Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Síða 28
28 FÖSTUDAGUR 2. JÚNl2006
Helgin DV
Björgvin Halldórsson efnir til stórtónleika í Laugardalshöll
inni í september ásamt Sinfóníuhljómsveit íslands, stórum
karlakór, rythmasveit og gestum. Allur pakkinn og löngu
tímabært aö margra mati að þessi einn ástsælasti og sölu-
hæsti söngvari þjóðarinnar syngi við undirleik Sinfó.
„Blessaður, hvað er þetta? Ég var nú bara úti í Nóatúni
áðan. Elvis að kaupa eldhúsrúllu og smjör! Það er ekkert
seleb hérna. Eða þannig. Ég er bara Björgvin hans Túlla og
Siggu í Hafnarfirði," segir Björgvin Halldórsson. „Annars
er þessi þjóð alveg sérstök. Allir íslendingar eru talandi
skáld og listamenn. Sýningar úti um allan bæ. En það er
orðið nokkuð mikið af fréttum um einhverja „fræga" sem
eiga enga innistæðu og er bara frægir fyrir það eitt að vera
„frægir". Það er handónýtt."
Björgvin hefur munninn fyr-
ir neðan nefið að vanda. Þetta
er þegar blaðamaður reynir að
koma sér í mjúkinn hjá honum
með því að lýsa yfir því að Bó
sé sem einhver skærasia stjarn-
an sem ísland hafi eignast. Og
nú sé lag að splæsa í gott við-
tal í ljósi fyrirhugaðra stórtón-
leika sem efna á til í haust. Bó
og Sinfó í Höllinni: Karlakór,
rythmasveit og gestir. öllu til
tjaldað. Björgvin vill ekki mik-
ið um þetta ræða fyrr en allt er
naglfast og frágengið. En
þetta eru of mikil tíðindi til
að hægt sé að liggja á þeim
eins og ormur á gulli.
Áður en lengra er hald-
ið. Fyrirsögnin „Bó segir
„go'* við Sinfó" er vísun í
eina af tjölmörgum fræg-
um sögum og hendingum
sem eignaðar eru Björg-
vin og eru gjarnan sagð-
ar á góðra vina fundum.
Hann mun hafa sagt að
. ekki verði farið af stað
með eitt eða neitt
fyrr en Bó segi „go“.
Vitað er að ýmsir
safna þessum ör-
sögum og til dæm-
is gerði Gísli Rún-
ar Jónsson sér mat úr
þessum hvatvísu og
snaggaralegu tilsvörum
í bókinni um Björgvin, „Bó -
með íslenskum texta", sem kom
útárið 2001.
Söngvarinn
Vandierað velja úr efnisskránni en Björgvin hefur sungið uni
900 iög inn á plötur.
'SSStlSÍLm » “
og verða líklega aukasýningar i haust vegna mikillar
aðsóknar.
Nýjasta sagan af Bó
Ein nýjasta sagan sem byggir á
orðheppni Björgvins og viðhorf-
um er á þá leið að sýning Björg-
vins á íslandi, Sagan af Nínu og
Geira, er í þann mund að hefjast.
Verið er að farða stjörnuna þeg-
ar Friðrik Ómar söngvari, sem í
sýningunni er, hringir og segir
að því miður muni sér seinka af
óviðráðaniegum ástæðum.
Björgvin lætur þetta ekki
raska ró sinni; „Friðrik minn, þú
bara kemur þegar þú kemur."
Hótel fsland er troðfullt og
mikil stemning. Þá birtist í bún-
ingsherberginu framkvæmda-
stjóri staðarins, með ættarnafn
úr skemmtanaheiminum, ið-
andi af stressi og látum og segir
að sýningin verði bara að hefjast.
Þetta gangi ekki. Annað hvort
eru menn „pró" eða ekld „pró“.
Björgvin hlustar á hamagang-
inn með öðru eyranu, snýr sér
þá pollrólegur við þar sem hann
situr í förðunarstólnum, mælir
hinn unga framkvæmdastjóra út
og segir þá: „Hefur þú einhvern
tíma vitað til þess að Hamlet fari
á svið og hauskúpan er ekld í
húsinu?"
Og málið var dautt.
Fagmaður fram í
fingurgóma
„Þessi saga hefur nú verið
löguð eitthvað til," segir Björgvin
þegar sagan er borirt undir hann
sjálfan. „Sumar þessara sagna
eru bamaðar, aðrar sannar og
svo hreinlega upplognar. Það er
alltaf verið að búa til sögur. Þetta
er eins og með Hafnarfjarðar-
brandarana. Þeir eru komnir frá
Noregi og írlandi"
En að hinum miklu tónleik-
um. Björn Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri hjá Senu, útgáfu-
fyrirtæki Björgvins, segir að
þegar liggi fyrir að um tvenna
tónleika verði að ræða á sama
degi og þeir ekki endurteknir.
Enda um viðamikið verkefni að
ræða.
„Á hvora tónleika komast um
2.500 manns í sæti. Nú þegar
eru stórfyrirtæki að berjast um
þennan bita. Vilja kaupa tónleik-
ana. Enda færist það mjög í vöxt
að fýrirtæki vilji tengja sig við já-
kvæða viðburði og geta þá jafn-
framt boðið viðskiptavinum sín-
um á þá. Og menn geta treyst því
að þetta verði í lagi þegar Björg-
vin er með puttana í þessu sjálfur
- fagmaður fram í fingurgóma,"
segir Björn.
Elvis með Sinfóníunni
Senumaðurinn Björn dregur
hvergi úr því að þetta verði við-
burður sem bragð verður að. „El-
vis með Sinfóníunni. Það er ekki
á hverjum degi."
Nú er verið að teikna upp
hverjir verða gestir en það ræðst
af efnisskránni. Björgvin sendi
til dæmis frá sér frábæra dúetta-
plötu fyrir tveimur árum.
Og nöfn á borð við Diddú,
Kristján Jóhannsson, Sigríði
Beinteins, Röggu Gísla, Stefáns
Hilmarssonar, Eyfa og börn hans
Svölu og Krumma koma strax
upp í hugann þegar menn reyna
að sjá fyrir sér gestasöngvara
tónleikanna. En Björgvin segist
ekkert geta staðfest í þeim efn-
um á þessu stigi.
„Þetta leggst bara æðislega
vel í mig - auðvitað," segir Björg-
vin.
„Þetta er eitthvert það mest
spennandi og skemmtilegasta
verkefrú sem ég hef tekið að mér
í langan tíma. Og kannski rökrétt
framliald af velgengni sýningar-
innar minnar á íslandi og þre-
földu plötunnar sem ég sendi frá
mér fyrir jólin. Það er ekki ónýtt
að fá loks að syngja með bestu og
stærstu hljómsveit íslands."
Vandi að velja
Og orðið velgengni í því sam-
bandi er engar ýkjur: Sýning
Björgvins á Islandi gekk von-
um framar, 27 þúsund mættu
á svæðið og hugsanlega verða
aukasýningar í haust. Og safri-
platan sem Bó sendi frá sér fyrir
síðustu jól seldist von úr viti, eða
í 40 þúsundum eintaka. Þannig
að Björgvin er enn að og allt á
fullu.
Björgvin hefur í gegnum tíð-
ina hljóðritað hátt í níu hundruð
lög. Óg því verður vandi úr að
velja þegar efnisskráin á hinum
miklu tónleikum í haust er ann-
ars vegar.
„Já, já, það er hausverkur út
af fyrir sig. Þetta er svo mikið af
lögum. Þau verða valin með það
í huga að verið er að flytja þetta
með rythmahljómsveit, sinfóní-
unni og kór. Ég geri ekki ráð fýr-
ir því að þetta verði mjög mikið
rokk og ról. En þetta verður að
svinga. Meira lög sem hæfa til-
efninu og hljóðfæraskipan. Það
er dýrt og mikið mál að koma
þessu á koppinn, svona tón-
leikum, útsetja þetta. Meira en
að segja það. Þórir Baldursson
kemur líldega þar að og svo er
ég með vin minn frá Englandi í
takinu. En meira get ég bara ekki
sagt á þessu stigi," segir Björgvin
Halldórsson - maðurinn sem
sveiflast milli þess að vera Björg-
vin hans Túlla og Siggu úr Hafn-
arfirði yfir í að vera hinn íslenski
Élvis.
jakob@dv.is