Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 2. JÚNl2006 Fréttír DV Hringvegurinn færður Héraðsbúar vilja að skoð- aður verði sá möguleiki að færa hringveginn í Amórs- staðamúla frá Armótaseli þannig að lega hans verði ekki á snjóflóðahættusvæði. Bæjarstjóm Fljótsdalshéraðs segir að með því að leggja veginn sem leið liggi niður Amórsstaðamúla og brúa eða fylla Gilsárgil verði kom- ist hjá því að fara með veginn undir sunnanverðan Skjöld- ólfsstaðarhnjúk þar sem hætta sé á snjóflóðum. Útlendur áhugi á Kára- hnjúkum Um ellefu hundruð manns hafa komið á Kára- hnjúkasýninguna, sem Landsvirkjun stendur fyrir í félagsheimilinu Végarði í Fljótsdal. Þetta kemur fram á vefnum austurlandið.is. Sýningin hefur staðið frá 20. apríl. Sagt er að áberandi sé hve útlendingum fjölgi meðal gesta, eða um 50 prósent, frá í fyrra. Nokkrar erlendar ferðaskrifstofur hafi sett Kárahnjúkasýning- una inn á ferðaáætlun sína. Snyrti um- hverfisverk Hallsteins Hreinsunar- deild Reykjavíkur- borgar hefur fengið tilmæli frá hverfis- ráði Grafarvogs um að snyrta í kringum útilistaverk Halls- teins Sigurðssonar í hverfinu. Tilefn- ið er bréf frá Halls- teini þar sem hann bendir á slæma umhirðu í kringum verk hans. „Ekki er hægt að ætíast til að höfundur verk- anna annist sjálfur umhirðu svæðisins og hvetur ráðið til þess að þessu svæði sé sinnt eins og öðrum sem borgin sér um að hirða í Grafarvogi," sagði í sam- þykkt hverfisráðsins. Neitað um uppgröft Fornleifavemd ríkisins hefur neitað Guðrúnu Öldu Gísladóttur fornleifafræð- ingi um uppgreftrarleyfi á Hofsstöðum í Þorskafirði, að því er segir á heimasíðu Reykhólahrepps. „Ástæð- an er sú að það er verið að endurskoða skrá um frið- lýstar fornleifar um þess- ar mundir. Hofsstaðir eru á þessum lista - sem og Grettislaug, Þingvellir og margir fleiri staðir. Verið er að vinna í þessu máli, en alltaf tekur tíma að ná lend- ingu. Vonandi verður hægt að grafa að Hofsstöðum í haust með full leyfi." í dómssal Héraðsdóms Reykjavíkur í vikunni var tekist á um ákæru á hendur Agnari Þórarinssyni en honum er gefið stórfellt flkniefnalagabrot að sök. Tekist var á um margt en eitt helst: Sekt og ásetning Agnars. Dómarinn Ásgeir Magnússon mun að endingu kveða upp um það. oq flutti Agnar Þórarinsson ber fyrir sig að óþekktur maður sem hann telji að sé frá írak hafi beðið sig um að flytja inn fjögur kíló af hassi í Danmörku fyrir 400 þúsund krónur íslenskar. Hann hafi hins vegar verið svikinn þegar hann sá að kíló af amfetamíni hafi kom- ið ásamt hassinu í drifskafti Ford Econoline-bíls sem kom hing- Um tildrög smyglsins sagði Agnar, eftir spurningar Kolbrúnar Sævarsdóttur saksóknara: „Ég hitti hann í Danmörku og hann sá að ég var á íslenskum bíl og við fórum að spjalla. Hann bað mig um þetta og ég lét freistast," sagði Agnar sem er 75% öryrki - með ekkert fé á milli handanna að eigin sögn. Óttast hefnd Aðspurður í dómssal sagðist Agn- ar ekki vilja gefa nánari deili á mann- inum: „Ég veit ekki hvað myndi bíða mín þegar ég kæmi úr fangelsi og ótt- ast hefndaraðgerðir." Hann bar fýrir sig að efnin væru ekki ætluð til sölu- dreifingar af sinni hálfu. Hans þáttur í málinu væri einungis að flytja efn- in hingað til lands og að frakinn hafi ætíað að nálgast efnin á BSÍ. Agnar sagðist hafa hitt manninn á kaffihúsi í hippakommúnunni Thyl- eren, sem er eins konar útibú hinnar sálugu Kristjaníu, staðsett á Jótlandi í Danmörku. Með þeim hafi tekist samningar. Skömmu síðar hafi hann látið hann fá drifskaftið af bílnum, sem er af gerðinni Ford Econoline. írakinn hafi verið með drifskaftíð í nokkra daga og afhent Agnari það fullt af dópi. Losað úr drifskaftinu Skömmu eftir að bíllinn var tilbú- inn hafi hann látið félaga sinn, mann á fimmtugsaldri, fara með bílinn til íslands með Norrænu. Sá hafi afhent honum Econoline-bílinn í Fossvogi í Reykjavík. Eftir afhendingu bílsins fór Agnar í iðnaðarhúsnæði við Drangahraun í Hafnarfirði þar sem hann losaði efn- in úr drifskaftinu. Hann bar sjálfur í dómi að þegar hann hafi opnað drif- skaftið hafi komið honum á óvart að rúmt kíló af amfetamíni var þar ásamt þremur og hálfú af hassinu. „Þú hefðir sem sagt þess vegna getað verið með tíu þúsund LSD- töflur þama án þess að vita af því?" spurði Kolbrún í ljósi þess að Agnar vildi ekki kannast við önnur efni en hassið í drifskaftinu og henni fannst það ótrúverðugt. Agnar bar fyrir sig að téður íraki hefði bmgðist því gagn- kvæma trausti sem myndast hafði af stuttum kynnum þeirra á kaffihús- inu. Mjög hreint spítt Kílóið af amfetamíninu og ríflega fjögur kíló af hassi fundust í Hyundai- bifreið við Orrahóla í Breiðholti og einnig í Hafnarfirðinum tveimur dögum eftir að efnin komu til ís- lands. Agnar bar því við að hassið í Hafnarfirði hefði dottið á gólfið - þegarhannopn- aði drifskaftíð. JakobKristins- son, dósent í lyfjafræöi, bar að amfetamínið væri mjög hreint miðað við það sem gengur og gerist. „Með því sterkara sem við sjáum," sagði hann. Hassið sagði hann hins vegar að væri í veikari kantinum. Að flytja inn - eða ekki Jón Einar Jakobsson, verjandi Agnars, sagði manninn sem flutti bílinn hingað til lands hefði ekki ver- ið rannsakaðan til hh'tar og það hafi ekld verið Agnar sjálfur sem flutti bflinn til landsins. „Það er ekki jafn- rétti að það hafi ekki verið rannsak- að tíl fulls," sagði Jón Einar í samtali viðDV. Kolbrún sagði í samtali við DV eft- ir aðalmeðferðina að félagans þátt- ur í málinu hefði verið rannsakaður Agnar Þórarinsson Sagðist óttasthéfndirefhann uppiýsti um hver Irakinn væri. Agnar er öryrki og sagðist engar fjárhæðir hafa á milli handanna - svo hann gæti ekki verið eigandi efnanna. til htíítar og hann setið í gæsluvarð- haldi þegar málið kom upp þann 15. desember. „Það var ekkert sem tengdi hann við brotið," sagði Kol- brún og vísaði í að bæði félaginn og Agnar hefðu borið að hann tengdist málinu ekki á neinn hátt. Að endingu mun Ásgeir Magnús- son héraðsdómari ákveða hver refs- ing Agnars verður og hvort hann verði frelsissviptur eður ei. mundur@dv.is þvl í réttarsal að framburður Agnars væri ótrúverðugur hvað varðar að hann hefði ekki vitað aföðru en hassinu. Síðasti afkimi Dettifossmálsins enn fyrir dómi Var vitlaus maður í Aðalmeðferð í máli Ríkissak- sóknara gegn Tryggva Lárussyni fór fram í vikunn og er það síðasti afkimi Dettifossmálsins svokall- aðá, eins stærsta fíkniefnamáls síð- ari ára. Málið snýst um hvort að Tryggvi sé sá sem gengur undir nafninu Tryggvi Túrbó. Viðurnefn- in Túrbó og Túrbína koma fram í skjölum málsins en erfitt hefur ver- ið að færa sönnur á að Tryggvi beri annað hvort þeirra. Sjálfur hefur hann alla tíð neitað því og einnig að þekkja meðákærðu í málinu. Fjöldi vitna hefur verið köll- uð fyrir og ber þeim saman um að Tryggvi Lárusson hafi verið á Hróa- skeldu hátíðinni í Danmörku þegar hann hafði, samkvæmt ákæru, átt að hafa keypt fíkniefni í Roosenda- al í Hollandi með þeim Óla Hauk Valtýssyni og Reyni Davíð Þórðars- syni. Það var í byrjun júlí 2004. Sveinn Andri Sveinsson, verj- andi Tryggva sagði ákæruvaldið velja framburði sakborninga í mál- inu, hvað Tryggva varðar og gagn- rýndi það. Einnig að tímasetning- ar í ákæru séu ekki nákvæmar en Tryggvi er meðal annars ákærður fyrir að hafa keypt fíkniefnin í Hol- landi í byrjun júlí - þegar hann var á Hróaskeldu samkvæmt fjölda vitna í málinu. Vitni segja hann hafa ver- ið á hátíðinni 30. júní og fram til 5. júlí 2004. Sveinn Andri segir að það hafi komið fram í málsskjölum að fíkniefnin sem um ræðir hafi verið keypt 3-4. júlí af Óla Hauki Valtýs- syni og Reyni Davíð Þórðarssyni - þegar Tryggvi var í Danmörku. Tryggvi losnaði úr gæsluvarð- haldi í desember síðastíiðnum og hafði þá verið um fimmtán mán- haldi? Dettifossmálið þingfest Viðþingfestingu Dettifossmálsins í héraðsdómi slðasta sumar. Slðasti afkimi málsins blður dóms en einn maður hefur setiö I gæsluvarðhaldi frá þvi m eftir heimvlsun Flæstaréttar á dómi héraðsdómara yfir honum. uði innan fangelsisveggja. Málinu var sem kunnugt er heimvísað úr Hæstarétti eftir að Guðjón St. Mart- einsson héraðsdömari hafði dæmt Tryggva til langrar fangelsisvistar. Hæstiréttur fslands Málinu sem nú er til meðferðarvarheimvlsað frá Hæstarétti. Hann mun kveða upp í málinu inn- an skamms hvort að Tryggvi Lárus- son sé í raun og veru Tryggvi Túrbó - eða að vitlaus maður hafi verið í haldi allan þennnan tíma.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.