Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Page 27
r
DV Helgin
FÖSTUDAGUR 2. JÚN/2006 27
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík,
eins og einn bendir á. Þrátt fyrir
að vera með 6% minna fylgi en R-
lista flokkarnir, lítur Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson á sig sem sigurveg-
ara þessara kosninga og að úrslitin
verði að skilja sem kröfu kjósenda
um hann sem borgarstjóra. „Þetta
er eðlileg, pólitísk sjálfsblinda, það
skrýtnd* er að fjölmiðlar skuli apa
þessa augljósu rökvillu gagnrýnis-
laust upp eftir honum og líta á það
nánast sem sjálfgefið að hann eigi
að verða borgarstjóri."
Nefnt er í þessu samhengi að
hinn ágæti stjórnmálamaður, Árni
Sigfússon, hrökklaðist að lokum
frá Reykjavík þrátt fyrir að hafa tví-
vegis vera furðu nærri því að sigr-
ast á sameiginlegu framboði allra
andstæðinga sinna. Hætta var á að
Árni yrði endanlega brennimerktur
sem lúser allra tíma. Nú hefur Vil-
hjálmur Þ. náð stöðu sigurvegarans
þótt hann hafi staðið sig miklu verr
en Árni og reyndar bara örlítið bet-
ur en hinn raunverulegi lúser allra
tíma, Björn Bjarnason. Sem bet-
ur fór höfðu Keflvíkingar vit á að
fá Árna til sín og þar suðurfrá fær
hann að njóta sín.
Ólafur F. í hlutverki
ginningarfífls
„Þótt margt megi segja um Ólaf
F. Magnússon, þá talar hann að
minnsta kosti ekki tungum tveim,"
bendir einn álitsgjafanna á. Og vill
vera heiðarlegur maður. Kannski
einmitt þess vegna velja Vilhjálm-
ur Þ. Vilhjálmsson og Björn Ingi
Hrafnsson hann í hlutverk fíflsins,
sem á að afsaka þeirra baktjalda-
makk við stjórnarmyndun í Reykja-
vík.
„Auðvitað var aldrei ætlun Vil-
hjálms að semja við hann, heldur
einungis halda úti málamynda-
viðræðum sem síðan átti að slíta
vegna þess hve Ólafur væri ósveigj-
anlegur - og réttlæta stjórn íhalds
og Framsóknar. Þetta átti hvorki
Ólafur né hinn káti flokkur hans
Árni Sigfússon og Lúðvík Geirsson Ekki erað efastum að þeirþessirsitji við völdog hafi til
þess umboð kjósenda. En það verður ekki sagt um alla.
inn. Af hverju var yfirleitt verið að
tala um þennan flugvöll í kosning-
unum?" spyr einn sérfræðinganna.
Það eina sem á að gera er að setja
málið í áframhaldandi nefndir og
„Þrátt fyrir það skríða þessir tveir saman í einmitt
þann meirihluta sem Reykvíkingar mundu áreið-
anlega síst vilja efþeir hefðu fengið að ráða. Öm-
urleg skrípamynd aflýðræði!"
skilið - að vera fíflið í hráskinnuleik
ríkisstjórnarflokkanna."
En annar álitsgjafi tengir af-
bökun lýðræðisins við Frjálslynda
flokkinn og flugvallarmálið. Sam-
þykkt var í lýðræðislegum kosning-
um að flugvöllurinn skuli hverfa
úr Vatnsmýrinni árið 2016. Einn
flokkur setti andstöðu við þetta á
oddinn í kosningabaráttunni og
uppskar 10% fylgi og oddaaðstöðu í
borgarstjórn. Líklegt hlýtur að telj-
ast að þetta mál verði skilyrði fyrir
þátttöku hans í meirihluta. Þannig
ganga lýðræðislegar ákvarðan-
ir reykvískra kjósenda kaupum og
sölum fyrir borgarstjórastólinn.
Flugvöllur og fláræði
ugv
Ólc
)lafur F. fær sem sagt ekki frítt
spil þó hann vilji vera heiðarlegur.
„Frjálslyndi flokkurinn sem þóttist
vera umhverfisverndarflokkur og
komst upp með það!"
Daginn eftir kosningar var odd-
vitinn Ólafur F. Magnússon farinn
að mæra einkabílinn og mislæg
gatnamót eins og þetta væri lið-
ur í stefnunni um umhverfisvæna
höfuðborg," bendir einn álitsgjaf-
anna á. Það að
tala um flugvöll-
inn í sama orði
og umhverfis-
vernd er bilað
og stórundar-
legt að sannir
náttúruvernd-
arsinnar skyldu
láta blekkjast af
þessum gopa.
„Flugvöll-
ur-
ekkert útlit fyrir að hann sé á förum
í nánustu framtíð. Allir voru á því
en enginn þorði að segja það fýrr
en þeir föttuðu hvað Óli heimilis-
læknir var að hala inn mikið fylgi á
flugvallarafstöðunni einni.
Framsókn í bakkgír í
Kópavogi
Þrátt fyrir að hafa beðið afhroð
í kosningunum í Kópavogi hafa
framsóknarmenn tryggt sér for-
mennsku í bæjarráði. Ekki er nokk-
ur leið að skilja úrslit kosninganna
áþannvegað sáhafiverið viljikjós-
enda, bendir einn álitsgjafa á.
Og víst er að margir telja það
beinlínis tilræði við lýðræðið að
Ómar Stefánsson sé nú formaður
bæjarráðs í Kópavogi.
„Framsóknarflokkurinn í Kópa-
vogi beið sögulegt afhroð. En í stað
þess að skríða oní næstu holu og
skammast sín, endurnýjuðu þeir
umboð Gunnars Birgissonar og fá
formennskuna í bæjarráði að laun-
um,“ segir einn álitsgjafanna og vill
hafa þróun mála í Kópavogi sem
irtaks dæmi um af-
bökun lýðræð-
isins.
Ogöðrum
álitsgjafa er
Kópavogur
ofarlega
í huga
í þessu
% sam-
hengi.
Talar um
gjaldfrjáls
númer og leggur það upp sem
gott iíkingamál í þessu samhengi:
„Ómar sagðist ætla að bjarga gamla
fólkinu með því að setja á laggirn-
ar gjaldfrjálst símanúmer. Gamla
fólkið getur þá bara hringt í þetta
númer ami eitthvað að því. Það
verður reyndar enginn á línunni
heldur líklega bara símsvari en það
má alltaf ímynda sér að maður sé
að tala við einhvern."
Kötturinn í sekknum
„Eyþór Arnalds. Er hann búinn í
meðferðinni?" spyr einn álitsgjafa.
Nokkur atriði önnur og nöfn eru
nefnd sem blaut tuska í andlit kjós-
enda. Eyþór er einn þeirra.
Eyþór Arnalds fór í „frí" sem
oddviti sjálfstæðismanna í Árborg
- að sögn til þess að ölvunarakst-
ur hans myndi ekki hafa áhrif á úr-
slit kosninganna. „öllum að óvör-
um mætti hann svo kampakátur
á kosninganótt og túlkaði úrslit-
in sem mikla persónulega stuðn-
ingsyfirlýsingu. Eyþór er kötturinn
í sekknum þetta árið," úrskurðar
einn álitsgjafa.
Maður er nefndur Gísli S. Ein-
arsson. Var „bæjarstjóraefni" Sjálf-
stæðisflokks á Akranesi. „Dag-
inn eftir kosningar var tilkynnt að
„hætt hefði verið við" þau áform,
án nokkurra raunverulegra
skýringa."
Og víðar um land er
leitað. Næsti áfanga-
staður er fsafjörður:
„Framsóknarmenn á
fsaflrði gerðu það að einu
helsta máli kosningabar
áttu sinnar að fá ópól-
itískan bæjarstjóra.
Það prinsip fauk
áður en búið var
að telja
utankjör-
fundarat-
kvæðin."
Alþingis-
menn sem
storka lýðræð
inu
Nú eru alþingis
kosningar á næsta
leiti og rétt að líta
til þeirra þeg
ar lýðræðið er
undir. Fulltrúar
flokka eru, þeg-
arupp erstaðið,
aðeins fulltrú-
ar sjálfra sín að mati eins álitsgjafa.
Þegar að sverfur geta þeir sagt sig
úr flokkunum og starfað á eigin for-
sendum, jafnvel þvert á stefnuskrá
flokksins. Þó svo að hér sé sjónum
einkum beint að sveitarstjórnar-
málum þarf að gera lýðum ljóst að
atkvæði greitt flokki er greitt flokkn-
um, ekki frambjóðandanum.
„Eitt subbulegasta dæmið um
löglegt kosningasvindl af þessu tagi
er úr landsmálapólitíkinni þegar
Kristinn H. Gunnarsson gekk úr Al-
þýðubandalaginu til liðs við Fram-
sókn með þeim afleiðingum að eft-
ir kosningar uppgötvuðu kjósendur
Alþýðubandalagsins á Vestfjörð-
um að þeir höfðu styrkt ríkisstjórn
Davíðs Oddssonar í sessi með at-
kvæði sínu - sem ómögulegt er að
ætla að hafi
sér. Og má einnig nefna Gunnar
örlygsson sem yfirgaf frjálslynda til
að styðja ríkisstjórnina í Sjálfstæð-
isflokknum.
Álitsgjafarnir
DV setti sig í samband við fimm
manns sem fylgdust grannt með
kosningunum og lásu í niðurstöð-
urnar að þeim loknum. Þeim var
sagt í Guðs almáttugs bænum að
tjá sig að vild - blaðamaður tæki
fulla ábyrgð því sem hér er lát-
ið flakka. Blaðið kann þeim Dav-
íð Þór Jónssyni þýðanda, Gunnari
Lárusi Hjálmarssyni sjónvarps- og
útvarpsmanni með meiru, Helgu
Völu Helgadóttur gagnrýnanda, 111-
uga Jökulssyni rithöfundi og Stefáni
Pálssyni sagnfræðingi hinar bestu
þakkir fyrir þeirra ágætu ábending-
ar og innlegg.
jakob@dv.is