Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2006, Blaðsíða 45
r
Helgarblaö DV
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 45
Sigríður Magnúsdóttir:
Þríðja hverkona með bindi
Sigríður Magnúsdóttir
Hnerri í verslun gerði út-
slagið.
- fór aldrei út úr húsi nema í svörtum buxum
Sigríður Magnúsdóttir er 64 ára og segir ekkert óeðlilegt að konur um og yfir
fimmtugt séu ekki reiðubúnar að ræða þvagleka, hvorki við lækni né opinber-
lega. Sjálfri finnst henni hins vegar lítið mál að segja frá sinni reynslu hér í DV
enda þvagleki slík fötíun í hennar huga að fólk á ekki að hugsa sig um tvisvar
þegar hjálp er í boði.
„Það eru þúsundir kvenna og karla sem
eiga við þetta vandamál að stríða en hafa sig
ekki í að ræða það, því öO umræða um það
sem er fyrir neðan mitti er ennþá tabú fyrir
fólk sem er fætt fyrir miðja síðustu öld!“ segir
hún hlæjandi.
Sigríöur er móðir tveggja stúlkna og þegar
sú yngri fæddist árið 1972 sagði kvensjúk-
dómalæknirinn hennar við hana að barnið
hefðilegið ofan á blöðrunni ogþrýstsvo mikið
áhanaaðhún mætti búast við að þurfa að fara
íblöðruaðgerð.
„Af því varð þó ekki, ég fann ekki fyrir
neinu og stundaði leikfimi og grindarbotns-
æfingar, sem að mínu mati eru algjör galdur.
Ég varð ekki vör við þvagleka fyrr en ég var á
milli fertugs og fimmtugs. Það byijaði á að ég
fór að vakna oftar á nóttunni og náði ekki á
klósettið. Þetta var ekkert sem kom mér á
óvart, því mamma hafði átt við þetta vanda-
mál að stríða, en eins og er um afltof marga
með þetta vandamál, þá ýtti ég því til hliðar;
nennú ekkert að standa í þessu.“
Þriðja hver kona með þvagleka
En svo var ekki lengur hægt að horfa fram
hjá vandamálinu:
„Nei, þetta varð slík föúun, að ég gat aldrei
verið í ljósum buxum eða pilsum. Fór aldrei út
úr húsi öðruvísi en í svörtum buxum og notaði
bindi, eins og ég held að þriðja hver kona á ís-
landi geri núna vegna þvagleka. Ég reyndi að
stjóma þessu sjálf með því að fara alltaf á kló-
J Hagkaup hnerraði ég
snögglega - og fann þvagið
leka niður, ég bjargaði mér
með því að binda jakkann
minn um mittið til að hylja
blettinn."
sett áður en ég fór út úr húsi, en þetta var farið
að valda svo miklum vandræðum, að ég mátú
ekki hnerra snöggt öðruvísi en að missa þvag
og tvívegis kom það fyrir þar sem ég var í
heimsókn hjá vinafólki að ég skildi efúr mig
blett í stólnum.“
Hnerraði í Hagkaup
Endapunktinum varnáð þegar Sigríður var
stödd íverslun með vinkonu sinni:
„Þá hnerraði ég snögglega - og fann þvagið
leka niður. Það varð sem betur fer enginn var
við þetta nema vinkona mín og ég bjargaði
mér með því að binda jakkann minn um
mitúð til að hylja blettinn. Ég var orðin svo
varkár, að ég kéypú til dæmis aldrei ljós föt
nema athuga hvort það myndaðist blettur í
þeim. Þá bleytú ég fingurinn og strauk hontnn
meðfram saumi. Meðan ég var hvað verst fór
ég aldrei í leikhús eða á mannamót í ljósum
fötum, það var hreinlega ekki hægt.“
Eftir verslunarferðina sá Sigríður að svona
gæú hún ekki verið áfram og pantaði sér tíma
hjá lækni til að fá bót meina sinna:
„Ég hugsaði með mér að svona vandamál
hlyú að heyra undir þvagfæralækni og pantaði
mér tíma hjá einum slíkum. Tilkynnú honum
að ég væri með þvagleka og vildi fá bót meina
minna. Læknirinn sagði mér að þetta tilheyrði
sér ekki, héldur kvensjúkdómalækni. Ég pant-
aði tíma hjá kvensjúkdómalækni, sem hlustaði
á sögu mína og sagði mér að það væm þvag-
færalæknar sem tækju á svona vandamálum!
Þannig fann ég loks rétta lækninn. Efúr að hafa
heyrt lýsingar hans á einfaldleika aðgerðarinn-
ar, ákvað ég að binda enda á þessa föúun, fór í
aðgerð og lá inni eina nótt. Aðgerðin er svo ein-
föld að ég myndi umhugsunarlaust fara í hana
aftur á morgun ef ég þyrfti."
Sigríður segir lífsitt hafa tekið stakkaskipt-
um frá þvfaðgerðin vargerð:
„Líf mitt hefur alveg gjörbreyst,“ segir hún.
„Nú get ég farið þangað sem ég æúa mér, en
hef það enn fyrir sið að fara á salemi áður en ég
fer að heiman. Lífið er allt annað núna, ég get
verið í ljósum buxum og ljósum pilsum að vild
án þess að hafa áhyggjur. Ég mæli eindregið
með því að fólk sem þjáist af þvagleka panú sér
ú'ma strax hjá sínum heimilislækni eða þvag-
færalækni, því það er óþarfi að búa við föúun
sem Kúð mál er að laga.“
annakristine@dv.is
10-30% AFSLÁTTUR AF FERMINGARRÚMUM OG FYLGIHLUTUM
Comfort Latex
£r
FRABÆR FERMINGARTIL
BOXSPRING
90x200 verð 15.900
120x200 verð 26.900
FIRST CLASS
120x200 verð 38.900
160x200 verð 49.900
NEVERTURN
Svæðaskipt heilsudýna
FERMINGARLEIKUR
RÚMGOTT
Þrjú heppin fermingarbörn sem fá nýtt
rúm frá Rúmgott ímars og apríl, fá andvirði |
rúmsins í fermingargjöf frá Rúmgott.
Dregið verður5. maí.
COMFORT LATEX
120x200 verð 43.110
140x200 verð 52.110
160x200 verð 59.900
NEVERTURN
90x200 verð 35.910
100x200 verð 37.710
110x200 verð 41.310
120x200 verð 44.910
130x200 verð 51.210
f\
'f--,
M
máIraFlex Rafmagnsrúm
.rumgott.is