Freyr

Volume

Freyr - 01.04.1955, Page 19

Freyr - 01.04.1955, Page 19
FREYR 111 Orr lávarður. í fyrsta lagi er það uppreisn dökkra þjóða gegn hvítum mönnum. Fá- tækt, dýrtíð og matvælaskortur hefur á öll- um timum verið bezti jarðvegurinn til sán- ingar fyrir þá, er vilja rífa niður og fyrir kommúnismann. Byltingu af þessu tagi er ekki hægt að stöðva með atómsprengjum, heldur einvörðungu með meiri velmegun og meiri almennum áhuga fyrir því að varðveita og byggja upp. Virk samvinna er nauðsyn. Annað vandamálið er spennan milli Aust- urs og Vesturs. Hér gagna ekki afvopnun- arráðstefnur. Hvernig er unnt að afvopn- ast, áður en gagnkvæmt traust er fyrir hendi hjá báðum aðilum? Nei, á undan af- vopnuninni verður að fara sameiginleg starfsemi, í beggja þágu, til þess að skapa almenna, efnalega velmegun. Eisenhower forseti hefur lagt áherzlu á þetta atriði nú, á þessum tímum óvissu og tortryggni, og það var grundvallarhugsun- in fyrir stefnu Roosevelts forseta og enn- fremur að baki hinnar kunnu Atlantshafs- samþykktar frá 1941, með yfirlýsingu um fernskonar frelsi: frelsi frá ótta, frelsi frá neyð, trúarbragðafrelsi og skoðanafrelsi. Sameinuðu þjóðirnar og sérstofnanir þeirra voru stofnaðar til raunhæfs sam- starfs og til þess að ryðja á þann hátt brautina til varanlegs friðar. Menn trúa betur þröngsýnum efasemdar- mönnum. Fyrir þá, sem hlýtt hafa á Boyd Orr áð- ur, eru þetta ekki ný tíðindi. Það má vera, að sumir sýni orðum hans tómlæti, en aðr- ir á hinn bóginn vaxandi áhuga. Hið eftir- tektarverðasta við Boyd Orr lávarð er e.t.v. ekki það, sem hann hefur til málanna að leggja í þessum efnum, heldur sú staðreynd, að hann vegna þess hefur, meðal ráðandi manna í heiminum, fengið orð á sig fyrir að vera óraunsær hugsjónamaður. Er það ekki einkennilegt, að svo auðvelt skuli vera að gera hugsjónir hlægilegar, þeg- er smásmugulegir efasemdarmenn, — við skulum í þetta sinn nefna þá svo, — oft njóta álits sem slungnir raunsæismenn. Þó er í raun réttri enginn munur á hug- sæi og ekki-hugsæi, heldur á mismunandi vilja og getu að sjá daglegar áhyggjur og deilur í víðara samhengi. Þá list kann Boyd Orr lávarður og fyrir það var hann einnig hjartanlega hylltur við heimsókn sína að Ultuna, Á afkvæmarannsóknastöðvum iærist sitt af hverju Afkvæmarannsóknastöðvarnar veita af- bragðs skilyrði til þess að læra að fóðra nautgripi rétt og hafa því ómetanlega þýð- ingu sem undirstöðuatriði í kynbótastarf- inu, segir „Husmandshjemmet“, málgagn danskra smábænda. Á þessum stöðvum sannast þýðing réttr- ar fóðrunar, og þar má einnig sjá, hvaða þýðingu hagkvæm innrétting fjósanna hefur, gerð básanna, einangrun gólfa og veggja, loftræsting og annað, sem er svo margvislegt í fjósum almennt. En það er fleira, sem upplýst er við starfrækslu af- kvæmarannsóknarstöðvanna, m. a. hve auðvelt er að mjalta einstakar kýr, en sá eiginleiki erfist frá báðum foreldrum, það hefur verið sannað við athuganir í Eng- landi og staðfest við tilraunir í Danmörku, í sambandi við afkvæma rannsóknirnar. Árangur af starfi stöðvanna þykir nú ör- uggur og er bent á þá staðreynd, að árið 1945—46 hafa kvíguhóparnir á afkvæma- rannsóknastöðvunum gefið 198 kg af smjöri að meðaltali um árið, en 1953—54 nálægt 226 kg. Starfandi stöðvar í Danmörku eru nú 28, eða 7 fleiri en á síðasta ári, og á þeim eru prófaðar um 1500 kvígur, dætur 78 nauta.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.