „Það var afganskur kokkur sem lak upplýsing- um til Bandaríkjamanna. Ég var til- búinn til þess að drepa manninn en sheik Osama sagði mér að vera ró- legur. Hann tók upp peningabúnt, gaf manninum og sagði honum að gefa fjölskyldu sinni að borða. Hann fyrir- gaf manninum." Bin Laden var einnig á móti því að menn biót- uðu að sögn Miskunnsamur og siðprúöur Abu Jandal segir Osama bin Laden vera siðprúðan og miskunnsaman. Þrátt fyrir það segir hann næsta vlst að bin Laden geri aðra árás á Bandarlkin. Impregilo geröi risasamning í Afganistan AbuJandal segirnæsta vístað bin Laden sé enn í Afganistan, en ekki Pakistan eins og margir telja. ! i | U ; ’Í-J K ■ 3 53 ■'-« ;• J 1 jgf r M -: a / j 111 m m ‘ 1 ! 'íi' 'Ai ‘ ■ 9H í - • iH --i m Jandal. „Einu sinni sagði ég orð sem honum mislíkaði. Ég var lækkaður í tigníþrjádaga." Heill heilsu Jandai blæs á þær sögusagnir að bin Laden sé veikur. Talað hefur ver- ið um að hann eigi við vandamál að stríða í nýrunum. „Hann er ekkert veikur. Hann átti áður við vandamál að stríða í raddböndunum. I heilaga stríðinu gegn Sovétmönnum andaði hann að sér eiturgufum sem komu fr á einhverjum eldflaugum. Eitrið fór í raddbönd hans og skemmdu þau eitt- hvað. Annars var hann ekkert veiloir." Jandal segist vilja Jfitta bin Laden aftur. Hann óskar þess að starfa aftur fyrir hann. En hann er undir ströngu eftirliti yfirvalda í Jemen. Jandal á þó son, sem hann vonar að geti starfað fyrir bin Laden og jafnvel látið lífið fyr- ir trúna. „Ég bind miklar vonir við son minn. Ég vona að guð lofi að honum takist að ljúka því sem faðir hans byrj- aði á. Ég vona í raun að sonur minn deyi fyrir trú sína - verði píslarvottur." Umdeild tilraun í barnaskóla í Flórída „Ég ætla að vinna I söluskál- anum hérá Ólafsvlk um helginaj'segirRuth Kjærnested grunnskóla- nemi á Ólafsvík. „Á milli þess að afgreiða pulsur og kók mun ég hitta vini mína og fara á rúntinn með þeim eða gera eitthvað annað sniðugt. Annars erllfiö mikið í föstum skorðum hér i plássinu og hver dagur öðrum likur. En þá er bara að vera dugleg við að finna upp á einhverju skemmtilegu." Landssímiim Byggir Sikileyjar- brúna Impregilo undirritaði mánudag- inn 27. mars samning við ítalska rík- ið um að byggja brú ffá meginlandi Ítalíu yfir til Sikileyjar. Samningur- inn hjóðar upp á ríflega 330 milljarða króna og hefur Impregilo 8 mánuði til að koma með ffamkvæmdaáætí- un og fimm ár til að ljúka verkinu. Ekki er komin dagsetning á upphaf ffamkvæmdanna en líklega verður tiað á næsta ári. Stjórnarandstaðan á tah'u er ekki hrifin af þessum fram- kvæmdum og segir að peningana eigi að nota í önnur og þarfari verk- efni. Kosningar eru á Ítalíu á þessu ári og ef Berlusconi nær ekki endur- kjöri er óvíst hvort framkvæmdum byggingar Sikileyjarbrúarinnar verði haldið til streitu. Tölvumynd af brúnni yfir til Sikileyjar Eins og fyrirhugað er að hún muni líta út. Estefan Agnoli sérstakur álits- gjafi í efnahagsmálum fyrir dag- blaðið Corriere della Sera segir að á sfðasta ári hafi Impregilo verið í fjár- hagserfiðleikum og hafi Romitifjöl- skyldan sem á stóran hlut í fyrirtæk- inu ásamt öðrum fjárfestum ákveðið að fá inn meira fjármagn með því að selja hlutabréf til fyrirtækisins Igli sem er meðal annars í eigu Benett- on og Rocca. Voru gyðingar í einn dag „Pabbi, það eina sem ég uppgötv- aði í dag er að ég vil ekki vera gyðingur." Þessi orð eru höfð eftir 8 ára strák sem tók þátt í helfarar- tilraun Minningar- skólans í Apopka í Flórída. Þegar börn- in mættu í skólann um morguninn fékk rúmlega heimingur barnanna gul- ar stjörnur, eða þau sem voru í staf- rófinu frá L til Z. Séra John Tinn- elly sagði að frá því að sonur sinn hefði mætt til skólá um morgun- inn hefði hann verið niðurlægður á ýmsan hátt. „Hann þurfti að standa aftast í kennslustundum og mátti ekki setjast. Hann var 4 sinnum rek- inn aftast í röðina í matmálstíma. Þeir sem höfðu gula stjörnu máttu ekki drekka úr sum- um vatnsbrunnum skólans." Foreldrar fleiri barna höfðu sömu sögu að segja. Tilgangurinn með helfarartilrauninni var að gefa nem- endum skólans inn- sýn í hvernig það var að vera gyðingur í seinni heimsstyrjöldinni. Börnin tóku tílraunina mjög nærri sér og sum brustu í grát þegar for- eldrarnir komu að sækja þau. Séra Tinnley sagði nauðsynlegt að fræða börnin um helförina, en þessi til- raun hefði engu skilað. Kennari við skólann, Guthrie, viðurkenndi að í ljósi kvartana foreldra hefði margt betur mátt fara. „Þau þurfa samt að vita þetta, sagan má ekki endurtaka sig."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.