Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.04.1955, Qupperneq 9

Freyr - 01.04.1955, Qupperneq 9
FREYR 101 Oft hefur verið um það rætt hvort draga- eign (dragi = dráttarvél) íslenzkra bænda eigi rétt á sér. Þeirri spurningu verður ekki svarað hér, því þrátt fyrir tilraunir í þá átt að fá upplýsingar frá bændum um það, hvað dragavinna kostar hjá þeim, liggja ekki ennþá fyrir þær tölur, sem hægt er að draga neinar verulegar ályktanir af. Árið 1951 hafa 12 búreikningabú draga, en 8 bú hafa engan draga. Hjá þeim búum, sem hafa draga, kostar hkg af töðu að meðaltali kr. 62.58, en hjá hinum búunum kr. 64.38. Reiknaðar vinnu- stundir eru að meðaltali 2.1 hkg hjá þeim, sem hafa draga, en 3.4 hjá hinum. Vinnu- kostnaður á hkg er kr. 16.31 minni hjá þeim búum, sem hafa draga, en leiga eftir verk- færi er kr. 6.69 hærri og tilbúinn áburður kr. 5.63 meiri, allar tölurnar miðaðar við hkg. Mismunurinn á tilbúna áburðinum hlýtur að liggja í einhverju öðru en því, hvort búin hafa draga eða ekki. Ef aðeins er reiknað með mismuninum á vinnukostnaði og verkfæraleigu kemur fram hagnaður fyrir dragabúin um kr. 9.62 til jafnaðar á hkg. En þess ber að geta, að töðuuppskera er að meðaltali 146 hkg meiri á hvert bú, sem hefur draga, heldur en hin, sem engan draga hafa. Öll dragalausu búin afla útheyja, en það gera aðeins 9 dragabúin. Með útheyið verð- ur útkoman sú, að hkg kostar að meðaltali kr. 35.06 hjá dragabúunum, en kr. 45.99 hjá þeim dragalausu, mismunur kr. 10.93 hvað hkg útheys er ódýrara hjá þeim, sem hafa draga. Reiknaðar vinnustundir eru að meðaltali 2.5 á hkg hjá dragabúunum, en 4.1 hjá hin- um. Hjá dragabúunum verður vinnukostn- aður á hkg kr. 17.83 minni, en verkfæraleiga kr. 5.56 hærri, svo að vinna og verkfæra- leiga verður kr. 12.27 minni á hkg hjá draga- búunum. Áveitugjald er nokkru hærra hjá dragabúunum. Uppskera er að meðaltali á bú, hjá þeim sem hafa draga, 448 hkg en 180 hkg hjá hinum. Mismunur 268 hkg. Hjá dragabúun- um eru því miklu meiri engjar og senni- lega betri (áveituengjar) og allur heyskap- ur miklu meiri. Það sem ég vildi benda á með þessum línum er þetta: 1. Stærri búreikningabúin bera sig bezt, en búin eru yfirleitt smá, þó stærri heldur en landsmeðaltalið. 2. Það virðist gefa betri fjárhagsafkomu, ef hver kýr skilar miklum afurðum (mjólk). 3. Það virðist óhagstætt að hafa blönd- uð bú, að minnsta kosti ef búin eru lítil. Þar með er ekki sagt, að sauðfjárbúin megi ekki framleiða mjólk fyrir heimilið og kúa- búin nokkuð af kindakjöti, aðeins þarf önn- ur hvor búgreinin að vera það stór, að vinnuaflið notist sæmilega vel. 4. Vinnuaflið virðist notast betur á stærri búunum, og þar sem vinnukostnaður er yf- ir 60% af rekstrarkostnaði búreikningabú- anna getur þetta eina atriði orðið afger- andi viðvíkjandi því, að stærri búin bera sig betur. 5. Úthey virðist eiga fullan rétt á sér sem kúafóður, en sennilega hefur eingöngu ver- ið um áveituhey að ræða. 6. Dragi virðist eiga fullan rétt á sér við heyskap. Rétt er samt að muna það, að dragabúin eru mikið stærri heldur en hin búin og sennilega eru takmörk fyrir því, hvað bú má vera lítið til þess að dragi eigi fjárhagslegan rétt á sér. Eins má gera ráð fyrir því, að heyskapur hefði orðið ódýrari á stærri búunum, held- ur en þeim minni, þó að unnið hefði verið með hestum á báðum, svo telja verður sennilegt, að samanburður sá, sem gerður er í grein þessari, sé of hagstæður fyrir dragana og óhagstæður fyrir hestavinnu. Ugeskrift for Landmœnd segir frá því, þann 11. febrúar síðastliðinn, að 13416 Fergusondragar hafi verið seldir til Norðurlanda árið 1954, eða 4776 til Danmerkur, 4032 til Svíþjóðar, 3319 til Noregs, 1010 til Finnlands og 279 til íslands. Einnig er þess getið, að á Norðurlöndum séu nú um 73000 Fergusondragar, af þeim eigi Danir 29000, Svíar 23000, Norðmenn 13000, Finnar 7550 og íslendingar um það bil 1000.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.