Freyr

Årgang

Freyr - 01.04.1955, Side 16

Freyr - 01.04.1955, Side 16
108 FRE YR sinnar þarf Sussex kynið gott beitiland. Vestur-hálendingar og Galloway eru fyrst og fremst hálendiskyn, bæði upp- runnin í Skotlandi og hafa lítið breiðzt út þaðan. Vestur-hálendingar eru smávaxið kyn (þungi kúnna 275 kg), stórhyrnt og mjög seinþroska. Kjötgæði þess eru mjög mikil, en kjötprósentan lág. Kynið er harð- gert og þolir vel næðinga, enda mjög loðið. Galloway kynið er fremur smávaxið (þungi kúnna 425 kg), tiltölulega mjóvaxið, hrygg- urinn stundum fremur siginn, en afturhluti gripanna vel þroskaður. Kynið er sein- þroska. Kvígurnar eru látnar bera 1. kálfi þriggja ára. Kjötgæðin eru mikil, og kynið þykir sérlega gott til að nýta grænfóður, en þykir of rásgjarnt til að fita það á beiti- landi. Kynið er harðgert, en þolir þó næð- inga ekki eins vel og Vestur-hálendingar. Galloway og Aberdeen Angus eru einu kollóttu, brezku holdakynin. Mikill kostur verður það að teljast, að holdakyn séu kollótt. Hin eiginlegu og bezt ræktuðu holdakyn eru Aberdeen Angus, holda-stutthyrningar og Hereford. Aberdeen Angus er skylt Galloway, en nokkru stærra (þungi kúnna 500 kg). Það hefur mjög fíngerða beina- byggingu, er mjög þéttholda með háa kjöt- prósentu. Kynið er mj ög bráðþroska og bezt fallið af öllum holdakynjum til slátrunar á unga aldri. Kjötið er afbragðsgott og hlut- fallið milli beina og vöðva hagstæðara en í nokkru öðru holdakyni. Kynið er ekki harðgert, þarf nákvæma hirðingu og mikla kjarnfóðurgjöf til fitunar. Það hefur ekki reynzt vel til að bæta óræktuð kyn, en er gott til einblendingsræktar með tvínytja kynjum. Holda-stutthyrningar eru stórvaxið kyn (þungi kúnna 650 kg), mjög bráðþroska, en fallið fremur úrgangssamt vegna fitu- klumpa. Þeir eru sæmilega harðgerðir, en kýrnar mjólka ekki alltaf nóg fyrir kálfana. Stutthyrningar hafa reynzt afburða vel til að bæta óræktuð kyn. Jafnvel 1. ættliður (einblendingar) líkist mjög stutthyrning- um. Halda sumir því fram, að blöndun með stutthyrningum í einn ættlið jafngildi blöndun með öðrum holdakynjum í tvo ætt- liði. Þá hefur kynið reynzt mjög vel til ein- blendingsræktar við hálendiskynin skozku. Hereford kynið er aðeins minna en stutt- hyrningar (þungi kúnna 600 kg). Kynið er sterkvaxið og framhluti gripanna mjög vel þroskaður, enda upphaflega notað til drátt- ar. Það er allharðgert, ekki eins bráðþroska og Aberdeen Angus og stutthyrningar, en tekur öðrum kynjum fram í því að sam- eina bráðan þroska og hæfileika til að fitna á góðu graslendi án kjarnfóðursgjafar. Hlutverk holdanautgripa hérlendis. Að líkindum yrði framtíð holdanautgripa hérlendis aðallega bundin við framleiðslu Tarjur af Vestur-hálendinga kyni (efri mynd). Tarfur af Stutthyrninga kyni (neðri mynd).

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.