Freyr - 01.04.1955, Qupperneq 48
INNISBLAÐ
fyrir stjórnir bæjar- og sveitafélaga varöandi brunatryggingar skyldutryggöra húsa
Árið 1932 fékk Brunabótafélag Islands einkarétt á að brunatryggja öll íbúðarhús utan Reykja-
víktir, en hafði haft einkarétt varðandi íbúðarhús í allmörgum kaupstöðum og kauptúnum síðan 1917.
Arið 1946 hófum vér starfsemi vora. Af brunatryggingum var einungis um að ræða lausafjár-
tryggingar skv. framangreindu, og var samkeppnin við önnur tryggingafélög allhörð frá byrjun. —■
Arið 1949 gátum vér hafið endurgreiðslu tekjuafgangs til viðskiptavina vorra. Nú hafa þannig
verið endurgreiddar kr. 5.600.000.00.
15. marz 1954 gáfum vér bæjarstjó n Reykjavíkur tiiboð um að lækka brunatryggingaiðgjöld
húsa í Reykjavík um 47% skilyrðislaust. — Var það hagstæðasta tilboð, sem barst.
I marzlok 1954 kom fram á Alþingi frumvarp til laga um að gefa hverju bæjar- og sveita-
íélagi heimild til að semja við eitt eða fleiri vátryggingafélög um brunatryggingar húsa í umdæmi
sínu og upphefja þar með einkarétt Brunabótafélagsins. — Fylgjendur og flutningsmenn frum-
varpsins töldu sig sanna nauðsyn framgangs þess með því, hve há iðgjöld þeir húseigendur höfðu,
sem búið höfðu við einkarétt B. I., miðað við iðgjöld í Reykjavík, sem hafði haft frjálsan ráð-
stöfunarrétt á húsatryggingum sínum. — Frumvarp um þetta efni var samþykkt nokkru síðar.
23. apríl 1954 gaf Brunabótafélag Islands út reglugerð um úthlutun tekjuafgangs.
afgangur hafði ekki verið greiddur af félaginu áður. —
Tekju-
15. jan. 1955 höfðum vér gengið frá tilboði í húsatryggingarnar á grundvelli nefnds laga-
frumvarps. — Skv. tilboðunum lækkuðu iðgjöld í sveitum um 25—30% að meðaltali og í bæjum
og þorpum um 40—50%. — Var þegar byrjað að senda tilboðin til sveitastjórna.
24. jan. 1955 barst flestum sveitastjórnum landsins símsend tilboð frá Brunabótafélagi Is-
lands. — Var þar tilkynnt, að það félag hefði ákveðið að gefa kost á lækkuðum iðgjöldum. —
Virtust hinir tilgreindu taxtar sniðnir eftir tilboði voru. —
I DAG hafið þér réttinn til að velja og hafna. — Yður standa til reiðu tilboð í brunatrygg-
ingar húsa í umdæmi yðar, sem eru mjög lík, hvað iðgjaldataxta og önnur kjör snertir. — Til
þess .að sjá hinn raunverulega mismun þeirra, er nauðsynlegt að kanna hið innra eðli þeirra, að-
draganda, upphaf og tilgang.
'&T'S/ REYKJAVÍK
EFNI: Nokkur hagfræðileg atriði — Um notkun diselrafstöðva í sveitaheimilum — Frá
Bretlandi — Holdanaut — Almenn velmegun er allra hagsmunir — Afkvæma-
rannsóknastöðvar — Reiðhrossasýningin á Þveráreyrum — Mjóikurframieiðslan
1954 — Nauðsyn fjölbreyttari framleið lu — Flutningar á snjóbíl — Ræktunar-
samböndin — Minningargrein um Hjálmar Jónsson — Tvennskonar fjós —
Gísli, Jón og Helgi — Bækur — Molar —