Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2006, Síða 40
40 LAUGARDAGUR 1. APRlL 2006
Helgarblað DV
Myrti sex í
grímupartíi
Sex lágu í valnum í grímupartíi
í Bretíandi um helgina þegar einn
gestanna hóf skothríð áður en
hann framdi sjálfsmorð. Morð-
inginn, Aaron Kyle Huff, 28 ára,
var einn af 20 gestum í partíinu.
Snemma um morg-
uninn sótti Huff
byssur í bfl sinn
og hóf að skjóta
á þá sem á vegi
hans urðu. Fólkið
reyndi að koma í t
veg fyrir að
Huff kæmist
inn í húsið en
hann braut sér
leið með því
að skjóta á alla sem fyrir honum
urðu. Þegar lögreglan kom á vett-
vang skaut Huff sig í höfuðið.
í
Barnamorðin
kominn í sambúð
Robert Thomson, annar
drengjanna sem myrti hinn
tveggja ára James Bulger, er flutt-
ur inn með ástmanni sínum.
Hinn 23 ára barnamorðingi losn-
aði út fyrir fimm árum. Þrátt fýrir
að vera kominn með nýtt nafn
verður hann, samkvæmt reglum,
að segja sambýlismanni sínum
frá fortíð sinni. Thomson og John
Venables myrtu Bulger árið 1993
þegar þeir voru aðeins 10 ára
gamlir. Þeir hafa nú báðir hafið
nýtt líf og teljast ekki hættulegir
umhverfi sínu.
Myndaði nakin
börn
Rúmlega fertugur breskur
karlmaður hefur verið handtek-
inn og fangelsaður fýrir að mynda
nakin börn á ströndum. Véla-
fræðingurinn Ian Bateman, 42
*■* ára, faldi myndavélar í sólarolíu-
brúsum og skóm sínum. Lögregl-
an fann 22 tölvur fullar af mynd-
um af nöktum börnum á heimili
hans í Bognor Regis f Sussex en
myndimar vora teknar á yfir tfu
ára tímabili. Lögreglan fann
einnig stóra dúkku, ldædda sem
unga stúlku, í rúmi Batemans.
r Hann viðurkenndi brot sín og
fékk 20 mánaða fangelsi.
Sabine Hinken var hversdagsleg kona í útliti. Hún þótti umhyggjusöm við
börn og engan hefði grunað að þessi kona hefði myrt níu kornabörn.
Alls fundust níu beina-
grindur í garði Evu,
móður Sabinu. Öll
höfðu börnin verið kæfð
nokkrum mínútum eftir
að þau komu í heiminn.
Sabine Hinken var hversdags-
leg kona. Ef þú hefðir mætt henni
í stórmarkað hefði þig ekki grun-
að annað en þar væri venjuleg
þriggja barna móðir á ferð.
Reyndar hefðu fáir haft nægilega
sjúkt ímyndunarafl til að geta lát-
ið sannleikann á bak við Sabinu
hvarfla að sér. Flest allt í kringum
Sabinu virtist ósköp venjulegt en
Sakamál
hún átti einn veikleika: eftir
nokkra vodkasopa var henni
ómögulegt að neita karlmönnum
um eitt né neitt.
Betri móðir vart finnanleg
Árið 1980 settist Sabine að í
Austur-Þýskalando. Á þessum
árum starfaði hún sem aðstoðar-
kona tannlæknis en á kvöldin fór
hún á fundi kommunista. Á ein-
um slíkum hitti hún ungan mann,
Oliver að nafni. Þau felldu hugi
saman og gengu í hjónaband
skömmu eftir fyrstu kynni.
Evu, móður Sabinu, líkaði ekki
vel við mannsefni dóttur sinnar
enda hafði hann á sér óorð sakir
ofbeldisfullra aðgerða sem hann
stundaði í starfi sínu hjá STASI,
austurþýsku leynilögreglunni.
Aftur á móti þótti henni afar vænt
um barnabörnin sín þrjú sem
Sabinu og Oliver eignuðust í
hjónabandi sínu. Hún var sann-
færð að betri móður en dóttur
sína væri ekki hægt að finna.
** -4
I Sabine Hinken Kyrkti börn-
in sín nokkrum minútum eftir |
að þau komu i heiminn.
Lítil stúlka lítur dagsins Ijós
Einn dag fékk Oliver þó nóg af
heimilishaldi og yfirgaf Sabinu og
litlu börnin þrjú. Á þeim tíma
voru efnahagsmál Austur-Þýska-
lands að hrani komin og Sabine
sá enga leið til að sjá fyrir litlu
börnunum sínum. Hún drekkti
sorgum sínum á nærliggjandi krá
og svaf hjá þeim karlmönnum
sem buðust. I október árið 1988
komst hún að því að hún var
ófrísk og hafði ekki nokkra hug-
mynd um hver faðir barnsins var.
Sabine ákvað horfa framhjá
vandamálinu og klæddi af sér
bumbuna. Á meðan hún gekk
með barnið tóku félagsmálayfir-
völd af henni þau eldri og fram-
tíðarhorfur Sabinu versnuðu enn.
Snemma morguns árið 1989 ól
Sabine litla stúlku. Eftir að barnið
kom í heiminn tók móðirin
nokkra gúlsopa af vodka og því
næst kyrkti hún litlu stúlkuna og
tróð lfldnu ofan í blómavasa. Viku
síðar fór hún með vasann til for-
eldra sinna og skildi hann eftir í
garðinum hjá þeim.
Safnið stækkar
Níu mánuðum síðar kom
Sabine með fiskabúr sem fyllt
hafði verið með gróðurmold og
skildi eftir í garðinum, næst var
það stór málningafata, því næst
plastskreyting og þannig hélt
safnið áfram að stækka eftir því
sem árin liðu.
Garðurinn tekin í gegn
Árið 2001 lést faðir Sabinu og
eftir það ákvað hún að flytjast inn
til móður sinnar. Skömmu eftir
flutningana féll Sabine fyrir
manni. Kynnin höfðu mikil áhrif á
hana og samgladdist móðir henn-
ar henni innilega. Henni fannst
sem hún hefði loksins endur-
heimt glaðværu og blíðu dóttur
sína. I lok ársins 2003 ákvað
Sabine að flytjast inn til mannsins
sem hún elskaði og sumarið eftir
fannst móður hennar tími til
kominn að taka garðinn hjá sér í
gegn. Hún hafði samband við ná-
granna sinn og bauð honum
sanngjarna upphæð fyrir að losa
sig við mesta draslið.
I H
Níu litlar beinagrindur
Fyrsti hluturinn sem greiðvikni
nágranninn tók upp var stóri
blómavasinn sem Sabine hafði
komið með árið 1989. í vasanum
fann hann agnarsmáa beinagrind
af barni og hafði hann samstund-
is samband við lögreglu. Alls
fundust níu beinagrindur í garði
Evu, móður Sabinu. Öll höfðu
börnin verið kæfð nokkrum mín-
útum eftir að þau komu í heim-
inn.
„Aldrei hitt jafn barngóða
konu"
Þegar lögreglan gerði nýja
manninum í lífi hennar grein
fyrir þeim glæpum sem hún
hafði framið muldraði hann fyrir
munni sér. „Ég hef aldrei nokk-
urn tíma hitt jafn barngóða
konu." Sabine Hinken var nefni-
lega óskaplega venjuleg kona í
útliti. Rétt eins og þær sem þú
mætir með fulla kerru í næsta
stórmarkaði.
Enginn nema Mary Winkler veit af hverju hún skaut
eiginmann sinn og prestinn Matthew Winkler til bana
Myrti eiginmann sinn
Mary Winkler Lögreglan villsem
minnst um málið segja en fjölmiðlar í
Bandarlkjunum telja Matthew ekki
hafa haldiö fram hjá Mary né að
hann hafi beitt hana ofbeldi.
Prestskonan og morðinginn
Mary Winkler bað vinkonu sína að
láta kirkjusöfnuðinn vita að hún
sæi eftir að hafa drepið eiginmann
sinn. Winkler, sem er 32 ára, hefur
verið ákærð fyrir morð af fyrstu
gráðu en hún skaut eiginmann
sinn, séra Matthew Winkler, til
bana í litíum bæ rétt fyrir utan
Memphis í Bandarfljunum. Lög-
reglan fann Matthew látinn í bað-
herbergi þeirra hjóna en Mary og
dætur þeirra þrjár vora hvergi sjá-
anlegar. Eftir ítarlega leit fundust
Mary og stúlkurnar í Flórida. Dæt-
urnar, sem era á aldrinum eins árs
til átta ára, hefur nú verið komið
fyrir hjá foreldram Matthews.
Ástæðan fyrir morðinu er óljós.
Lögreglan vill sem minnst um mál-
ið segja en fjölmiölar í Bandarfljun-
um telja Matthew ekki hafa haldið
fram hjá Mary né að hann hafi beitt
hana ofbeldi. Vinir þeirra segja að
þau hafi virst ákaflega
hamingjusöm og Matt-
hew var afar vinsæll
prestur í söfnuði sínum.